Heima er bezt - 01.11.1964, Síða 25

Heima er bezt - 01.11.1964, Síða 25
BENEDIKT GISLASON FRA HOFTEIGI: Austfirzk skáld a ustfirzk skáld og rithöfundar heitir bók sem fyr- /\ ir skömmu er komin út og er eftir dr. Stefán / 'w. Einarsson prófessor. Er hér skemmst af að segja, að þetta er eitt merkilegasta og sérstæðasta bókmenntasögulegt rit, sem gjört hefur verið í þessu landi. Fer þar allt saman, vönd- uð vinnubrögð í heimildakönnun, efnisvali, hugþekkur og lipur stíll og fullur og frjór skilningur á viðfangs- efninu, hinum sögulega anda, sem þetta efni, er hér er unnið úr, hefur að geyma, með þeirri niðurstöðu sem enginn mælir á móti, að allt andlegt líf hvílir á sögunni. Hér er samfellt efni fyrir hendi, og þó í mikilli fjöl- breytni og óvíða, ef til vill hvergi, í slíkum mæli sem hér, en það er skáldskapur Austfirðinga, öldum saman sem geymzt hefur á Landsbókasafninu og hér getur ekki orðið gjörð grein á. Bók dr. Stefáns bætir úr því, en þótt hún sé 255 blað- síður, getur hún þó ekki flutt nema lítinn útdrátt úr þessum skáldskap, en því fyllri grein á skáldunum, heimildum um verk þeirra og ævi. Varð þó að hafa það í styttra lagi, en vel hefur dr. Stefán leyst þennan vanda af hendi. Svo mikið efni liggur hér fyrir hendi, að mörgum bindum mundi nema í útgáfu. Gegnir bók dr. Stefáns hér tvennu hlutverki. Hún er bæði sýnibók þessa efnis og fyrsta bindi og grundvallarbók fyrir frekari útgáfu, bæði á efnishlið og fræða, bæði skáld- skapar og skálda. Hér er gjörð grein á 97 skáldum, sem fædd eru frá því á 16. öld og fram langt á þá 19., en nær ekki til núlifandi manna. Er skáldatalið milli tveggja Sigurða. Sigurðar blinds, fæddum líklega litlu fyrir 1500, og Sigurðar Baldvinssonar, f. 1887, en þá er gjörð lausleg grein á fáeinum mönnum. Aftast í bókinni er svo hinn greinargóði og snjalli ritdómur höfundar um Austfirzk ljóð frá 1949. Er þessi bók hin 6. í bókaflokki, sem Sögusjóður Austfirðingafélagsins í Reykjavík, undir forustu Hall- dórs Stefánssonar fyrrv. alþm., hefur séð um útgáfu á og aðallega snertir sögu Austurlands og verður nú hin síðasta, því jafnan hefur útgáfa þessi starfað við lítið ástríki þeirra, sem hún átti að gagna og hefur gagnað. En sagan er vön að eldast undir sína tign, og munum við, sem í þessu höfum staðið, kveðja þessa garða með sæmilegri þreytu að verkalaunum, svo sem vera ber, og gleyma því á hverja við treystum. Stendur þó þetta á mína ábyrgð en ekki annarra, sem hér eiga hlut að máli. Veit ég, að þeir einir hafa eftir að sjá, sem misstu af sínum tækifærum. Þessa bók má kannske rekja til þess, að stuttu eftir að ég kom til Reykjavíkur, sagði Páll Eggert Ólason mér, að á safninu væri mikill kveðskapur eftir Aust- firðinga, öldum saman. Sagði hann að þetta bæri af öðr- um landshlutum, bæði um magn og efni. Kveðið væri bæði af embættismönnum og almúga, og um allan fjórð- unginn, og kveðskapurinn sýndi í mörgu meira frjáls- ræði í hugsun, en þá hefði verið í fari þjóðarinnar al- mennt. Ég kynnti mér nú þetta efni, svo sem ég hafði föng á með aðstoð Páls, sem lét mig hafa númer á hand- ritunum í safninu, því allt var honum þaulkunnugt þar innan dyra. Páll sagði satt, og við gáfum þessu nafnið, hinn Austfirzki skáldaskóli, og bráðum varð það, að Páll hafði ekki við það að athuga að ég taldi einkun hans vera „húmör“. Ég skrifaði þátt um eitt af þessum skáldum, Hallgrím Ásmundsson, í ritsafn Sögusjóðsins, sem heitir Austurland, og neytti þess hvorutveggja að tala um skáldaskólann og einkenni hans, húmörinn. Auk þess komst ég í útvarpið með lítilsháttar kynningu á 20 þessara skálda. Þetta varð allt til þess að nokkra kynningu vildum við í Sögusjóðsstjórninni gera á þessu sögulega efni fyrir Austurland, en í heild var það okk- ur með öllu ofviða. Halldór Stefánsson, sem borið hef- ur hitann og þungan af útgáfustarfseminni, og ritað mest í bækur félgsins, sumar einn, fékk nú Stefán Ein- arsson dr. og prófessor í Baltimore, til að sinna þessu efni, og var hvorutveggja, að Stefán er Austfirðingur og hafði áhuga og þekkingu á þessu efni. Hann dvaldi svo heima eitt sumar og vann að heimildakönnun á Landsbókasafninu. Sat hann þar með fjallháa staflana af bókum Austfirðinga. Stefán lauk við bókina á nokkr- um árum og var hún ígripaverk hans, á sama tíma og hann reit sína stóru bókmenntasögu. Nú var eftir að koma bókinni út. Það tók eins langan tíma og heims- styrjöldin síðari og mátti segja eins og karlinn „það hafðist, þrátt fyrir það að til er Menningarsjóðsútgáfa". Kom nú bókin út á forlagi Odds Björnssonar á Akur- eyri i hinni vönduðustu útgáfu, og eiga Austfirðingar þar þakkarskuld. Og hefði formaður útgáfunnar ekki Heima er bezt 409

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.