Heima er bezt - 01.04.1964, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.04.1964, Blaðsíða 24
Orlofskonur í Kvennaskólanum d Blönduósi i janúar 1964. Fremri röð, talið frá vinstri: Þorbjörg Þorsteinsdóttir, Auðkúlu, Sigrún Sigurðardóttir, Brekku, Elisabet Hafliðadóttir, Núpi, Halldóra Pétursdóttir, Skagaströnd, Steinunn Jónsdóttir, Skaga- strönd. Aftari röð: Dómhildur Jónsdóttir, prestsfrú, Höskuldsstöðum, Ingibjörg Stefánsdóttir, Ijósmóðir, Blönduósi, Hólmfríð- ur Pétursdóttir, Viðihlið, Ingibjörg Hallgrírnsdóttir, Þverárdal, Maria Olafsdóttir frá Bakka, Skagaströnd, lijörg Erlendsdóttir, Hurðarbaki, Elin Sigurtryggvadóttir, Kornsá, Steinunn G. Blöndal, Iilöndubakka, Valgerður Ágústsdóttir, Geitaskarði, Hulda A. Stefánsdóttir, Blönduósi. nauðsynleg, því ekki hrekkur ætíð styrkur frá hinu op- inbera til að greiða allan kostnað. Orlofsnefnd A.-Húnavatnssýslu skipa þessar konur: Ingibjörg Stefánsdóttir, Ijósmóðir á Blönduósi, formað- ur, Valgerður Ágústsdóttir, húsfreyja á Geitaskarði, og Vigdís Bjömsdóttir, kennari á Blönduósi. Hefur nefnd þessi verið mjög áhugasöm og sýnt mikinn dugnað. Mörg ljón eru á veginum eins og oftast, þegar ný mál eru á döfinni. Einna erfiðast er að koma húsfreyjunum af stað, þær bera mörgu við: tímaleysi, að þær þurfi ekki hvíldar við og stundum stappar nærri, að þeim finnist orlofið eins konar ölmusa, sem óþarft sé að veita viðtöku. En þrátt fyrir allar mótbárur hefur orlofs- nefnd A.-Húnavatnssýslu tekizt að hafa fjórar orlofs- vikur frá því nefndin tók til starfa veturinn 1961—62. Hefur Kvennaskólinn á Blönduósi tekið á móti orlofs- konunum, séð um alla aðhlynningu gestanna og dvalið fyrir þeim eftir bez.tu föngum. Eftir því sem ég frek- ast veit, hafa þessir orlofsdagar orðið konunum til ánægju og góðrar kynningar. I fyrravetur tókst svo vel til, að orlofskonur voru í Kvennaskólanum um það leyti sem Skagfirðingar sýndu Fjalla-Evvind á „Sæluvikunni“ á Sauðárkróki. Var öll- um konunum boðið í leikhúsið norður á Sauðárkrók. Var það góð tilbreyting og höfðu konurnar milda ánægju af þeirri ferð. Síðasta orlofsvika byrjaði 22. janúar síðastliðinn. Veð- urblíða var þá mikil hér um slóðir og fært um allar byggðir. Komu konur úr öllum hreppum sýslunnar og kærkominn gestur bættist í hópinn, Hólmfríður Péturs- 156 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.