Heima er bezt - 01.12.1995, Qupperneq 12
Heimir Hallsson.
Anna Silja Jónsdóttir og Bjarni Eggertsson.
Þessu þarf fólk að gera sér grein fyrir,“ sagði Hannes.
Um tíma hafði hann teikningu sem hluta af náminu en
þar sem fólk átti erfitt með að koma tvisvar í viku, felldi
hann teikninguna út úr kennslunni. Þeir nemendur, sem
sækjast eftir teikninámi, leita nú annað eftir þeirri
kennslu. En teikning, viðarfræði og leirmótun eru þættir,
sem gott er að kunna skil á ef fólk ætlar sér út í hönnun
sjálft.
Hannes var einn af síðustu nemendunum, sem lærði
tréskurð hjá meistara og í Iðnskólanum í Reykjavtk.
Meistarinn, sem hann byrjaði að læra hjá, hét Guðmund-
ur Kristjánsson. Guðmundur fluttist út á land og þá fór
hann til manns sem hét Ágúst Sig-
urmundsson, og síðast til meistara
sem hét Vilhelm Beckman.
„Stefán Eiríksson var faglærður
tréskeri og teiknikennari. Hann
lærði í Kaupmannahöfn í kringum
1895, og setti upp námskeið sem
voru í rauninni upphaf listkennslu á
Islandi. Hann kenndi síðan
nokkrum nemendum, sem tóku við
og kenndu tréskurð, sem faggrein
fram yfir miðja þessa öld,“ sagði
Hannes.
Uppbygging náms í Iðnskólanum
hefur alltaf byggst á því að tvinnu-
lífið kalli á starfskrafta í þeim
greinum sem eru kenndar. Þegar
nýjar stefnur komu fram í hús-
gagnaframleiðslu varð erfiðara að
sjá fyrir sér af tréskurði.
„Tískan í húsgögnum var að
breytast og skreytingar voru lagðar
að miklu leyti niður. Við það bættist
að gjafavörur fóru að flytjast mikið
inn og þá minnkaði atvinna í þess-
ari grein,“ sagði Hannes.
Það varð Hannesi til happs að
hafa stundað tónlistarnám meðfram
náminu í Iðnskólanum. Þegar at-
vinna dróst saman í tréskurði innrit-
aði hann sig í Kennaraskólann í
Reykjavík og lauk prófi þaðan.
„Ég vann á teiknistofu til ársins
1957, og þá fór ég að kenna tónlist,
þ.e. tónmennt og hljóðfæraleik. Ég
var í Breiðagerðisskólanum í
Reykjavík í sextán ár og byggði
upp strengjasveit barna og hélt henni
allt til 1974. Þá gerðist ég skólastjóri
í nýstofnuðum tónlistarskóla á Seltjarnamesi. En til hlið-
ar þá byrjaði ég þessa kennslu í tréskurði 1972. Það er
allt annað að vera tæknilega fær um að búa til hluti held-
ur en að vera fær um að koma kunnáttunni áfram til
næsta manns,“ sagði Hannes.
I dag hefur tréskurður öðlast nýtt gildi sem frístunda-
vinna. Hannes á mikinn þátt í að skapa tréskurði nýja
möguleika með stofnun skurðlistarskólans. Þannig hefur
hann stuðlað að því að halda lífi í greininni.
„Fyrir nokkrum árum var ég að telja hve margir hefðu
verið á námskeiðum hjá mér, það var komið yfir þúsund
manns,“ sagði Hannes. fjTifsi
404 Heima er best