Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1993, Page 4

Heima er bezt - 02.10.1993, Page 4
ÖRNÓLFUR ÁRNASON: JÁRNKARLINN. MATTHÍAS BJARNASON RÆÐIR LÍF SITT Matthías Bjarnason er harður sem „Járn- karlinn” þegar hann telur það nauðsyn- legt, en hann er mildur og gamansamur þegar það á við. Hann er mikilvirkasti málsvari fólksins í hinum dreifðu byggð- um landsins til sjávar og sveita. Hann hef- ur verið í eldlínu íslenskra stjórnmála í fimmtíu ár og það hefur blásið um hann allan tímann. Hann lætur skoðanir sínar ekki síður í Ijós innan Sjálfstæðisflokksins en utan og er einn höfuðandstæðingur frjálshyggjunnar. Matthías Bjarnason hef- ur gegnt ráðherrastöðu og var m.a. sjáv- arútvegsráðherra í þorskastríðinu. Hann er frægur fyrir gamansemi og hispursleysi og segir frá uppvexti sínum á ísafirði og stjórnmálastappi á heimaslóðum í samtöl- um við Örnólf Árnason, höfund bókarinn- ar ,,Á slóð kolkrabbans.” Bók nr. 1 Heb-verð kr. 2970 BIRGITTA H. HALLDÓRSDÓTTIR: ÖRLAGADANSINN í þessari magnþrungnu spennusögu, sem gerist í Reykjavík, fáum við að kynnast ís- lensku glæpafélagi, sem lögreglan stend- ur ráðþrota frammi fyrir. Eiturlyf streyma til landsins og morð eru framin án þess að hægt sé að rekja eitt eða neitt. „Örn- inn,” forsprakkinn, er harðsvíraður náungi sem vílar ekkert fyrir sér. Hann er út- smoginn og tekst að villa á sér heimildir. Örlagadansinn er ellefta skáldsaga Birgittu sem unnið hefur sértraustan sess sem spennubókahöfundur. Bók nr. 2 Heb-verð kr. 1695 AGATHA CHRISTIE: SUNNUDAGSMORÐ Hercule Poirot líkaði ekki að fá fordrykkinn utanhúss á köldum haustdegi. Því síður líkaði honum sú leiksýning sem fram fór á laugarbarminum, þar sem ungur maður lá við endann á sundlauginni í leikrænum stellingum og miðaldra kona hélt á marg- hleypu og rauðir málningardropar lituðu vatnið. Þetta var ekki afþreying fyrir há- degismatinn á enska sveitasetrinu, þetta var ekki leikþáttur, þetta var alvara. Poirot var að horfa á mann sem var dauður, eða að minnsta kosti að deyja... Bók nr. 3__HEb-verð kr. 1695 DEAN KOONTZ DEAN KOONTZ: DREKATÁR Gesturinn þreif í beltið á stúlkunni, rykkti henni til sín og náði góðu taki á blússunni. Árásin var svo óvænt og skyndileg og hreyfingarnar svo eldsnöggar að hún var komin á loft áður en hún gat byrjað að öskra. Rétt eins og hún væri fis, kastaði hann henni á gestina við eitt af borðunum. „Helvítið á honum!” Conny spyrnti sér upp frá borðinu, stakk hendinni undir jakkann og sótti skammbyssuna úr slíðri við mjó- bakið. Þetta er örlítið brot úr hinum spenn- andi söguþræði bókarinnar DREKATÁR. Sagan DREKATÁR heldur lesandanum föngnum í spennu og hraða allt til enda. Bóknr.4 Heb-verð kr. 1695 AÐALHEIÐUR KARLSDÓTTIR FRÁ GARÐI: MEÐAL GRÍMSEYINGA- SKIN OG SKÚRIR VIÐ YSTA HAF Aðalheiður Karlsdóttir hefur skrifað all- margar bækur. Hún sendir nú frá sér bók þar sem segir frá dvöl hennar meðal Grímseyinga frá 1937 og fram undir miðja öldina. Hún segirfrá reynslu úrsínu eigin lífi, frá samferðafólki og atburðum sem gerðust í Grímsey, bæði áður en hún kom þangað og á meðan hún dvaldist þar. Efni bókarinnar er gott framlag til sögu þessar lands þar sem sagt er frá lífi almúgafólks sem bjó oft við þröngar að- stæður en þraukaði samt. Bók nr. 5 Heb-verð kr. 2545 Bókaskrá

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.