Heima er bezt - 01.10.1967, Qupperneq 11

Heima er bezt - 01.10.1967, Qupperneq 11
orð Matthíasar — ekki bara um Skagafjörð einan, held- ur um alla íslands byggð: „Blessuð sé þín byggð og saga, bæir, kot og höfuðból.“ Viðhorf til menningarmála og va.nda.mala nútímans á Suðurlandi. Ég fór út í þessa sálma við Jón Ingvarsson á Skipum og skrifaði upp eftir honum áht hans. Jón sagði: „Þegar talað er um menningarmál og menningar- ástand, mun í flestum tilfellum vera átt við skólaskyld- una og hversu setan á skólabekk er löng og almenn. Ekki er það þó að mínu viti algildur mælikvarði á menningar- ástand fólksins. Frekar hitt: hvert er hið almenna dag- far þess og hugarfar. Mér er sagt, að virtur maður með þessari þjóð, sem flutti ræðu á nýafstöðnu hestamannamóti á Rangár- bökkum, hafi vikið að því af nokkurri alvöru, að lík- lega hefði þeim foreldrum, sem áttu unglingana, sem lágu í valnum utan við skemmtistaðinn að loknum dans- leik nóttina áður, brugðið í brún við þá sjón. Og hon- um var spurn, hvar væri árangurinn af allri menntuninni og setunni á skólabekkjunum. Nú eru það síður en svo mín orð, að skólarnir eigi þarna sök á ófarnaði. En svo virðist sem börn og ungl- ingar gerist á síðustu tímum svallgefnari en nokkru sinni fyrr. Samt flökrar það ekki að mér, að nú uppfæðist í eðli sínu lakari mannsefni en á dögum Njáls, Jóns Lofts- sonar og Hallgríms Péturssonar. Ætli það sé ekki held- ur hitt, eins og jafnan áður, að þau séu börn sinnar tíð- ar. Áfengisneyzla fer nú ört vaxandi með þessari þjóð og dálæti á drykkjusiðum og drykkjutízku. Meira að segja bændaforystunni okkar þykir hlýða að hafa 80 til 100 manna vínbar í anddyri hallar sinnar í höfuð- stað landsins, þar sem eru til reiðu allar heimsins vínteg- undir, og allir bændur landsins skattlagðir árum saman, meðal annars til þess að þeir sem blóta Bakkus á þeim slóðum geri það við sem allra mestan íburð. Meðan ágirndarpúkinn leikur lausum hala og revnt er að trylla og æsa til óhófs er spillingin á næsta leiti. Ég hef alla tíð álitið að vitið og skynsemin séu sú dá- samlegasta guðs gjöf, sem okkur er veitt. Þess vegna hef- ur mig alltaf undrað, hvað margir — jafnvel vel gefnir menn — fara gálauslega með þá guðs gjöf í sambandi við áfengisneyzlu, sem engum veitir þó hamingju og eng- inn sleppur jafngóður frá, sé hann þar þátttakandi. Það fer fyrir allt of mörgum eins og ógæfumanninum, sem andartak hugsaði af viti frammi fyrir kráardyrunum og virti þær fyrir sér og sá ekki að þær væru á neinn hátt frábrugðnar öðrum dyrum. Þó fann hann til þess, að innan þessara dyra hafði hann skilið eftir lífshamingju sína, konu sinnar og barna. Þjóðhátíðardagur íslands 17. júní er mér mestur há- Heimilisfólkið á Skipum við heyvinnustörf. tíðardagur ár hvert. Ég hlusta og les, og það bezta sem fram kemur þann dag er mér ótrúlega mikils virði. Og fátt hef ég séð, sem ég væri stoltari af að geta mælt til þjóðar minnar á þeim degi frá eigin brjósti en kvæði Guðmundar Inga Kristjánssonar á Kirkjubóli: „Segðu honum það“, sem birtist í einu dagblaði Reykjavíkur 17. júní 1967. Þar er allt sagt, sem þarf að hyggja að. Og ef ég ætti mér óskastund, þá yrði ósk mín tvímælalaust sú, að prestum, kennurum, blaðamönnum, skáldum og rit- höfundum yrði veittar svo voldugar raddir, að þeim tækist að ná eyrum allrar þjóðarinnar með boðskap í þeim anda, sem þetta kvæði inniheldur. Sannleikurinn er sá, að það sem okkur skortir mest, það er ættjarðar- ást og þjóðhollusta. Við þurfum á vakningu að halda.“ BRÉFASKIPTI Ragnhildur Þórðardóttir, Grund, Svínadal, Austur-Húnavatns- sýslu. óskar eftir bréfaskiptum við pilt eða stúlku á aldrinum 15—17 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi. Heima er bezt 347

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.