Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1995, Qupperneq 28

Heima er bezt - 01.12.1995, Qupperneq 28
sem notaðir voru til að rota selinn, og loks stórir og hárbeittir hnífar, sem selurinn var skorinn með, svo að honum blæddi strax út, því að þá varð kjötið mun betra. Auk þess þurfti svo að sjálfsögðu að hafa a.m.k. einn pramma til að leggja nót- ina í ána og til að flytja margt á milli, því að nokkrir menn þurftu vitaskuld að vera báðum megin árinnar. Frá prammanum, þessum litla skrýtna og þarfa báti, hef ég sagt ykkur fyrr og vænti, að þið munið það. Þegar allt var tilbúið og veiðimenn flestir komnir, var nót, pramma og öðrum útbúnaði ekið á kerru vestur að á. En kerrur, litlir tví- hjólaðir vagnar, sem hestar drógu, voru mjög þörf tæki í sveitum um árabil, áður en bílamir komu til sögunnar. Nokkru fyrr hafði þó liðsauki verið sendur til varðliðs- mannanna, sem stóðu fyrir selun- um í ánni. Veiðamar fóm þannig fram, að nótin var lögð í ána ofan við flesta selina. Síðan var hún látin reka niður ána undan straumnum, og vom menn beggja megin árinnar, sem héldu í hana og fylgdu henni eftir. Eins og nærri má geta, flýðu selimir í fyrstu niður ána og ætl- uðu strax að forða sér til sjávar, þar sem þeir væru frjálsir ferða sinna. En þá ráku þeir sig brátt á óvænta fyrirstöðu: þétta röð af varðliðsmönnum, sem stóðu hlið við hlið í ánni, slógu í vatnið með bareflum sínum og hljóðuðu hátt. Við þetta urðu selirnir afar hræddir, sneru við í dauðans ofboði og ætluðu að flýja upp ána. En þá var nótin skammt undan, svo að sumir lentu strax í henni og voru dregnir í land og aflífaðir. Aðrir komust upp eftir ánni hver sínum megin við nótina, en sumir lærðu strax að forðast hana, stukku ýmist yfir hana eða lögðust í botninn og létu hana reka yfir sig. Sýndu vissar skepnur þannig furðu- lega vitsmuni, og heyrði ég fullorðna fólkið oft tala um þetta. Þannig var svo haldið áfram, með- an einhver veiðivon var, nótin dregin upp, selurinn aflífaður og greiddur úr henni og síðan farið með hana upp fyrir hópinn sem eftir var og straum- urinn látinn bera hana niður eftir á ný. Og þegar þessum eftirminnilega veiðidegi lauk, lágu 72 selir eftir á ár- bakkanum, eins og fyrr segir, meiri veiði en vitað var um á Völlum í manna minnum. Eg verð að segja ykkur eins og er, vinir mínir, að ég hef tekið töluvert nærri mér að segja ykkur frá þessum • ■ .........................................■• ■■■■■■■ þætti um dýralífið á æskuheimili mínu. Engu að síður fannst mér, að ég gæti ekki sleppt honum, því að selveiðin í Jökulsá og einnig oft utan við ströndina var hreint ekki lítill þáttur í lífi bændafólksins á þessum slóðum. Og þið, sem alist hafið upp við allt aðrar aðstæður í gjörbreyttu þjóðfélagi, þurfið raunar að vita um og kunna glögg skil á, hve lífsbarátta náinna frænda ykkar og forfeðra var hörð, að þeir þurftu að nota hvert tækifæri sem gafst til að hafa nóg að bíta og brenna, til að geta séð fyrir sér og sínum. Afurðir selanna, kjöt, spik og skinn, voru ætíð vel þegnar og bættu oft úr brýnni þörf. Þegar vel veiddist eins og í þetta sinn, gátu öll heimili, sem vildu í sveitinni, fengið töluvert af kjöti og spiki, sem hvort tveggja er bæði holl og góð fæða. Eg man glöggt, að selkjöt var oft saltað í tunnur heima og þótti jafnan besti matur, bæði nýtt og saltað með ofurlitlum spikbita og kartöflum. Þá man ég einnig vel, að móðir mín bjó oft til ágætt viðbit, sem kallað var bræðingur, úr sellýsi og tólg og var notað í staðinn fyrir smjör. Ég má ekki heldur gleyma að segja ykkur frá því, að sellýsi var öldum saman notað sem ljósmeti, áður en olía tók að flytjast til landsins. Var þá lýsi sett í ofurlítið stútlaga tæki úr málmi, kola var það kallað, og fífustöngull notaður sem kveikur. Þegar fífustöngullinn var orðinn gegnvotur af lýsinu, var kveikt á honum, eða réttara sagt, fræull fíf- unnar, sem bar þá ofurlitla birtu. Og þótt sú birta væri að sjálfsögðu ósköp dauf, sætti þjóðin okkar sig við hana öldum saman af því að hún þekkti ekki neitt annað betra. Og hræddur er ég um, að böm- um og unglingum, sem nú em að alast upp og þekkja ekki annað en rafljósadýrðina, þætti lítið til hennar koma. En við þessi lýsisljós frá kolunni vom samt mestu verðmæti þjóðar- innar, fomritin, fomsögurnar okk- ar frægu, skrifuð með fjaðrapenna. Skinn selanna vora alltaf mjög eft- irsótt til skógerðar, og einhverjir fall- egustu og sterkustu skór, sem við strákamir fengum, voru einmitt úr selskinni. Þið sjáið því af þessu, vinir mínir, að selurinn var mikið nytjadýr á æskuheimili mínu, og má fullyrða, að svo hafi verið öldum saman um land allt. Og þó að ég gæti sagt ykkur sitt- hvað fleira um selinn, látum við þetta nægja núna. 420 Heima er best

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.