Heima er bezt - 01.10.1967, Side 19
ÞORSTEINN MAGNÚSSON:
ónin
a
eystra
að er upphaf þessa máls, að hinn 23. janúar árið
1918 gekk ung kona, Bergrún Árnadóttir, Steins-
sonar, útvegsbónda og fyrrv. hreppstjóra og
konu hans Ingibjargar Jónsdóttur, Sveinssonar,
bónda í Litluvík í Borgarfjarðarhreppi og Jóhann
Helgason í hjónaband. Foreldrar Bergrúnar bjuggu þá í
Bakkakoti í Bakkagerðisþorpi en höfðu áður búið í
Brúnavík í Borgarfjarðarhreppi. Jóhann Helgason er
sonarsonur Jóns Sigurðssonar, fræðimanns í Njarðvík í
Borgarfjarðarheppi, sem kallaður var „hinn fróði“ og
varð þjóðkunnur rnaður um sína tíð fyrir gáfur hans og
fróðleik.
Bergrún Árnadóttir fæddist í Brúnavík við Borgar-
fjörð hinn 3. október árið 1896, en Jóhann bóndi henn-
ar í Njarðvík í Borgarfjarðarhreppi hinn 30. desember
árið 1891. Þessi mætu hjón áttu því bæði merkisafmæli
á sl. ári, er Bergrún átti 70 ára afmæli, en Jóhann 75 ára.
Og þó er saga þeirra Óshjóna, Bergrúnar og Jóhanns,
að mínu viti enn þá merkilegri en árafjöldinn, sem þau
eru búin að lifa og starfa gefur tilefni til út af fyrir sig,
Þótt þeirri sögu verði því miður ekki gerð þau skil hér,
sem efni stæðu til frá þeirra hálfu.
Það mun nú ekki talið yfirleitt til stórtíðinda, þótt
karl og kona felli hugi saman og fullnægi því eðlilega og
sjálfsagða hlutverki, að stofna sitt eigið heimili og eiga
á þann hátt meiri eða minni þátt eftir atvikum og upp-
lagi í því að renna stoðum undir þá miklu byggingu,
sem einu nafni kallast þjóðfélag. En þáttur þeirra Berg-
rúnar og Jóhanns á Ósi í þeirri uppbyggingu hefur orð-
ið með þeim glæsibrag og ntyndarskap, að fágætt má
Hjónin á Ósi og börn þeirra.
Heima er bezt 355