Heima er bezt - 01.04.1964, Side 17
þar á meðal tímarit. Mér sýnist, að við Norðlendingar
séum á eftir hinum fjórðungunum í sumu tilliti, t. a. m.
með jarðyrkju, túngarðahleðslu m. fl., þá þilskipabrúk-
un, og er raun til þess að vita, því heldur sem Norður-
land er þó af Náttúrunnar höfundi engu síður úr garði
gert en hinir fjórðungarnir.
Hér kom maður í sumar á jagt 10 lesta stórri vestan
úr ísaffirði], Ásgeir Ásgeirsson að nafni. Hann vildi
koma í félag við menn um verzlun, svoleiðis að menn
ættu sjálfir skip og færu á því landa á millum með vör-
ur sínar og keyptu fyrir þær aftur. Ég vildi þetta fegin-
samlega, en enginn þorði að áræða þetta, svo líklega
ferst það hér fyrir. ísfirð [ingar] voru nær því búnir að
ganga í félag hér um, en verzlanirnar komu þeim til að
ganga aftur af trúnni. Mælt er, að þeir á Breiðafjarðar-
•eyjum muni þó ætla að koma þessu á.
Því var miður, að ég var ekki nær yður, annars skyldi
ég hafa farið til yðar fystra manna um þetta fyrirtæki,
og ég gjöri mér vissa von um, að þér hefðuð hlaupið
undir baggann það hefðuð kunnað. Margir tala um ein-
olom verzlunarinnar, en þá ráðast á í að breyta henni,
þá hverfur ailur hugur.
Lausakaupmenn, sem voru hér í sumar, sér í lagi
Hansen, sem gaf og góða prísa t. a. m. upp og ofan frá
10 til 16 rd. á hverjum 100 rd. við hann var skipt betur
en í landi.
Hvernig lízt yður á aðgjörðir alþingis núna? Mönn-
um þykir, að þeim verði skrafdrjúgt og oft um það
minnst er ívarið. Ég hef átt tal við einn þingmanna —
ekki Stefán* — um aðgjörðir þingsins og sér í lagi um,
hvort nokkur sérleg alúð og áhugi fylgi þar gjörðum
manna og synjaði hann þess, þókti léttúð, flokkadrátt-
ur og hlutdrægni ráða þar of miklu. Hann taldi sra
Hannes** eins og Jón Sigurðsson skara langt fram úr öll-
um og ekki sízt með einurðina og standa fastur fyrir,
hvað sem á gengi, þar sem margir hinna færu að því,
er hugsuðu, að hinum meiri mönnum og stjórninni bezt
hugnaðist. Stiftamtm. ávann sér mikinn og góðan orð-
stír hjá þingmönnum. Hann þykir fágætlega þjóðlegur
°g þegar orðinn kunnugur ásigkomulagi landsins.
Þér stingið nú þessu í vasa yðar, sem um þingið er
sagt etc.
Þegar annir eru úti í haust, er áformað að halda hér
fund um, hvernig bezt mundi haga að koma hér á
prentsmiðju og gangi hennar. Menn ætlast til að gjafa
verði leitað um allt norður- og austur umdæmið þar til.
Prentsmiðjan fyrirslegin að höfð sé hérna á Akureyri,
etc. etc.....
Heilsið hjartanlegast frá mér konu yðar elskulegri og
börnum, samt foreldrum yðar.
Ég er ávallt yðar manndygða skuldb. elsk. vinur og
heiðrari.
B. Jónsson.
* Stefán Jónsson á Reistará.
** Hannes Stephensen á Innra Hólmi.
3. BRÉF.
Akureyri, 27. maí 1850.
Mikilsvirti og elskuverði vinur minn!
Af því sem Jón kallinn í Neðra-Haganesi er nú hér
staddur, þykir mér óvirðing að því að nota ekki því-
líkt tækifæri til að heilsa upp á yður bréflega og yðar
góðu konu. Ég þakka ykkur þá ástsamlegast og skyld-
ugast velgjörðir ykkar og alúð, sem mér er æ minnis-
fast, og sakna jafnframt, og vildi því geta verið horf-
inn á sömu stöðvar og áður, ef ekki sannfæring mín
teldi svo um fyrir mér, að ég ef til vildi fengi betra
færi á hér en ytra að vinna öðrum í hag, ekki aðeins í
verzlunarlegum skilningi, heldur í þeim, sem nú plag-
ast að kalla þjóðlegum.
Miklar eru nú orðnar hreyfingar í landi voru, og væri
því óskanda, að þær leiddu til góðra afdrifa. Þetta tíma-
bil, sem nú er, er víst eitthvert hið merkilegasta í tilliti
til tækifæris þess það frambýður, og skiptir miklu,
hvernig tekst að fara með það.
Nú mun vera búið að velja menn til þjóðfundarins
hér í sumar, yfir allt land, og fréttist því bráðum, hverj-
ir hafa verið hinir útvöldu. Hér í sýslu eru þeir bræð-
ur kjörnir: sýslum. E. Briem og timburm. O. Briem. I
N.s. eða suðurpartinum* Jón á Múnkaþverá og Jón
bóndi Jónsson á Grænavatni, bróðir madame Hólmfr.
á Hvanneyri.** Úr Norðurpartinum*** hef ég enn ekki
frétt. í Skagafirði er yður kunnast. Líklegast munu þeir
eftir sögn hafa orðið upp á teningnum alþm. Stephan
á Reistfará] og Jón Samsonarson, eða sr. Benedikt,
fyrst að sýslum. yðar, því miður, var ekki fáanlegur.****
Mér þykir í sannleika furða, að þér skylduð komast
hjá því að verða valinn til þingmanns, af því sem það
er meining mín, að þér væruð einmitt, meðal annarra
góðra, er þér eruð gæddir með, sjálfsagðir þartil, og
ekki á leikmönnum í Skagaf. neinum betri völ. Þetta er
hreinskilin sannfæring mín, og ég vildi óska, að þetta
gæti þá við næsta tækifæri rætzt, þótt mönnum sæist
yfir yður núna.
Ýmislegar eru meiningar manna og álit um, hvemig
bezt mundi hagað til stjórnarbreytingum framvegis, en
Guð einn veit, hvað okkur er hagkvæmt, og það eru
einu úrræðin, að biðja hann að leiða oss í allan sann-
leika, en af því mannsins ákvörðun er svo háttað, að
* Þ. e. Norðursýslu; suðurparturinn: Suður-Þingeyjarsýsla.
- K. B.
** Madama Hólmfríður, þ. e. kona Jóns pr. Sveinssonar, er
síðast sat á Mælifelli. Séra Jón var um þessar mundir prestur
á Hvanneyri í Siglufirði.
*** Þjóðfundarmenn N.-Þing. voru bréfritarinn og sr. Björn
Halldórsson í Laufási.
**** Stefán á Reistará Jónsson, alþm., síðast á Steinsstöðum.
Jón Samsonarson var fyrsti þingmaður Skagfirðinga eftir
endurreisn Alþingis 1845. Séra Benedikt, átt við Benedikt
Vigfússon, prófast á Hólum. Sýslumaður Skagfirðinga var um
þessar mundir Lárus Thorarensen.
Heima er bezt 149