Heima er bezt - 01.10.1967, Page 20

Heima er bezt - 01.10.1967, Page 20
Hjónin á Ósi í Borgarfirði eystra. telja og því þess verð, að þess sé að nokkru getið. En þótt sú saga, sem við blasir opinberlega og öilum kunn- ugum sjáanleg og áþreifanleg sé mikil saga, fögur og til mikillar fyrirmyndar, vil ég segja, að með henni sé ekki öil sagan sögð og er þó vissulega hetjusaga. Hin sagan — sagan bak við söguna —, sem ég vil leyfa mér að nefna svo, innri persónusaga þessara hjóna sem óneitanlega er mikil baráttusaga en jafnframt sigurganga er og verður fyrst og fremst sameiginlegt leyndarmál þeirra og að ég hygg hvorki nauðsynlegt né æskilegt, að óviðkomandi gangi mikið um þann helga reit minninganna, sem ég get hugsað mér að það væri þessum hjónum. En þrátt fyrir það er sú saga ekki án vitnisburðar, því það er mikið afrek af hálfu einna hjóna, sem ekki eru borin til arfs að veraldlegum verðmætum, að skila dagsverki, sem þau Óshjón, Bergrún og Jóhann, hafa gjört. En þau hafa hlotið í vöggugjöf þær erfðir, sem reyndust þeim undravel í harðri og oft óvæginni lífsbaráttu: eigin at- Fjórir cettliðir, talið frá vinstri: Helga ]áhannsdóttir, Bergrún Arnadóttir, Bergrun Jóhanna Ólafsdóttir, Helga Aradóttir. Bergrún Arnadóttir og Bergrún Jóhanna Borgfjörð. orku, manndóm og ábyrgðartilfinningu. En þessir 3 eiginleikar þessara hjóna, sem ég nefndi hér munu löng- um haldbetra veganesti á h'fsleiðinni, heldur en þótt menn séu bornir til auðs og allsnægta. Það sýnir óum- deilanlega saga þeirra Bergrúnar og Jóhanns á Ósi. Þau hafa skilað þjóðfélaginu 12 mannvænlegum þegnum og einum betur þó, því auk sinna eigin barna ólu þau upp dótturdóttur sína og nöfnu, Bergrúnu Jóhönnu Borg- fjörð. Það er því augljóst mál, að ekki hafa þessi hjón að jafnaði hvílzt á mjúkum hægindum, einkum þegar þess er jafnframt minnzt, að einmitt mestan hluta þess tímabils, sem þau stóðu í hinni hörðu baráttu við að koma sínum stóra barnahóp til þroska, bar upp á þann tíma, er heimskreppan milda á milli tveggja heims- styrjalda geisaði vítt um veröld og fór vissulega ekki fram hjá hólmanum okkar hér við yzta haf. Það lýsir reyndar betur en langt mál, hversu undra vel þetta bless- aðist, hvílíkur er manndómur þessara hjóna. Og þetta gjörðist á þeim tíma, er efnahagsmálum var þann veg háttað í þjóðfélagi okkar, að á býsna mörgum heimilum reyndist full erfitt að hafa til hnífs og skeiðar, þótt þar væri lítil, eða jafnvel engin ómegð. En þau sýndu það í verki, Bergrún og Jóhann á Ósi, að „mikið má, ef vill“. Enda hefur lengi verið og er ennn og ekki að ástæðu- lausu mjög á orði haft hið óvenjulega þrek og harð- fylgi Jóhanns Helgasonar. Meira að segja Elli kerlingu virðist ætla að reynast fangbrögðin við hann óvenjulega erfið, því enn gengur hann, 76 ár að aldri að hvers kon- ar stritvinnu, sem býðst og lætur hvergi sinn hlut eftir liggja, beinn í baki, snar í snúningum og hvergi kulsæll, því það hef ég fyrir satt, að hann láti sjaldan á sig vettlinga og höfuðfat þó enn sjaldnar. Bergrún hefur heldur ekki látið sinn hlut eftir liggja um að sjá heimili þeirra farborða. Má því til sanninda geta þess, að þótt hún hafi lengst af ævi sinni alls ekki 356 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.