Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1996, Blaðsíða 5

Heima er bezt - 01.09.1996, Blaðsíða 5
Inga Rósa Þórðardóttir ræðir við hjónin Hlyn Kristin Halldórsson og Eddu Kristínu Björnsdóttur á Miðhúsum Þau starfa að sköpun og hafa þannig skapað sér orðstír og frægð, ekki bara um land allt, heldur út fyrir land- steinana. Þau hafa átt þátt í að hefja handverk aftur til aukinnar vegsemdar með list sinni, sem þau kjósa að kalla alþýðulist. Þau vinna gjarnan úr því sem við hend- um. Edda Kristín Björnsdóttir og Hlynur Kristinn Halldórs- son eru bornir og barnfæddir Austfirðingar. Edda er fædd og uppalin á Eskifírði og var þar við nám og störf fram til 16 ára aldurs að leiðin lá í Alþýðuskólann á Eið- um. Hlynur er fæddur á Eiðum en flutti ungur með for- eldrum sínum að Miðhúsum við Egilsstaði og hefur verið þar síðan nema rétt á meðan hann skrapp til Reykjavík- ur til mennta. Þau eiga einn son; Fjölni Björn sem er 21 árs og stundar nám við Iðnskólann í Reykjavík. Heima er bezt 317

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.