Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1988, Page 18

Heima er bezt - 01.04.1988, Page 18
/ hesthúsabyggð Hafnfirðinga, f. v. Valur, Gísli Bláfjallahnúkar. A Heiðinni Há. Geitafell yst, til vinstri ósar Ölfusár. fagur að lögun, því er dapurlegt að sjá, að á honum hafa verið unnin skemmdarverk. Bílfær braut er frá þjóðvegi austan fjallsins og upp að gígnum, en barmur hans var brotinn niður og ekið burt til uppfyllingar. Brautin er ógreið og hlykkjar sig upp hlíðina, nokkru vestan Hlíðarenda í Ölfusi. Hér geta verið ferðalok því að leiðinni sem ófarin er, var áður vikið að og klukkan orðin fjögur og hálfri stund betur. Eftir eru ófarnir fimmtán kílómetrar til Hveragerðis. Val Snorrasyni færi ég mínar bestu þakkir. Án hans leiðsagnar hefði ferðin ekki verið farin. Gísli Högnason frá Læk / Drögum. Frá v., Bláfjöll, Ólafsskarð, Ólafsskarðshnúkur og Fjallið Eina. Leiðrétting við brúðkaupsmynd í 11. tbl. HEB 1987 er á bls. 346 í þættinum ,,Sögu!egar ljósmyndir“ upplýsingar um svo nefnda „brúðkaups- mynd“ (ásamt myndinni). Þó ég teldi mig hafa fengið pottþéttar upplýsingar um hana, varð sú raunin ekki. Nú á dögunum hringdi í mig gamall Breiðdælingur, Haraldur Briem frá Eyjum, og lét mér í té eftirfarandi leiðréttingar: Nr. 21 er Guðjón Jónsson, bóndi í Tóarseli. Nr. 22 er Jónína Eiríksdóttir kona hans. Nr. 33 er Hugborg Hannesdóttir, systir nr. 50 og því móðursystir Haraldar Briem. Haraldur er viss í sinni sök. Þessi brúðkaupsmynd hékk á vegg í Eyjum frá því hann mundi eftir sér, enda er brúðurin föðursystir hans. Foreldrar Haraldar eru og á myndinni nr. 50 og 51. Ég færi Haraldi bestu þakkir og hvet alla er þetta lesa að láta það berast sem víðast, einkum til þeirra er eiga Breiðdœlu hina nýju 2. bindi, en eru ekki kaupendur að HEB. Guðjón Sveinsson. 126 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.