Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1993, Síða 50

Heima er bezt - 02.10.1993, Síða 50
TIL FRÓÐLEIKS OG SKEMMTUNAR ÆTTBÓK OG SAGA íslenzka hestsins á 20. öld (VII). Þetta er lokabindið í hinu mikla ritverki um íslenska hestinn á 20. öld og einnig síð- asti hluti starfssögu Gunnars. Sagt er frá útflutningi hrossa hin síðari ár og birt frá- sögn af hinni miklu þolkeppni á hestum yfir þver Bandaríkin, sem íslenskir hestar tóku þátt í árið 1976. Vakti sú keppni mikla athygli á íslandi og íslendingum, að ekki sé talað um hestana sjálfa. Þá er í þessu bindi lýsing á stóðhestum og hryssum, sem hafa fengið dóma á árun- um 1990 og 1991. Lýsing á stóðhestum frá nr. 1177 til 1233 og lýsing á hryssum frá nr. 8072 til 8836. Á annað hundrað myndir prýða bókina. Jónas Kristjánsson, ritstjóri, hefur búið ættartölur undir prent- un. Bók nr. 6030 HEB-verð kr. 4000 SIGURÐURA. MAGNÚSSON: NÝJU FÖTIN KEISARANS Þessi bók er eftir höfund metsölubókar- innar „Undir kalstjörnu," sem vakti geysi- lega athygli. í þessari bók er fjallað um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Höfundurinn hefur aldrei farið dult með skoðanir sínar og hlotið nokkurt um- tal af þeim sökum. Bók nr. 6031 HEB-verð kr. 300 GUÐMUNDUR ÞORSTEINSSON frá Lundi: LJÓSBROT Nokkrir orðskviðir - flestallir frumsamdir - örfáir orðfærðir. Bók nr. 6032 HEB-verð kr. 350 H. V. MORTON: í FÓTSPOR MEISTARANS Höfundurinn, H.V. Morton, tekur lesand- ann með sér í ferðalag um Þalestínu og Trans-Jórdaníu og skoðar alla sögustaði, sem snerta líf Jesú í Gyðingalandi. Bók nr. 6033 HEB-verð kr. 300 JOHAN CULLBERG: KREPPA OG ÞROSKI Á lífsleiðinni verða menn að ganga í gegnum margvísleg skeið af andlegri kreppu. En slík lífsreynsla verður okkur oftast þroskandi og leiðirtil meiri sjálfs- þekkingar, þótt óneitanlega geti hún stundum orsakað ævilanga andlega ör- orku. Tilgangur þessarar bókar er að kynna lesandanum andlegt kreppuá- stand, svo að það verði skiljanlegra þeim, sem takast á við það hjá sjálfum sér eða öðrum. Bók nr. 6034 HEB-verð kr. 800 KURT SINGER: FRÆGIR KVENNJÓSNARAR Hér er m.a. sagt frá ýmsum heimskunn- um njósnurum eins og Mata Hari, Judith Coplon, Adrienne, sem vann með hinum makalausa njósnara Cicero, morðinu á Leon Trotsky og Folke Bernadotte, og því fólki sem stóð að því að koma þessum heimsfrægu mönnum fyrir kattrnef. 237 bls. Bók nr. 6035 HEB-verð kr. 150 MARK WATSON: HUNDURINN MINN Hundurinn minn er handhæg bók og í henni eru aðgengilegar upplýsingar um meðferð hunda. Lýst er hirðingu þeirra, eldi og uppeldi. Þetta er nauðsynleg bók fyrir alla hundaeigendur og ekki síður fyrir þá sem ætla sér að eignast hund. Höf- undur þessarar bókar er íslendingum að góðu kunnur, því hann gaf íslensku þjóð- inni dýraspítala þann sem nú gengur und- ir nafninu dýraspítali Watsons. Bók nr. 6036 HEB-verð kr. 350 ÖRNÓLFUR ÁRNASON: Á SLÓÐ KOLKRABBANS Hinn kostulegi og meinfyndni samstarfs- maður höfundar, Nóri, særir fram marga söguglaða frændur. Ættarsambönd þeirra teygja sig eins og armar kolkrabba inn í höfuðvígi viðskiþtalífsins og fínustu heim- ili landsins. Mögnuð lesning frá upphafi til enda. Bókin kortleggur baksvið mikils hitamáls, samþjöppunar auðs og valda í atvinnulífi íslendinga. Ómetanlegar upp- lýsingar. Fjöldi mynda. Bók nr. 6037 HEB-verð kr. 2540 AKUREYRI, BÆRINN VIÐ FJÖRÐINN TEXTI: RAFN KJARTANSSON LJÓSMYNDIR: PÁLMI GUÐMUNDSSON Bókin er kynning á Akureyri í myndum og máli. Á annað hundrað mynda er í bók- inni, allar í lit. Flestar myndirnar eru nýjar og er því bókin lýsing á Akureyri eins og hún er nú. Til þessarar útgáfu hefur verið vandað þannig að „bærinn við fjörðinn" skarti sínu fegursta í bókinni. Bókin er einnig fáanleg í enskri og þýskri útgáfu. Bók nr. 6038 HEB-verð kr. 1680 ÝMSIR HÖFUNDAR: GEGGJAÐ GRÍN... ...UM SKOKKARA Bók nr. 6039 ...UM SKÓLALÍFIÐ Bók nr. 6040 ...UM HJÓNABANDIÐ Bók nr. 6041 ...UMKYNLÍF Bók nr. 6042 ...UM SJÚKRAHÚS Bók nr. 6043 ...UMÁST Bók nr. 6044 Þýðing: Jón Daníelsson \ þessu samansafni af teikniglensi er dag- legt líf tekið til meðferðar á ótrúlega skemmtilegan hátt. Sprenghlægilegar teikningar og hnyttinn texti gera þessar bækur ógleymanlegar. 96 bls. hver bók. HEB-verð______kr. 670 pr. bók. 50 Bókaskrá

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.