Heima er bezt - 01.12.1995, Side 10
Hannes Flosason og
Brandur Þorsteinsson.
Tréskurður hefur verið
notaður til skrauts frá alda
öðli. Margar gamlar sögur
geta þess, þegar menn voru
að skera út rúmfjalir handa
unnustum sínum á löngum
vetrarkvöldum. Það þótti
mikill kostur að vera hag-
leiksmaður góður. A seinni
árum hefur þetta breyst
mjög mikið, og var um tíma
enginn sem kenndi þessa list
hér á landi.
Tónlist og
tréskurður
Rætt við Hannes Flosason tréskurðarmeistara
ónlist og tréskurður hafa verið snar þáttur í
lífi Hannesar Flosasonar. Hann stofnaði
skurðlistarskóla sinn árið 1972. Þá var tré-
skurður hvergi kenndur á opinberum vettvangi, þar sem
Iðnskólinn lagði þessa kennslu niður um leið og atvinnu-
lífið hætti að hafa þörf fyrir tréskera.
„Þegar sjónvarpið kom til Islands 1966, dró mjög úr
frístundastörfum fólks. Það var varla hægt að fá fólk í
kórstarf, námsflokka eða nokkum skapaðan hlut. Allir
voru að horfa á sjónvarp. Upp úr 1970 fór þetta að breyt-
ast,“ sagði Hannes.
I upphafi var verkefnaskráin í mótun á námskeiðum
Hannesar. Val nemenda var þá með frjálslegra móti en
nú. Sumir völdu sér verkefni sem urðu þeim ofviða
vegna skorts á tækni í útskurðinum.
„Ég lét eftir þarna í byrjun, en síðan hefur þetta þróast
út í að vera í líku formi og tónlistarkennsla. Þar studdist
ég beinlínis við reynslu mína af hljóðfærakennslu,“ sagði
Hannes.
I dag skiptir Hannes tréskurðamáminu í sjö stig, og í
hverju stigi eru minnst sex verkefni. Þeir sem ljúka við
öll stigin í þessu námi, ljúka því tjörutíu og tveimur verk-
um. Hann leggur mikla áherslu á færni við að beita út-
skurðartækjunum og rétta lrkamsbeitingu við vinnuna.
„Einum ágætum manni, sem er búinn að vera hjá mér
lengi, varð að orði hér um daginn, að hann hefði ekki lært
meira af neinu verkefni en þessari fyrstu skál. Ég hef séð
fólk skera út án þess að fá tilsögn, og það er mikil hindr-
un þegar það beitir ekki tækjunum og líkamanum rétt.
Þetta er bara þjálfun eins og íþróttir og allt annað, sem
maður gerir. Menn verða að læra að beita sér á réttan hátt
til að ná árangri," sagði Hannes.
Það skapast sérstök stemmning í tímunum hjá Hannesi,
þar sem tíminn verður afstætt hugtak, en verkefnið og
402 Heima er best