Heima er bezt - 01.03.1973, Qupperneq 9
fengi, sem aflað var á ströndum Gallíu og Spánar. En
þessar sögulegu minningar eru ennþá stolt og unaður
þjóðarinnar. Á löngu vetrarkvöldunum hlýðir hún á
frásagnir af afrekum Gunnars og Bersa, eða vélráðum
Guðrúnar, eða ógæfusamri ást Helgu hinnar fögru og
Gunnlaugs ormstungu. Lesarinn þylur þær fyrir fólk-
inu, sem situr umhverfis hann við vinnu sína. Og nú á
allrasíðustu árum hefir þjóðrækni íslendinga, ahn á
þessum minningum, þvingað Danmörku til að ieyfa
endurreisn hins forna Alþingis, þó að í nýrri mynd sé
og á nýjum stað. Og ekki mun af kröfunum látið unz
réttur landsins til að stjórna sjálft málum sínum hefir
hlotið viðurkenningu.
Þjóðsiðir íslendinga eru einfaldir, og í rauninni þjóð-
siðir allra norrænna landa. Þeir eru ennþá einfaldari
fyrir það, að þar er í rauninni enginn stéttamunur.
Enginn er ríkur og varla nokkur maður sársnauður.
Hver maður verður að vinna fyrir sér, og vinna með
höndum sínum (þegar undan eru skildir fáeinir verzl-
unarstjórar í Reykjavík, og á einni eða tveim höfnum
úti á landi). Auður mundi ekki verulega lyfta nokkr-
um manni upp yfir almenning, og í rauninni eru engin
tækifæri til að neyta auðs, nema til þess að búa húsa-
kynnin þeim gæðum, sem á Englandi mundu teljast til
þæginda, sem ekki væri unnt án að vera. Því er það, að
ríkidæmi er ekki sérstaklega eftirsóknarvert (enda þótt
íslendingur vilji gjarna gera góð kaup, einkum þegar
hann er að kaupa hross), og glaðleg nægjusemi er al-
menn. Á bóndanum og vinnumanninum er naumast
unnt að sjá greinarmun, og sé pilturinn reglusamur, er
ekkert líklegra en að hann eignist að lokum dóttur bónd-
ans fyrir konu og taki við búinul. Engir þekkjast þar
hefðartiltar, nema hvað herra1 2 er sagt um biskupinn
og síra um prestinn, en ekkert er til samsvarandi Mr.
eða Mrs. hjá okkur. Ef þú ferð að hitta konu, berðu að
dyrum og spyrð hvort Valgerður sé heima, eða, ef þú
vilt tilgreina hana framar, spyrðu eftir Ingibjörgu
1 Stórglæpir eiga sér mjög sjaldan stað, og þó að þeir væru búnir
að reisa nýtt hegningarhús í Reykjavík, heyrði ég ekkert um
það, að þangað væri von vistmanna, og ekki er það efamál, að
þegar við komum í annað sinn til Reykjvíkur, eins og við
höfum ráðið með okkur að gera, munum við beiðast gistingar
í þessu nýreista húsi, því það er eina steinhúsið í Reykjavík
(að undanskildu húsi landshöfðingja) og stendur á fegursta
stað bæjarins.
2 Þá var Pétur Pétursson biskup er Bryce heimsótti ísland og það
mun lítt eða ekki hafa þekkzt, að hann væri herraður; siðurinn
var þá niður lagður, en hafði tíðkazt fyrr á öldum. Naumast
mun Hallgrímur Sveinsson hafa verið herraður, nema í Al-
þingisrímum. Þórhall Bjarnarson þarf varla að minnast á, og
þegar hinn forni og dálítið hégómlegi siður var endurvakinn
(eftir fráfall Jóns biskups Helgasonar) sagði við mig einn af
skólabræðrum hans og vinum, mikill merkisprestur: „Eg er
hræddur um að Þórhallur hefði sagt eitthvað gamansamlegt ef
við hefðum farið að herra hann.“ Skyldi Bryce í rauninni hafa
heyrt biskup herraðan, eða hafði hann þetta úr Biskupasög-
unum. — Þýð.
Bjarnadóttur, eða Þorvaldsdóttur (eftir því sem við á,
því um engan siðatitil er að ræða). Og konan ber
sama nafn frá vöggu til grafar, gift eða ógift, því
ættarnöfn tíðkast ekki. Hún tekur ekki nafn manns
síns. Þar sem nú konunni er veittur slíkur réttur, er það
dálítið kynlegt, að í öðrum efnum skipar hún óæðra
sess. Þannig situr húri að jafnaði ekki til borðs með
manni sínum og börnum, heldur gengur um beina og
borðar síðan einsömul. En annars virðast konur vel sett-
ar, þær hafa öll réttindi til þess að eiga eignir, ríða djarf-
lega um landið hvar sem þeim þóknast, og ekki heyrð-
um við neitt sem benti á hreyfingu í þá átt að afla kven-
réttinda, eða yfir höfuð til nokkurra umbóta á þjóð-
félaginu, og er þó vitanlega þess að gæta, að vankunn-
átta okkar í þjóðtungunni takmarkaði eftirgrennslanir
okkar. í einu efni hafa íslenzkar konur öðlast fyllra
jafnrétti en systur þeirra á meginlandi Evrópu. Þær
hljóta nákvæmlega sömu menntun sem karlmenn. Með
því að þar eru eðlilega engir skólar, þar sem vegalengd-
in milli heimilanna er tíðast margir kílómetrar, annast
faðirinn sjálfur um menntun sona sinna og dætra, og
þar við bætir máske presturinn, ef til hans næst, dálít-
illi latínu og dönsku. Stúlka lærir þannig allt það, sem
foreldrar hennar geta kennt henni, og hún kann jafn-
mikið í reikning sem bræður hennar, og er jafnfróð
þeim í fornsögunum. Það segir sig sjálft, að um kunn-
áttu í listum getur naumast verið að ræða. Málara-
list er þegar af þeirri orsök naumast möguleg, að þama
er í rauninni ekkert að mála; dans af þeirri ástæðu, að
sjaldan kemur saman nægilegt fjölmenni til þess að
dansað verði, og svo engin húsakynni nægilega rúmgóð
til þess; hljóðfæraleikur sökum þess, að slaghörpu er
ekki unnt að flytja út um sveitirnar, yfir flóa og urðir,
en flutningsæki ekki annað en hestbakið. Eigi að síður
komum við á afskekkt heimili (þess má geta, að húsið
var gott timburhús) við sjávarsíðuna, þar sem við nut-
um gestrisni í heilan sólarhring, og ekki einungis var
þar píanó, heldur voru þar líka nokkrar ungar stúlkur,
sem kunnu ágætlega að leika á það, og sömuleiðis á
gítar. Sjálfar sungu þær undir á fimm tungumálum, og
þótti okkur sem sænskan væri þeirra fegurst. Þarna var
umhverfið hið ömurlegasta sem hugsazt gat: brimrót
við hina miklu strandlengju framundan, en inn til lands-
ins var ófrýnilegur flói, og þar fyrir handan, í feikna-
fjarlægð, óvingjarnleg og ólöguleg fjöll. Ekki var nokk-
ur granni nær en í tuttugu kílómetra f jarlægð, og fólk-
ið sagði okkur, að stundum kæmi þar ekki gestur svo
mánuðum skipti. En það var svo kátt og glaðlegt sem
hugsazt gat. Og þó að við fengjum engar undirtektir
þegar við ympruðum á að dansað yrði, léku stúlkurnar
á hljóðfærin fyrir okkur allt liðlangt kvöldið í litlu
dagstofunni, en úti hvein vindurinn. Og hinn virðulegi
faðir þeirra (sem var einskonar allsherjar-kaupmaður
í þessum hluta landsins), og sýslumaðurinn, sem heima
átti langt í burtu, en rakst nú þarna inn, blönduðu púns
í ríflegum skálum og ræddu við okkur á margslungn-
um málblendingi um auðlindir íslands og möguleikana
Heima er bezt 81