Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1995, Blaðsíða 27

Heima er bezt - 01.12.1995, Blaðsíða 27
Selirnir i Jökulsá ” .......“■“'" ”” Bergur Bjarnason, kennari: fiont ocf uuýlmýn* 6. þáttuk Seinni hluti ins og ég sagði ykkur síðast, ætla ég núna að ljúka við að segja ykkur frá selveiðunum í Jökulsá, og hve mikils virði þær voru fyrir marga. Eg gat þess aðeins fyrr, að þessar veiðar voru enn stundaðar, þegar ég var drengur. Og ég man glöggt, að við strákamir fengum tvisvar að vera viðstaddir, þegar sá mikli viðburður gerðist. Ég mun þá hafa verið tíu ára. Annars fengu börn aldrei að vera við þessar veiðar vegna hins mikla og ljóta hrottaháttar, sem vesalings dýrin urðu fyrir. En þar sem skortur var á vinnuafli og við orðnir þetta stálpaðir, bróðir minn og frændur tveir voru einu og tveimur árum eldri, vorum við notaðir til að færa veiðimönnun- um mat og drykk og til ýmissa ann- arra snúninga. Þennan veiðidag, sem ég man svo glöggt eftir og gleymi aldrei, var sela- gengdin í ánni óvenjumikil, og varð þá veiðin meiri en elstu menn mundu eftir, eða 72 selir. Miða ég frásögn mína eingöngu við þann dag, en yfir- leitt fóru veiðarnar fram með líkum hætti. Það var einn af fyrstu dögunum í júní. Veðrið var yndislegt, logn og glaðasólskin. Fuglarnir sungu, flug- umar suðuðu, og blómin breiddu fagnandi krónur sínar móti blessaðri sólinni. Við vorum flest að borða ár- bítinn um klukkan hálfníu um morg- uninn og tala um störfin, sem fram undan voru, þegar Bjarni vinnumaður kom allt í einu hvatlega inn og sagði með óvenjuhárri röddu, að nú væri mikill selur genginn í ána, meiri en hann myndi nokkru sinni eftir. Bjarni hafði verið árrisull eins og venjulega, skokkað út á Melatanga og svipast um eftir sel, eins og hann gerði oft um þetta leyti árs. Þegar faðir minn hafði fengið nán- ari fréttir hjá vinnumanni, sendi hann tafarlaust hraðboða á næstu bæi og bað alla verkfæra karlmenn að koma sem fyrst í Velli, því að nú mætti vænta góðrar veiði í ánni. Jafnframt mælti hann svo fyrir, að fimm röskir karlmenn, sem tiltækir voru á báðum búunum á Völlum, skyldu strax fara vestur að Jökulsá með mikilli leynd, svo að selurinn yrði ekki fyrir neinni styggð, vaða síðan út í ána neðan við selina og vama þeim að komast út í ósinn til sjávar. Skyldu þeir allir hafa sterk prik í höndum til þess að geta j barið í vatnið og hrætt selina, ef þeir I ætluð að synda niður eftir. Áin var oftast ekki dýpri þama en svona vel í mitti, svo að þetta var vel framkvæm- anlegt. En eftir að veiði var hafin, þurftu þessir varðliðar eða fyrirstöðu- | menn að vera miklu fleiri, því að þá reyndu selirnir ætíð af fremsta megni að komast undan. Á meðan þetta gerðist, var veiði- ferðin undirbúin eins fljótt og föng voru á. Faðir minn, sem ætíð hafði umsjón með veiðitækjunum, tók þau nú fram og bjó til ferðar. Það vom einkum þrenns konar tæki, sem notuð voru til þessara veiða: Löng og sterk selanót, hnallar, sérstaklega gerðir, Heima er best 419

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.