Heima er bezt - 01.04.1964, Blaðsíða 20

Heima er bezt - 01.04.1964, Blaðsíða 20
N orðmanna-kastali. af mólaginu með eins konar herfi, flögur þessar eða strengsli eru látin þorna, og þá taka við vélar, sem mala móinn og skila honum í smágörðum litlu stærri en rif- garðar í heyflekk. Þegar mylsna þessi hefur þornað, er henni dælt í stærri hryggi eftir því sem hún þornar til þessa eru notaðar margvíslegar tilfæringar, sniglar, pípur, hjól, færibönd og kranar og fleira, sem ég kann engin skil á. Þegar mylsnan er fullþurr er hún loks í allháum hryggjum, sem þaktir eru síðan með plasti, til að verja þá fyrir regni og vindi. Er furðulegt að sjá til- sýndar yfir þessa endalausu brúnu mófláka með glamp- andi plasthryggjunum líkt og stafaði á læki eða vötn. Járnbrautarvagnarnir ganga stöðugt utan úr mýrinni heim að rafstöðinni til að fylla hina óseðjandi hít henn- ar. Svona er haldið áfram ár eftir ár, unz mórinn er þrotinn í mýrinni, en það var mér talið að verða mundi eftir 40—50 ár. Svona var það þarna, en á öðrum vinnslustöðvum er mórinn grafinn, eltur og fergður í köggla og töflur. Þegar svo er farið að, er mýrin grafin til botns í einni atrennu, og því mildu minna svæði haft undir til vinnslu í einu. En mikinn vélakost þarf þar engu að síður, og verða þessar stórvirku vélar ekki nýttar, nema í hinum víðáttumestu og dýpstu mýraflákum. Þótt ferðamanni, sem fer hratt um byggðir írlands gæti sýnzt sem mómýrar landsins séu óþrjótandi, gera fróðir menn þar í landi naumast ráð fyrir, að mórinn endist meira en 70 til 100 ár með líkri eyðslu og nú er, hvað þá ef hún eykst. Og hvað tekur þá við? Mikil umræða er um að græða skóg bæði í hinum ófrjóustu héruðum iandsinS, þar sem landbúnaðurinn er torveld- astur, og einnig í hinum tæmdu mómýrum. Skógrækt- artilraunir íra á síðustu árum hafa gefið góða raun, og hugsa menn gott til framtíðarskóga landsins, sem efnis- og orkugjafa. En einnig er um það rætt, að breyta hin- um tæmdu mómýrum í graslendi. Yfirstjórn móvinnslu og mórannsókna í írlandi er í höndum stofnunar, sem heitir Bord na Móna, sem er að nokkru leyti ríkiseign. Höfuðstöðvar hennar eru þar sem heitir New bridge alllangt fyrir vestan Dýflina. Heimsótti ég þær stöðvar og fékk þar að sjá söfn og rannsóknarstofur ásamt einni hinna stóru móvinnslu- stöðva. Þarna var unnt að sjá í einföldu yfirliti muna og mynda þróunarsögu móvinnslunnar, annars vegar gamla lagið, þar sem mórinn var grafinn með skóflu og unn- ið að honum eingöngu af handafli, og hann loks fluttur heim í hripum á asna og honum brennt í opnum eld- stæðum og hlóðum, en hins vegar alla hina stórfelldu véltækni, sem ég hefi lýst að nokkru. En starfsmenn Bord na Móna eru ekki síður fróðir um allt, sem við kemur mómýrunum sjálfum, og mun það fátt vera, sem nokkurs er um vert, sem þeir vita ekki í þeim fræð- um. HEIMSÓTTIR SKÓLAR. Frá Newbridge lá leið mín til Limerick, sem forfeð- ur vorir kölluðu Hlymrek, en það er ein stærsta borgin á vesturströnd írlands með um 30—40 þús. íbúa. Stend- ur borgin við fjarðarbotn við ósa Shannonfljótsins, en lengra úti með firðinum er hinn ltunni Shannonflugvöll- ur. Limerick kemur mjög við sögu írlands á liðnum öldum allt frá dögum hinna norrænu víkinga, sem stofn- uðu þar ríki og höfðu viðbúnað mikinn. Nú er borgin með mestum Ameríkublæ írskra bonja, og eru þar auð- 152 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.