Heima er bezt - 01.03.1973, Blaðsíða 6
Systkinin í Asum: Sveinn, Stefania, Þorvaldur.
veikur og hugurinn var allur heima í gull-Hreppunum
við bóndans önn og starf.
Árið 1917 giftist Ágúst Kristínu Stefánsdóttur frá
Ásólfsstöðum og tók þá við búi af foreldrum sínum eins
og fyrr er sagt.
Kristín í Ásum var glæsileg kona og annáluð ágætis
húsfreyja, kunn að manngæzku og myndarskap, sem
setti svip virðingar, reglusemi og híbýlaprýði á heimilið
bæði innan og utan bæjar. Þau Ágúst eignuðust þrjú
börn, þau eru: Stefanía húsfreyja í Ásum, gift Guð-
mundi Ámundasyni frá Sandlæk, Sveinn, kennari og
Þorvaldur, fulltrúi hjá ríkisféhirði. Auk þess ólu þau
upp frá 6 ára aldri bróðurdóttur Ágústs, Guðbjörgu
Einarsdóttur. Hún er nú húsfreyja í Reykjavík.
Kristín í Ásum andaðist árið 1963.
Ásar eru með notadrýgri jörðum í Eystri-Hrepp,
metin á 20,6 hundruð í jarðamati 1861. Hún hefur sömu
kosti og flestar Hreppajarðirnar yfirleitt, þar mátti reka
farsælan búskap á gamla vísu, meðan sauðfjárbeit var
ein aðaluppistaða í rekstrarafkomu búsins. Og hún var
líka vel fallin til að taka þeim margvíslegu umbótum,
sem gerðar eru í framfaraátt á vélaöld. Þetta hvort
tveggja kom í hlut Ágústs í Ásum, því að búskapartíð
hans spannaði yfir þessi aldahvörf í íslenzkum sveita-
búskap. Meðan hann bjó, urðu hin miklu tímamót í
þessu efni með öllum þeim stórfelldu breytingum, sem
vélvæðingin hefur haft í för með sér og óþarft er að
lýsa. Og Ágúst í Ásum er einn af þeim mörgu bændum,
sem með mikilli giftu hafa stýrt fieyi sínu yfir ólgu
þessara byltingarára og komið því heilu í höfn tryggrar
afkomu, ómetanlegrar hagræðingar og mikillar fram-
leiðslu í þágu þjóðarheildarinnar. Með því sannast enn
sem fyrr, að bóndi er bústólpi — bú er landstólpi — því
skal hann virður vel.
Ágúst húsaði sína fallegu jörð með miklum myndar-
skap, þótt meira hafi verið gert að síðan, ræktaði hana
og endurbætti hana á allan hátt, tók í þágu búskaparins
fullkomnustu tæki hvers tíma, því að vel var fylgzt með
öllum nýjungum — líklega hvergi betur heldur en í góð-
’sveitum Árnesþings, þar sem svo mikið reið á að geta
78 Heima er bezt