Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1995, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.12.1995, Blaðsíða 11
tengslin við efniviðinn verða að aðalatriði. Þangað kem- ur fólk úr öllum aldurshópum og úr öllum geirum mann- lífsins. Nemendur Hannesar eru frá tólf ára yngstur og upp í áttatíu og fimm ára elstur. „Margir eru afskaplega stressaðir og þreyttir í sinni vinnu, og þeir hafa ekki þörf fyrir að koma í verkefni sem bætir við stressi og álagi. Þess vegna skiptum við um viðmiðun. I stað þess að afkasta sem mestu á sem skemmstum tíma, verður viðmiðunin hér að breyta um tempó, og gera sem best á eins löngum tíma og þarf. Að- alatriðið er að njóta þess að vinna að hlutunum, á því hagnast fólk mest,“ sagði Hannes. Sumir nemendur hans hafa í huga að halda áfram námi í tréskurði og hafa nokkrir leitað til Austurríkis. Þar í landi er tréskurður styrktur til að passa upp á að listgreinin deyi ekki út. En eins og mörg vandasöm og sein- unnin störf, þá hefur tré- skurður átt undir högg að sækja í tæknivæddu sam- félagi nútímans. Nokkrir nemendur Hannesar hafa fengið námið metið inn í listaskóla erlendis. „Það var t.d. ein kona sem fór til London og fékk nám- ið stytt um eitt ár,“ sagði hann. Þannig getur gildi þessara námskeiða verið mismun- andi eftir aldurshópum. Þrátt fyrir mismunandi markmið með náminu, þá á fólk samleið í áhuga sínum á að halda þessari gömlu hefð við. Tréskurður spannar breitt svið. Hann getur flokkast bæði sem heimilisiðnaður og list- grein. Tréskurður og hönnun er tvennt ólíkt. „Ég er ekki að kenna fólki hönnun, heldur kenni ég að útfæra hönnun sem ég hef gert og út- fært sjálfur. Þetta er eins og tónlistar- maður sem spilar verk eftir Mozart, hann er ekki að semja verkin. Það er svipað sem ég er að kenna nemend- um mínum hér og ég kenndi á fiðluna. Þeir geta spilað og útfært verk eftir Backh og Beet- hoven, en þetta eru ekki þeirra verk. Sýnishorn afverkum Hannesar Flosasonar. Helgi Jónsson Heima er best 403

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.