Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1973, Qupperneq 19

Heima er bezt - 01.03.1973, Qupperneq 19
JÓN GUÐMUNDSSON, SKÁLDSSTÖÐUM: Frásögnþættir af bæjum í Geiradal GRÓUSTAÐIR vo heraia fornar sagnir að á Gróustöðum hafi fyrst byggt sér bæ kona sú er Gróa hét og beri býlið heiti sitt af henni, Gróustaðir. Eftir því sem þjóðsagnir segja kunni Gróa á Gróustöðum talsvert fyrir sér í fornum fræðum. Það var einhverju sinni að prestur var í Garpsdal sem átti kýrgripi marga, gengu þeir alloft í túninu og engjun- um á Gróustöðum. Þótti Gróu ágangur af og bað hún prest að hætta, að beita land sitt. En prestur sinnti því engu og lét nautfénað sinn ganga óhindrað áfram í landi Gróu. Sá þá Gróa að við svo búið mátti ekki standa. Og breytti hún öllum kúm prestsins í steina á holti því, sem síðan heitir Kýrsteinaholt og er á milli Gróustaða og Garpsdals, (sbr. Þjóðsögur Jóns Árnason- ar). Það skal haft í huga er sögn þessi er lesin að Gróu- staðir voru orðið byggt býli fyrir 1200 en prestar satu ekki Garpsdal fyrr en eftir 1400. Og líklega hefur þetta bara verið bóndi sem hefur sýnt Gróu ágengni sína. Því varla má ætla guðsmanni slíkt. Frá Gróustöðum lá fjallvegur yfir Heiðarbæjarheiði norður að Heiðarbæ í Strandasýslu. Þessi heiði liggur mjög hátt um og yfir 570 metrar yfir sjávarmál og þótti slæm yfirferðar og var því vörðum eigi haldið við á henni sem skildi. Munnmæli herma að á 17. öld eða snemma á 18. öld, hafi orðið úti í stórhríðarbyl á þess- um fjallvegi, 18 vermenn norðan úr Strandasýslu á leið sinni út undir jökul til sjóróðra. Eru sögð kennd við þessa menn mörg örncfni bæði sunnan og norðan heið- ar. Einn þessara manna á að hafa komist alla leið að Gróustöðum og kvatt þar dyra. Þegar komið var til dyra. Þá var spurt hvort maður væri úti? Svaraði hann og sagði. Maður er ég. — En svo ráðalaus var hann, að hann ráfaði frá dyrunum aftur. Og hvarf út í hríðar- sortann. Er talið að hann hafi gengið fram á ís á Gils- firði og drukknað þar. Engin skráð samtíma heimild er til um þennan atburð og eru því munnmælin ein, sem hægt er að styðjast við. Og enginn skyldi rengja þau að ástæðulausu. Því stundum eru þau traustari en skráð- ar bækur. Þeirra mórall eru örnefnin. Og ömefnin eru beztu lyklar sem til eru að vegum genginna kynslóða. Þó að sumir nútíma vísindamenn vilji ekki viðurkenna það. í upphafi þessa þáttar um Gróustaði er getið um Gróu þá sem sögð er hafa búið fyrst á Gróustöðum. Ekki er vitað um ábúendur á Gróustöðum næstu ald- irnar allt fram yfir 1700 og lengur. Um og eftir 1760 bjó á Gróustöðum maður er Jón hét og var Jónsson. Hann var lögsagnari og var í talsverðum metum. Um þær mundir var sýslumaður í ísafjarðarsýslu Erlendur Ólafsson á Hóli í Bolungavík. Honum varð það á, að hann sló smaladreng sinn, Sigurð Guðmundsson, svo fast að það högg dró hann til bana. Var höfðað mál gegn Erlendi út af þessu og fleiru. Var Jón á Gróustöð- um settur dómari í þessu máli og til að gegna sýslunni á meðan. Jón dæmdi Erlend frá embætti og Ólaf son hans einnig óhæfan til embættisverka. Sá dómur var bæði fyrir lögþingsrétti og yfirrétti dæmdur marklaus. (Því eigi þótti sannað að sýslumaður hefði ætlað af ásettu ráði, að ráða piltinn af dögum). Jafnframt var Jón á Gróustöðum talinn óhæfur til dómarastarfa. Og mun hans hróður hafa töluvert minnkað við þennan málarekstur. Jón Jónsson lögsagnari á Gróustöðum lézt 13. febrúar 1788. Og kunnum vér eigi meir frá honum að segja. Seint á 18. öld bjó á Gróustöðum maður sá er Björn hét Jónsson, kallaður Björn styngur. Það nafn var þannig til komið, að þegar Björn þessi var unglings- piltur, þá var hann á vist á þeim bæ er Kötluholt heitir suður á Snæfellsnesi. Þar skeði sá atburður haustið 1757, að maður brauzt þar inn í heygarð að kvöldlagi og réði bana tveimur manneskjum með hnífi. Björn var staddur í fjósi á meðan þessir atburðir gerðust í hey- garðinum. Komst morðinginn fljótlega á snoðir um hann og ætlaði að gera honum sömu skil, en Björn slapp undan honum nauðuglega eftir að hafa hlotið marga áverka, sem hann bar merki um alla ævi. Björn var talinn búþegn góður og kjarkmaður mikill, sem hvorki hræddist drauga né afturgöngur, vísaði þeim óðar aftur til sinna heimkynna, ef þær leituðu á hann. (Sbr. Þjóðsögur Ólafs Davíðssonar). Jörðin Gróustaðir voru að fornu mati 24 hundruð að Framhald á bls. 98. Hetma er bezt 91

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.