Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1996, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.09.1996, Blaðsíða 13
Handverk Munir frá Miðhúsum; nœlur úr hreindýrshári og horni. rætur í þjóðarmenningu íslend- inga. Við finnum samhljóm hjá nágrönnum okkar á norðlægum slóðum, sérvitringum eins og okk- ur. Það er mjög brýnt að geta farið um og kynnst því sem er að gerast annarsstaðar. Við höfum haft lítið svigrúm til slíks. Við höfum reynt að kaupa bækur og blöð og náum straumum inn þannig en það kemur auðvitað ekki í sama stað niður. Okkur var boðið í námsferð til Finn- lands á vegum bændasamtakanna og það var mjög góð ferð. Við sáum þá meðal annars að íslendingar hafa enga ástæðu til að hafa minnimáttar- kennd yfir sínu handverki. Það sem við erum að gera er fyllilega sambæri- legt, þrátt íyrir litla hefð í handverki hér. Við fengum þarna svolítinn sam- anburð. En til þess að geta lifað af þessu þá þurfum við að vera með mjög fjölbrcytta vinnslu. Markaðurinn er svo lítill að við þurfum stöðugt að koma fram með eitthvað nýtt.“ Munir frá Miðhúsum, smíðaðir úr hrosshófum. ur hefur alltaf langað til að fara og læra eitthvað af öðr- um. Mest langar okkur að heimsækja Norður-Noreg og Norður-Svíþjóð, Sama og Grænlendinga, jafnvel Indíána. Þjóðir, sem hafa lært að lifa af því sem náttúran gaf þeim, eins og íslendingar hafa gert, þjóðir, sem við eigum ým- islegt sameiginlegt með. Við eigum minna erindi suður í Evrópu. Þar er mikill íburður og útflúr og slíkt á sér ekki „Handverk á íslandi er á uppleið, einkum hvað varðar viðhorf og skilning almennings. Virðing fyrir því sem fólk vinnur með höndunum er að aukast. Það er auðvitað misjafn sauður í mörgu fé og í uppsveiflu eins og verið hefur undanfarin ár eru allir sótraftar á sjó dregnir. Þannig hafa ýmsir kennt sig við handverk, sem í raun hafa bara verið að föndra. En úr þessu hefur dregið aftur. Við sjáum það best á sýningunum, sem hafa verið haldnar á Hrafnagili. Á fyrstu sýn- ingunni ægði öllu saman en svo hafa þeir helst úr lestinni sem eru ekki að fást við raunverulegt handverk. Það sem kannski skilur helst á milli er að þeir sem eru við handverk, þeir eru að skapa, þeir leggja sig í það sem þeir eru að búa til. Venjuleg handavinna er auð- vitað nauðsynleg og oft mjög góð dægrastytting; prjónles og annað slíkt. En handverk er annað og skilningur á þessum mun er að aukast ásamt áhuga fýrir handverki. Sérstaklega á það kannski við um fólk sem hefur dvalist í útlöndum, í löndum þar sem er rík handverkshefð. Það lærir að gera kröfu til handverks og meta það.“ Heima er bezt 325

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.