Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1993, Síða 17

Heima er bezt - 02.10.1993, Síða 17
ÞÝDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR ( ÆVINTÝRI TIL AÐ LITA OG LESA RAUÐHETTA Bók nr. 2044 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Bók nr. 2045 GOSI Bók nr. 2046 LJÓTI ANDARUNGINN Bok nr. 2047 Sérstakar bækur, þar sem börnin lesa söguna um leið og þau lita teikningarnar sem bækurnar eru skreyttar með. Upp- byggjandi barnabækur. HEB-verð___kr. 300 hver bók. HRÓI HÖTTUR, PRINS ÞJÓFANNA GÖMUL ÞJÓÐSAGA í þessari bók er að finna söguna af skóg- armanninum Hróa hetti og félögum hans. Hann var hetja fátæklinganna og gleymist aldrei þeim sem lesa söguna um prins þjófanna. Bók nr. 2048 HEB-verð kr. 850 LYKKE NIELSEN: SVEI ... FRÍÐA FRAM- HLEYPNA Bók nr. 2049 FRÍÐA FRAMHLEYPNA í FRÍI Bók nr. 2050 FRÍÐA FRAMHLEYPNA KJÁNAST Bók nr. 2051 FRÍÐA FRAMHLEYPNA Á FULLRI FERÐ Bók nr. 2052 FRÍÐA FRAM- HLEYPNARI Bók nr. 2053 Hún er ekkert venjuleg hún Fríða fram- hleypna, hún á tuttugu og þrjá kærasta og stefnir að því að eignast þrjátíu. Hún er hress, hún er allt að því baldin, en hún er frábærlega skemmtileg. Hún segir og gerir það sem henni dettur í hug, en full- orðna fólkið er ekki alveg sátt við það, af hverju skyldi hún þurfa að hafa fléttur, það er vont. Og ef garðklippur eru til, af hverju þá ekki að nota þær... HEB-verð kr. 900 hver bók HEATHER AMERY OG STEPHEN CARTWRIGHT: FLEIRI SÖGUR ÚR SVEITINNI Þessar skemmtilegu smásögur eru skrif- aðar fyrir byrjendur í lestri. Fyrsta bókin í þessum flokki heitir „Sögur úr sveitinni" og fékk hún mjög góðar viðtökur. Bók nr. 2054 HEB-verð kr. 875 J.M. BARRIE: PÉTUR PAN OG VANDA Hér er á ferðinni einstök bók. Allar síðurn- ar eru hrein listaverk og kalla á lesand- ann. Hann svífur með söguhetjunum í gegnum himingeiminn í leit að ævintýr- um. Pétur Pan og Vanda eru með þekkt- ustu ævintýrum sem um getur og hafa þó aldrei verið jafnvinsæl og nú. Þýðingin er í höndum Vilborgar Dagbjartsdóttur rithöf- undar, en hún er þekkt fyrir að þýða barnaefni af alúð. Bók nr. 2055 HEB-verð kr. 800 ANDERS SÖRENSEN: ÆVINTÝRIÐ UM HINA UNDURSAMLEGU KARTÖFLU Ævintýrið hefst hjá Inkum í Suður-Amer- íku. Við höldum síðan til Evrópu og alla leið til íslands. Hér er einstaklega vel gerð bók sem bæði skemmtir lesandanum og fræðir. Vilborg Dagbjartsdóttir rithöfundur hefur þýtt og staðfært efni bókarinnar og auk þess skrifað sérstaklega um áhrif kartöflunnar á mannlíf hér á landi í gegn- um tíðina. 64 bls. Bók nr. 2056 HEB-verð kr. 350 LEIF HALSE: STRÁKARNIR í STÓRADAL Mjög skemmtileg, litprentuð myndasaga í stóru broti með sex litprentuðum teikning- um á hverri blaðsíðu. ívar Pettersen teiknaði myndirnar. Sigurður Gunnarsson íslenskaði textann. 16 bls. Falleg bók fyrir yngstu lesendurna. Bók nr. 2057 HEB-verð kr. 250 SIBYLLE VON FLUE: MAGGI MÖRGÆS OG SELURINN TEIKNINGAR: TONY WOLF Áður eru komnar út bækurnar „Maggi mör- gæs og vinir hans“ og „Maggi mörgæs og fjölskylda hans.“ Maggi mörgæs og selskópurinn vinur hans eru ærslabelgir sem lenda í margvíslegum ævintýrum. Þetta er kjörin bók fyrir unga lesendur. Bók nr. 2058 HEB-verð kr. 755 ERIC HILL: DEPILL FER Á GRÍMUBALL Bækumar um Depil eiga þúsundir aðdá- enda hér á landi. Teikningar og texti hitta beint í mark. Yngstu lesendurnir fagna hverju nýju ævintýri um litla hvolpinn Depil. Bók nr. 2059 HEB-verð kr. 750 ÝMSIR HÖFUNDAR: TOBBI OG VINIR HANS Bók nr. 2060 TEDDI OG VINIR HANS Bók nr. 2061 HNOÐRI OG VINIR HANS Bók nr. 2062 Fallegar harðspjaldabækur með myndum af dýrum sem flest börn læra fljótt að þekkja. HEB-verð kr. 300 hver bók. Bókaskrá 17

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.