Heima er bezt - 02.10.1993, Page 25
ISLENSKAR SKALDSOGUR
yfir meira göfuglyndi en flestum er gefið
og reynist öllum vel, sagan af Sólrúnu,
stúlkunni fögru, sem hreif hugi piltanna og
allir vildu eignast.
Bók nr. 3022 HEB-verð kr. 250
ÞÓRBERGUR ÞÓRÐARSON:
ÓLÍKAR PERSÓNUR
Hér eru birt fyrstu ritverk Þórbergs Þórð-
arsonar í óbundnu máli 1912-1916.
Bók nr. 3023 HEB-verð kr. 600
ÓSKAR AÐALSTEINN:
í RÖSTINNI
Sagan gerist í sjávarplássi sem má muna
„fífil sinn fegri.“ Ljóst er hvaða stað höf-
undur gerir að sögusviði, en þrátt fyrir
undangengna erfiðleika eru þar enn ris-
miklar persónur með hugsjónaeld í
æðum. Þetta er raunsönn saga, sem við
könnumst við að fornu og nýju. Ein þeirra
sem á sér rætur í þjóðarsálinni og verða
vonandi alltaf lesnar í íslandi.
Bók nr. 3024 HEB-verð kr. 250
MÁR KRISTJÓNSSON:
KONUR OG VÖLD,
REYKJAVÍKURSAGA
í bók þessari er á hispurslausan hátt fjall-
að um Kerfið, sem allir vita af, en enginn
þekkir til hlítar, og eigi síður um stjórn-
málamennina og þá rómuðu athafna-
menn, sem stjórna á bak við tjöldin, þó að
aðferðir þeirra séu ekki alltaf í góðu sam-
ræmi við það lýðræði, sem börnum er
kennt um skólunum. Ástalífið, sem hér
greinir frá, er heldur ekki í miklu samræmi
við framtíðardrauma saklausra stúlkna.
Bók nr. 3025 HEB-verð kr. 250
JÓN BJARMAN:
í ÓLJÓSRI MYND
Baksvið atburða í þessari bók kemur
þeim kunnuglega fyrir sjónir, sem dvalið
hafa á Akureyri. Hér er glöggskyggn
könnun og skáldleg framsetning á við-
brögðum manna gagnvart margslungnu
hljómfalli lífsins og ekki síður andspænis
dauðanum.
Bók nr. 3026 HEB-verð kr. 250
ÞORSTEINN FRA HAMRI:
ÆTTERNISSTAPI OG
ÁTJÁN VERMENN
Þessi bók er öðru fremur óður til ímyndun-
araflsins og lífsorku þess. Höfundur fléttar
saman skáldskap, þjóðsögu og veruleika,
varpar oft nýju Ijósi á gamalkunnar heim-
ildir og dregur aðrar síður þekktar fram í
dagsbirtuna. Öll auðkennist bókin af djúpri
virðingu og samúð með fólki sem í nauðir
rekur. Saga þess er sögð á listrænan hátt,
í kjarngóðum, þróttmiklum stíl, sem oft er í
námunda við Ijóðið.
Bók nr. 3027 HEB-verð kr. 700
EYJÓLFUR KÁRSSON:
SUMAR Á SÍLDARFIRÐI
Þetta er fyrsta skáldsaga höfundar, sem
kýs að skrifa undir dulnefni. Frásögnin er
byggð á sönnum atburðum, en færð í stíl-
inn. Sagan er bráðskemmtileg og lýsir vel
lífinu í sjávarplássum á Norðurlandi á
síldarárunum gömlu og góðu.
Bók nr. 3028 HEB-verð kr. 250
ORRI UGGASON:
GEISLABROT
Undirtitill þessarar bókar er „Sögur og
leikrit." Hún skiptist í eftirfarandi kafla:
Huldublómið, Við smalakofann eftir 50 ár,
Vonbrigði, Oddur í Smálöndum, Óska-
draumur, Fundin ást, Prestskosning
(Leikrit í 4 þáttum). Kilja.
Bók nr. 3029 Heb-verð kr. 100
STEINUNN Þ. GUÐMUNDSDÓTTIR:
DÖGG í SPORI
Saga þessi gerist bæði í sveit og borg.
Ung stúlka fer nauðug frá bernskuheimili
sínu. Margt fólk kemur við sögu, þar á
meðal ungt fólk, sem vill hafa sitt eigið
persónulega frelsi við starfsval og nám.
Hér spinnur lífið sinn örlagaþráð...
Kannski er borgin baksviðið, sem heillar
mest... Þar verða átökin hörðust... En
sveitin, náttúran sjálf, hrein og fögur, á
lífstóninn, sem aldrei þagnar.
Bók nr. 3030 Heb-verð kr. 300
UNA Þ. ÁRNADÓTTIR:
ENGINN FISKUR Á
MORGUN
Þessi saga gerist bæði við sjó og í sveit,
hún er hógvær lýsing á lífi unga fólksins
eins og það gerist í dag, við störf og
skemmtanir, ástirog amstur. Hún lýsir
líka kjörum þeirra sem eldri eru: „Refir
eiga greni og fuglar himins hreiður. Hér
eru hennar heimkynni, kjallaraíbúð og þó
ekki niðurgrafin, tvö herbergi og eldhús,
bað og aðgangur að þvottahúsi og
geymsla. Allt lítið og þó meir en nógu
stórt fyrir eina kerlingu.“ Útgáfuár: 1969
Bók nr. 3031 Heb-verð kr. 300
JÓNAS GUÐMUNDSSON:
ÁGÚST BERHENTI
Ágúst berhenti er saga af morðmáli og
rannsókn þess. Bóndi austan úr sveitum
kemur til bæjarins til þess að innheimta
skuldir og fleira. Hann sést síðast í fé-
lagsskap tveggja manna en virðist síðan
hverfa alveg sporlaust. Það vekur grun-
semdir, þar eð bóndinn var með háa fjár-
hæð af peningum meðferðis í kistli. Lög-
reglurannsókn er hafin og grunurinn bein-
ist fljótlega að tveim mönnum. Sagan ger-
ist í Reykjavík og á Suðurlandi á öðrum
áratug aldarinnar. Útgáfuár: 1976
Bók nr. 3032 Heb-verð kr. 300
INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR:
ÁST TIL SÖLU
Djarflega og hispurslaust skrifuð saga
með sönnum og lifandi lýsingum. Ingibjörg
Jónsdóttir var landskunnur höfundur og
verk hennar vöktu athygli og umhugsun.
Bók nr. 3033 Heb-verð kr. 300
ÖRN SNORRASON:
GAMANTREGI
Öm Snorrason orti mikið af gamanvísum
og skopkvæðum. Kímnin er ríkur þáttur í
fari hans og bregst honum ekki þó að al-
vara lífsins hafi löngum einnig leitað fast
á huga hans, eins og títt er um góða
húmorista. Gaman og alvara leikast á
eins og skin og skuggar. Þetta tvísæja
viðhorf speglast í því úrvali úr skáldskap
Arnar sem birtist í þessari bók, í bundnu
máli og óbundnu. Hin léttstígu gaman-
kvæði hafa margan hlátur vakið og munu
enn vekja, en alvaran er á næsta leiti, í
öðrum þætti bókar. Höfundur á erindi við
lesendur, hvora leiðina, sem hann kemur
til móts við þá.
Bók nr. 3034 Heb-verð kr. 300
Bókaskrá
25