Heima er bezt - 01.04.1964, Blaðsíða 21

Heima er bezt - 01.04.1964, Blaðsíða 21
Frd Dunmore. sén áhrif frá nálægð flugvallarins og umferð um hann. Er borgin vel byggð með breiðum götum og nýtízku sölubúðum og hótelum. Annars sá ég ekki nema hluta hennar, því að dimmt var að kveldi, er ég kom þangað og næsta dag var ég mest úti í sveitum þar í nágrenni í fylgd með skólaeftirlitsmanni héraðsins. Tveir skólar þeir, sem ég heimsótti, voru eins konar gagnfræðaskólar. Báðir voru þeir í smáþorpum og sótt- ir af piltum úr nágrenninu. Skólarnir voru litlir, heim- angönguskólar, og nemendafjöldinn eitthvað innan við 100. Heldur þótti mér þeir fátæklega búnir að húsakosti og kennslutækjum, og aðbúnaður kennara lélegur. Kennarastofurnar voru smákytrur, þar sem varla var stóll til að tylla sér á. Bóklegt nám í skólum þessum er fremur lítið, en því meiri stund er lögð á verklega fræðslu, voru þar allrúmgóðar smíðastofur, en einkum virtist mér mikil stund lögð á utanhússstörf, sérstaklega garðrækt. Skólunum fylgdu allstórir garðar, þar sem bæði voru ræktaðar matjurtir og skrúðplöntur, og gerð- ar ýmsar tilraunir með samanburð afbrigða. Sögðu skólastjórarnir mér, að mildl stund væri lögð á að kenna nemendum hagnýt, nýtízku vinnubrögð, og ekki síður háttvísa framkomu og híbýlaprýði utanhúss og innan. Væri þessa mikil þörf í sveitum landsins, að slík áhrif bærust inn á heimilin frá skólunum, því að víða væru heimilishættir gamaldags og bæru minjar aldalangrar kúgunar og fátæktar. Hefðu skólarnir þegar unnið mik- ið starf í þessum efnum, en ekki mætti slaka á klónni. Einnig heimsótti ég menntaskóla, sem rekinn var af nunnum í klaustri einu í Limerick héraðinu. Enginn karlmaður starfaði þar við skólann nema prestur staðar- ins, og allir nemendurnir voru stúlkur. Skólinn var fremur þröngur og kennslustofur gamaldags bæði um stærð og útbúnað. En nýreist heimavistarhús var hið vistlegasta, bjart, hreinlegt og öllu sem haganlegast fyr- ir komið. Flest herbergin voru eins manns, lítil en snot- ur og með þægilegum húsgögnum. En setustofur og borðsalur voru rúmgóð og auk þess var þar sérstök músikstofa. Abbadísin, sem sýndi mér skólann, var miðaldra kona, létt í máli og gamansöm. Mátti hún ekki annað heyra en að ég kæmi í allar kennslustofurnar, enda þótt ver- ið væri að kenna þar, því að heimsókn frá íslandi hefði skólinn aldrei fengið fyrr. Varð ég að segja nokkur orð í hverri stofu, en til allrar hamingju voru þær ekki nema 4 eða 5. LOKAÞÁTTUR. Að kvöldi hins 17. september fórum við Murphy enn þvert yfir írland frá Limerick til Waterford, sem er meðal stærri bæja á austurströnd landsins alllangt fyrir sunnan Dýflina. Er það með elztu borgum landsins og var mikið víkingabæli í fornöld. Enn standa þar gaml- ar byggingar, sem sagðar eru frá víkingaöld. Mest ber þar á vígturni einum miklum, sem talinn er reistur skömmu eftir 1000 af dönskum víkingahöfðingja Rögn- valdi að nafni. Turninn er mikið mannvirki, veggir geysiþykkir með örsmáum gægjugötum, en hlaðnir úr svo stórum steinum, að furðu gegnir, hversu menn hafa mátt lyfta þeim svo hátt með litlum tækjum. Ekki fékk ég færi á að skoða þenna turn að innan, en annan af líkri gerð hafði ég séð áður. Var klöngrast upp eftir þröngum stiga í veggnum, en frá honum lágu dvr inn á hæðir turnsins, en gólf þeirra voru þar einnig úr Heima er bezt 153

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.