Heima er bezt - 01.10.1967, Side 36

Heima er bezt - 01.10.1967, Side 36
höfuðsitja ærnar, þær voru svo ótrúlega lúmskar, er þær ætluðu sér að komast á fjallið. Þá voru sífelld hlaup og hó og köll og hundsgjamm. Alltaf reyndi einhver ærin að laumast burt, og tækist henni það voru skammirnar vísar fyrir vesalings smalann. Og kostað gat það tveggja þriggja daga leit á fjöllun- um að finna strokufáluna. Á haustin eftir að lömbin höfðu verið tekin frá mæðrum sínum og rekin í kaupstað til slátrunar, voru ærnar mjólkaðar heima, og þurfti þá að smala þeim á hverjum degi heim í kvíar. Væri ekki búið að heyja útengið, sem oft var, rak engjafólkið ærnar inn í helli, sem tilbúinn var frá náttúrunnar hendi — sem rétt fremst frammi, en þrengdist óðum er innar dró. Þar hafði fyrir langa löngu verið hlaðinn grjótgarð- ur þvert yfir, svo ærnar kæmust ekki inn í sjálfan hellinn. Mjólkin var síðan flutt heim í brúsum ofan á milli bagganna. Það var snemma sumars að grönn og gelgjuleg fimmtán ára telpa reið fram dalinn á brúnum hesti með gamlan hund sitjandi á hestlendinni. Það var ósköp venjuleg sjón að sjá þessi þrjú saman á ferð í dalnum. Aldrei reið hún í hnakk, það þótti óþarft. Með beizlið um öxl hélt hún að heiman, sagði Snata gamla að sækja Brún sem hann gerði, ef hann nennti því. Það var ekkert gaman að eiga við hann Brún, hann bæði beit og sló, ef honum mislíkaði, jós ef eitthvað út af bar, og hafði það líka til að prjóna. Snati gamli gat samt verið furðu iðinn við að bíta í hælana á Brún, svo hann hafði ekki stundarfrið, og af margra ára reynslu vissi hann að bezt mundi að halda heim á leið, og eitthvað gott fengi hann í munninn, um leið og mélinu var bmgðið upp í hann og beizlinu smeygt yfir höfuð hans. Stundum lá telpan fram á makka hestsins, stund- um sneri hún sér öfugt. Brún gamla var alveg sama. Hann þræddi götuslóðann fram dalinn samvizkusam- lega, fékk sér við og við væna tuggu úr götubakkan- um. Stundum nam hann alveg staðar, en þá hottaði telpan á hann, því þó hún tæki ekki alltaf eftir hve hægt hann fór, varð hún strax vör þess næmi hann staðar. Þá rölti Brúnn aftur af stað, dæsti, blés og snörlaði hátt og setti upp leiðindasvip. Það orð lá á, að telpan gæti gert hundlatan hvaða gæðing sem væri. Ástæðan væri sú að henni lá aldrei svo mikið á, að hún léti ekki hestinn ráða ferðinni. Vaggandi hreyfingar hægagangsins komu ímynd- unarafli hennar á hreyfingu. Hún naut þess að láta sig dreyma. Það kostaði enga peninga, en það gerðu aftur á móti allir hlutir í veruleikanum. I draumum sínum komst hún í skóla, var langdug- Iegust að læra, átti fallegustu fötin og gat veitt sér allt það sem hugurinn girntist. Og það sem bezt var, gefið þeim sem fátækir væru með sér. Hún vissi að þessir draumar hennar voru víðsfjarri veruleikanum, en hvað um það, þeir voru hinn skemmtilegi hluti tilveru hennar. Hjá Málfríði stjúpu sinni fékk hún þann vitnis- burð, að hún væri „sofandi sauður“, en þó furða hvað undan henni gengi úti. Inni gerði hún helzt ekki neitt nema prjóna, en legið gat hún í bókum, hvenær sem hún sá sér færi. Stjúpan gat þess ekki, að telpan var höfð í öllum útiverkum eins og strák- ur allan ársins hring, og kom sjaldan inn fyrr en að kvöldi og þá dauðuppgefin. Heldur ekki var sagt frá, að aldrei tók telpan sér svo bók í hönd að hún tæki ekki prjóna sína líka og potaði á meðan hún las. Telpan átti aldrei stund fyrir sig sjálfa og hafði fyrir löngu sætt sig við það. Nú síðan hún fór að hirða önnur fjárhúsin mikið til ein, dundaði hún oft lengi í fjárhúsunum, sat á garðabandi, meðan ærnar átu og lét hugann reika um lönd og álfur drauma- heima sinna. Sjálf átti hún eina kind. Manga gamla vinnukona hafði gefið henni hana þegar hún fermdist. Hún hét Sníkja og var heimalningur. Telpan horfði með ást og aðdáun á þessa fyrstu séreign sína, sem átti að verða upphafið af auðlegð hennar, því rík ætlaði hún að verða. Manga bjó sér í lítilli baðstofu sem innangengt var í úr bænum, ef Manga kærði sig um, en venju- lega var sú hurð harðlæst, og sú gamla gekk heldur hálfhring í kringum bæinn en opna hurðina. Þarna var hennar konungsríki, sem aðeins útvaldir fengu að stíga fæti sínum inn í. Manga hafði aldrei giftst, en átt einn son sem dó fárra ára gamall. Um hann talaði hún aldrei, en tók ástfóstri við öll börn, sérstaklega þau er fáa áttu að. Hún hafði verið vinnukona hjá afa og ömmu telp- unnar og fóstrað móður hennar, svo það var engin furða þó hún liti til með Völu, en svo hét telpan. Á Hamri bjuggu faðir telpunnar og stjúpa ásamt átta börnum þeirra. Faðir hennar hafði aldrei sýnt henni nokkra hlýju og aldrei getað litið hana réttu 372 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.