Heima er bezt - 01.04.1964, Blaðsíða 16
BREF
frá Birni Jónssyni, ritstjóra Noráanfara
til Sveins Sveinssonar, Kreppstjóra á Hraunum.
Kristmundur Bjarnason bjó til prentunar.
(Framhald.)
2. BRÉF.
Akureyri, dag 18. september 1849.
Mikilsvirti, elskulegi vin!
Fyrir yðar ástúðlega og mér kærkomna bréf yðar af
12ta þ.m., þá hina höfðinglegu vinarsendingu þar með
eins og allt óþreytanlega gott mér til handa þakka ég
yður sem og yðar góðu konu skyldugast og ástsamleg-
ast. — Það gleður mig að heyra, að yður ásamt öllum
gömlu kunningjunum líður svo vel sem vænta er eftir
kringumstæðum.
Víst er um það, að alltaf sakna ég Sigluf. síðan reyndi,
hvað gott var að vera þar í fólksins og mörgu öðru til-
liti, og því hefði mér verið ánægja í því og heillavon að
mega hverfa þangað aftur. En svo stendur á hérna, að
ég get ekki farið frá Daníelsen, á meðan ekki veit til
vissu, hvað hann afræður með verzlun sína, hvort held-
ur að halda henni áfram eða sem líklegast horfir við,
selja hana. Ég varð því að hafna — því miður — tilboði
míns góða Thaae’s með að fara á Sigluf. að vori. Og
heyri ég nú sagt, að hr. assistant Guðm. Brynjúlfson í
Hofsós hafi fengið Sigluf. eftir Jósef, svo nú er ekki að
sinni þess von, að ég eigi þangað afturkvæmt. Þó gæti
það æxlazt svo til ennþá.
Engar eru fréttir héðan merkilegar, aðrar en þær, sem
ég gjöri mér vissa von um, að heyrt hafið t. a. m. um
seinasta bardagann millum Dana og Þjóðverja og svo
vopnahléð, sem um er samið, að skuh standa í 6 mán-
uði, ef að friður enn að nýju gæti á komizt í millitíð-
inni ....
Mikið gengur nú á í henni veröldu, sagði kellingin
og svo má segja enda hér á Fróni. Þó er nú helzt rætt
um Norðurreið Skagfirð [inga] í vor að Friðriksg
[áfu], sér í lagi síðan hið opinbera fór að skipta sér
af því c: sýslum., sem fór vestur að inqvirere í því. Hon-
um varð ekkert ágengt, því enginn mætti; en hérna f
dölunum komu tveir á þingstaðinn, hinir mættu svo
heima á Myrká og Steinsst[öðum].
Ég veit, að þér hafið fengið Þjóðólf eins og Rv.póst-
inn og Gest. Ég kalla Þjóðólf nauðsynlegt tímarit ásamt
Rv.póstinum og nú er einmitt kominn sá rétti rekspöl-
ur á þau, því bezt verður sannleikurinn kunnur eða ásig-
komulag hins rétta, að mælt sé með og mót. Einn mik-
ill maður enskur mælti eitt sinn: „Dersom vi ikke
havde Opposition, burde vi skabe os en.“
Ábyrgðarmaður Þjóðólfs kom hér í sumar og gisti
hjá mér nær því viku. Hann fór fram í fjörð. Að sunn-
an kom hann úr Borgarfirði, yfir Grímstunguheiði of-
an Vatnsdal, út á Skagastr. og norður á Hofsós og að
Enni, þaðan yfir Heljardalsheiði og hingað.
Sra Sveinbjörn* er einhver með uppbyggilegustu
mönnum ég hefi átt tal við og mér fannst sannkristinn
í anda sínum. Nokkrir af höfðingjum vorum hafa ímu-
gust á honum, eru kannski hræddir við beryrði hans.
Hafið þér ekki lesið Norðurreiðina í Þjóðólfi, og sér
í lagi niðurlag hennar?
Mælt var, að assesor Jónassen** mundi vilja verða hér
amtmaður, en hann synjar fyrir og vill hverfa aftur suð-
ur, þykir dauflegt hér hjá því sem í Rv. Hann á mörg
börn, hverra menntun hann kostar mikið, sér í lagi væri
hann ekki í Rv. við barnaskólann og hinn skólann.
Það eru nokkrir hér, sem vilja fara að efna upp á
prentsmiðju hér á Norðurlandi, svo við sjálfir getum
látið prenta það við æskjum og nauðsynlegt álízt og
* Sveinbjöm Hallgrímsson, prestur stofnaði Þjóðólf 1848.
Var síðast prestur í Glæsibæ 1860—63.
** Þórður Jónasson, yfirdómari var settur amtmaður eftir
lát Gríms amtmanns Jónssonar 1848. — K. B.
148 Heima er bezt