Heima er bezt - 01.03.1973, Blaðsíða 26

Heima er bezt - 01.03.1973, Blaðsíða 26
loksins heim þá bóndinn snýr. Af því hann var aldrei ragur, allt of seint til lands hann flýr. Öldur dans með ströndum stíga, stormur þeytir lúður sinn. Ofan í hafið hlaut að síga hlaðinn fiskibáturinn. Bylgjur rísa, bylgjur hníga — beljaði nætur vindurinn. Ein á strönd í aftanblænum, ekkjan föl og döpur stóð. Fjögur á hún börn í bænum, björt á svip og æskurjóð. Er sem hver ein alda á sænum ymji henni sorgarljóð. Hitt kvæðið, sem Jóna sendir, þarf athugunar við, og fresta ég því birtingu. — Þessi þáttur okkar hefur verið með heldur dapurleg- um blæ að þessu sinni, svo ég hygg réttast að hafa hann ekki lengri. En áður en ég lýk máli mínu langar mig til að fullvissa hana Hildi Heiðdal Hjartardóttur, Arn- geirsstöðum, Fljótshlíð, um að lagið við Sumri hallar (Darling I am growing old) passar ágætlega, ég vildi bara að hún gæti heyrt mig syngja það. Ég þakka henni velvildarorðin, allt slíkt kitlar vesaling minn. — Jórunn Bjarnadóttir, Eskifirði, segist geta sent mér fleiri kvæði ef hún fái hvatningu til þess. Guð minn góður, það er nú það, sem ég af veikum mætti er að hvetja alla lesend- ur til að gera. Fleira verður þetta þá ekki að sinni. — Kær kveðja. E.E. BREFASKIPTI Jeg er en Norsk gutt pá 22 ár og som 0nsker brevbytte med Islandsk jente pá 20—25 ár. Jeg skal pá sommerferie til Island og visst snar- lig hendvendelse sá kan vi treffes da. — Utseende: Mprkeblond, blá 0yne, h0yde 1,87 m. 0nsker bilde!! Adr. Karl Einar Haukaas, Husbáten Aker II, Kongshavn Oslo I. Jóhanna Óladóttir, Húsmæðraskólanum, Varmalandi, Borgar- firði óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur 17—20 ára. Sesselja Sveinsdóttir, Húsmæðraskólanum, Varmalandi, Borgar- firði, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur 17—20 ára. Sigríður Þórhalla Óladóttir, Sólgarði, Borgarfirði eystra, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 12—14 ára. Æski- legt er að mynd fylgi fyrsta bréfi. Heiðrún Sigurðardóttir, Görðum, Hellissandi, Snæf., óskar eftir bréfaskiptum við drengi og stúlkur á aldrinum 13—14 ára. Auður SigurÖardóttir, Görðum, Hellissandi, Snæf., óskar eftir bréfaskiptum við drengi og stúlkur á aldrinum 12—13 ára. 6> * 4 & I í- íS> I I- I t * t * i I I I I i I í I- i Helgi Gíslason, Hrappsstöðum: YERMIREITUR Sú hugsjón fæddist hrein og skær að hlúa að ungum gróðri. Sú liðsemd þörf til lífsins nær og leggst með vitund hljóðri. Oft vermdust lítt hin veiku blóm í vorsins kulda næðum og þoldu dapran dauðadóm og dóu á berum svæðum. Því oft var þörf á vermireit sem vermdi sprotann mjóa til sjálfs síns þroska í sólarleit svo hann næði að gróa. Á mannkynsandans akurrein er ærið starf að vinna að planta og styðja grein við grein að góðum stofnum hlynna. Að vekja að glæða vaxtarmátt svo veljist stofnar beinir að hefji manndóms merkið hátt á morgni lífs sem flestir. 4 3 4 1 3 i ■3 | 3 f 4 3 4 s 4 3 4 át 4 3 4 * t * 4 | 4 3 4 3 4 * 4 I 3 4 3 Frásöguþættir af bæjum í Geiradal Framhald af bls. 91 ----------------------------- dýrleika. En að nýju mati 1861, 11,9 hundruð. Tún var harðbalalegt og ekki grasgefið. Engjaslægjur litlar en góðar. Sauðland gott á fjallinu og landkostir í betra lagi. Hlunnindi smávegis kópaveiði. Snemma á 19. öld átti Gróustaði Einar Jónsson dannebrogsmaður á Kollafjarðamesi í Strandasýslu. Einar Jónsson var göfugmenni. Sést það bezt á því, að árið 1823 gefur hann jörðina Gróustaði til framfæris fátækra í Tungusveit við Steingrímsfjörð. Mun slíkt hafa verið algjört einsdæmi á þeim tíma þegar smæl- ingjar og fátæklingar áttu sér fáa forsvarsmenn. Ekki veit ég nákvæmlega hve lengi Tungusveitungar nutu góðs af þessari gjöf Einars á Kollafjarðarnesi. En árið 1883 voru Gróustaðir komnir.í eigu ábúenda þar. Gróustaðir eru metnir í fasteignamati 1970. Land á 138,000,00 krónur. Hús á 893,000,00 krónur. Alls á 1031,000,00 krónur. Véltækt tún 1969 var 15,59 ha. Hýsing þar er góð, öll hús byggð úr varanlegu efni, steinsteypu. Raflýst með rafmagni frá heimilisrafstöð, sem gengur fyrir vatnsafli. 98 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.