Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1988, Side 20

Heima er bezt - 01.04.1988, Side 20
DRAUMURINN UM ÁSTINA / A F.T J THFTMTIM J Smásaga eftir Birgittu H. Halldórsdóttur Ellin. Hún var eitthvert hugtak sem mér hafði alltaf þótt svo fjarlægt, en þó svo skelfilegt. Elli, hrumleiki, hrukkur, tilgangsleysi og bið eftir dauðanum. Já, ég hafði alltaf óttast það að verða gömul. Tilhugsunin um það að andlitið á mér yrði eins og bókfell fannst mér hryllileg. Ef til vill þyrfti ég að fá falskar tennur, grá hár og hnýttar hendur. Ég vildi ekki verða gömul kona. Verða fyrir öllum, gamlingi á elliheimili, sem starfsfólkinu þætti ef til vill óþolandi nöldurskjóða. Ég hafði séð svo margt gamalt fólk sem ég vorkenndi. Mér fannst að líf þess hlyti að vera svo til- gangslaust og innantómt. Allt búið sem vert var að lifa fyrir. En auðvitað sagði ég aldrei neinum frá þessum ótta mínum við ellina. Það var heldur ekkert eðlilegt að þrítug, þriggja barna móðir, með góðar tekjur og allt til alls, væri farin að hugsa um ellina. Mér fannst það sjálfri hálf sjúk- legt. Ég sem er í skemmtilegri vinnu, á indæla fjölskyldu, er á kafi í félagslífi, stunda erobik, ljós og sund og á aldrei neina mínútu aflögu, ég hafði enga ástæðu til að kvíða fyrir framtíðinni. En ég verð að viðurkenna að margt af því sem ég geri er eingöngu til þess að líta vel út, vera áfram ung. Það gerðist svo einn morguninn að ég vaknaði upp meira undrandi en ég hafði orðið fyrr. Það var venjulegan mið- vikudagsmorgun, klukkan hringdi. Ég hreyfði mig ekki en starði út í loftið. Ég var varla með sjálfri mér. Maðurinn minn rumskaði, bölvaði og stöðvaði vekjarann, en ég tók varla eftir því. Mér leið einkennilega, dásamlega, ólýsan- lega. Mig hafði dreymt draum. Ég mundi hann allan, þarna sem ég lá í rúminu mínu, og allt i einu fannst mér ég sjá heiminn í nýju Ijósi. Ég var ekki lengur hrædd við ellina. Ég lokaði augunum og upplifði drauminn í huganum. Drauminn um ástina á elliheimilinu. Ég var í húsinu mínu, en þar voru engin húsgögn. Ég stóð með tösku í annari hendi og vissi með sjálfri mér að ég var að flytja. En hvers vegna? Ég leit á hendurnar á mér og hrökk við. Þær voru grannar og beinaberar. Með skjálfandi höndum tók ég upp spegil úr töskunni og leit í hann. Þar hafði ég það. Við mér blasti andlit sem ég varla þekkti. Dökkt hárið mitt var nú orðið silfurgrátt, húðin dálítið hrukkótt, sérlega í kring um augun. Ég brosti beiskt, en andaði léttar er ég sá að ég var með mínar eigin tennur. En staðreyndin blasti við mér. Ég var orðin gömul kona, kannski sjötug. Mér fannst ég vita það. Samt sem áður þá leið mér ekkert illa. Þetta var ég sjálf hvemig sem á því stóð. Og ég var greinilega á förum. Ég hrökk við er einhver kom inn.Þetta var Berglind. Ég vissi það strax. Yngsta barnið mitt. En hún var ekki lengur litla fimm ára hnátan með ljósu krullumar hans pabba síns. Nei, nei, þetta var hinn skörulegasti kvenmaður, áreiðan- lega fjörutíu og fimm ára. Mér fannst ég sosum vita þetta allt. Mig langaði samt helst til að skella upp úr. Jæja, var nú blessuð dúfan hún Berglind mín farin að hugsa um mömmu gömlu. Hún ræskti sig vandræðalega. — Jæja, mamma mín. Þá er ekkert eftir. Við skulum drífa okkur. Ég er viss um að þú átt ekki eftir að sjá eftir þessu. Það verða allir góðir við þig. Svo hlýtur þú að þekkja 128 Heimaerbezl

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.