Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1993, Síða 9

Heima er bezt - 02.10.1993, Síða 9
NYJAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR ins. Þetta eru spennubækur sem höfða til unga fólksins. Fjöldi teikninga er í bókinni og gera þær hana lifandi og skemmtilega til aflestrar. Bók nr. 24 Heb-verð kr. 845 MARK TWAIN: SAGAN AF TUMA LITLA Á s.l. ári kom út ný útgáfa af sögunni um Stikilsberja-Finn og hlaut hún frábærar viðtökur. Vegna eindreginna óska margra þeirra sem lásu þá bók var ákveðið að gefa út SÖGUNA AF TUMA LITLA. Þessi heimsfræga saga hefur aftur og aftur farið sigurför um heiminn. Ævintýri þeirra Tuma og Stikilsberja-Finns hafa skemmt mörgum kynslóðum ungra lesenda. Bæk- ur Mark Twain um þá félaga eru sannkall- aðar bókmenntaperlur. Bók nr. 25 Heb-verð kr. 845 • ENNÞÁ FLEIRI SÖGUR ÚR SVEITINNI d* Hcather Amcry og Stephen Cartwrighl HEATHER AMERY OG STEPHEN CARTWRIGHT: ENNÞÁ FLEIRI SÖGUR ÚR SVEITINNI Þessar skemmtilegu smásögur voru skrif- aðar sérstaklega fyrir byrjendur í lestri. Teikningar Stephens Cartwrights leggja áherslu á kátínu og spennu sagnanna og skýra merkingu orðanna. Með aðstoð og hvatningu getur barnið fljótlega notið þeirrar ánægju að lesa heila sögu sjálft. Bók nr. 26 Heb-verð kr. 760 HELGIJÓNSSON: ENGLAKROPPAR i Skaparfegurðin hamingjuna? Hvað gerist ; þegar falleg, útlensk stúlka kemur inn á heimili íslenskra hjóna? Hún heitir Michelle, 18 ára frá Flórída í Bandaríkjun- um, og dvelur í eitt ár sem „au-pair“ hjá Snædalhjónunum. Sonurinn er í 10. bekk en dóttirin í menntó. Húsbóndinn er létt- geggjaður fasteignasli en konan rekur vinsæla líkamsræktarstöð. Sonurinn, sem er dulur og feiminn, hrífst strax af Michelle. En fellur Michelle fyrir honum? Bók nr. 27 Heb-verð kr. 1350 TONY WOLF OG SIBYLLE VON FLUE: MAGGI MÖRGÆS LABBAKÚTUR Bækumar um Magga mörgæs eru nú orðnar fjórar. Aðdáendum Magga fjölgar stöðugt enda er Maggi skemmtilegur labbakútur sem lendir í margvíslegum ævintýrum. Bók nr. 28 Heb-verð kr. 760 Víðir Sigurðsson ISLENSK KNATTSPYRNA1993 Árbók knattspyrnunnar 1993 í máli og myndum VÍÐIR SIGURÐSSON: ÍSLENSK KNATTSPYRNA 93 Þrettánda bókin í bókaflokknum um ís- lenska knattspyrnu. í bókinni er að finna allar helstu og nauðsynlegustu upplýsing- ar um það sem gerðist á knattspyrnuvöll- um á íslandi á þessu ári og jafnframt er sagt frá gengi íslenskra liða og íslenskra leikmanna á erlendri grund. Öllum þeim, sem fylgjast með íslenskri knattspyrnu, ber saman um að bókin íslensk knatt- spyrna sé mjög vönduð að allri gerð og ómissandi öllum þeim sem fylgjast með þessari íþróttagrein. Höfundur bókanna, Víðir Sigurðsson, hefur unnið sér þann sess að vera talinn með bestu íþróttaf- réttamönnum landsins og eru bækurnar staðfesting á því og honum til sóma. Bók nr. 29 Heb-verð kr. 2970 Bókaskrá

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.