Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1996, Blaðsíða 25

Heima er bezt - 01.09.1996, Blaðsíða 25
áður. En báðir þessir menn voru þó af náttúrunni þrifnaðar- og hirtnis- menn. Mér fannst eins og þeir hefðu gengið ofan i jörðina, bæði andlega og líkamlega síðan ég sá þá síðast. Þeir voru miklu daufari í bragði, orð- færri og áhyggjulegri. En ekki vildu þeir samt kannast við að þeim leidd- ist eða liði illa. En þeir þurftu ekki að segja mér það, ég sá að höfuð- staðarloptið hafði ekki orðið þeim hollt. Og ég frétti það annarsstaðar frá, að efnahagur þeirra væri þannig að eignir þeirra mundu ekki nándar- nærri hrökkva fyrir skuldum ef eptir þeim væri gengið. Auk þess var ann- ar farinn að drekka til muna, en var mesti reglumaður heima í sveitinni sinni. Þótt ég hafi nefnt aðeins þessi dæmi er ég þekkti, þá veit ég að þau eru miklu fleiri. Hinsvegar kemur mér ekki til hugar að neita því að ýmsir hafi haft „gott upp úr því“ að flytja til Reykjavíkur, einkum menn, sem ekkert höfðu að missa, engar eignir áttu og ekki hafa sett sig úr færi að taka hverja vinnu er fáanleg var. En ég þekki svo mikið til að það, sem margir sveitabændur flaska á, þegar þeir eru orðnir búsettir í Reykjavík, það er of mikil eyðsla fyrstu árin, í samanburði við efna- haginn. Menn hugsa ekki út í það að það er dýrt að búa í höfuðstaðnum. Þeir finna ekki svo mjög til þess í fyrstu, meðan þeir eru að eyða bús- leifunum og þurfa ekki beinlnis að kaupa allar nauðsynjar, en þá er þær eru þrotnar, sem opt mun verða nokkuð fljótt, þá þyngist fyrir fæti. Og þá mun „sveitabændunum" gömlu í Reykjavík veita fullerfitt að hafa í sig og á, að minnsta kosti sum- um hverjum. Eg þekki vel þetta gamla viðkvæði hjá bændum þeim, er til Reykjavíkur flytja, að þeir geti ekki haldist við í sveitinni fyrir vinnufólkseklu, háu kaupgjaldi, o.s.frv., og skal ég sist neita því, að það hafi við nokkur rök að styðjast, einkum í sumum sveitum. En það er allsstaðar við einhverja erfiðleika að stríða í lífinu. Menn flýja þá ekki þótt þeir flytji til Reykjavíkur. Og svo hefur mér sýnst að menn verði að hafa þar töluvert fyrir lífinu, ef vel á að ganga, að minnsta kosti þeir, sem eiga að lifa af handafla sínum. Og það segi ég satt að þótt ég sé eng- inn búhöldur í sveit og finni að kaup- gjald vinnufólksins sé hærra en áður var og erfitt að halda góðum hjúum, þá mundi hagur minn þurfa töluvert að breytast til þess að ég flytti til Reykjavíkur. Mér finnst eins og ég væri þá orðinn annarra þjónn, sem daglaunamaður, kominn upp á náð og ónáð vinnuveitandans, auk þess sem ég er handviss um að ég veslað- ist upp úr leiðindum ef ég hefði ekki alltaf eitthvað fyrir stafni. Eg hefði enga skemmtun af að eigra þar að- gerðalaus á mölinni eða híma við búðardiskinn. Og svo er ég nærri viss um að ég yrði efnalaus á fáum árum. Ég kynni ekki að lifa í Reykja- vík. * * * „Þú getur ekki trúað því,“ sagði kunningi minn, „hversu rammstöð þessi bæjarstjórn okkar er, þá er kvartað er um eitthvað fyrir henni, einkum að því er hreinlæti í bænum snertir. Hún hristir bara höfuðið og ansar engu. Tíminn er ekki kominn, segir hún, til að sinna ykkur. Þið verðið að sætta ykkur við óþefinn og óþrifnaðinn nokkur ár enn, meðan heilbrigðisnefndin okkar er að semja heilbrigðissamþykktina, því að þar fáið þið reglur, sem þig eigið að lifa eptir, og þær munu kenna ykkur að vera ekki að kvarta um hégóma einn og ónáða fulltrúa ykkar að óþörfu.“ Ég gat ekki bundist þess að láta í ljósi undrun mína yfir því, að svo lít- ið væri gert til að efla þrifnað og hreinlæti í bænum og hvernig stæði á því að þetta væri látið draslast svona ár eptir ár. En kunningi minn sagði að þeir væru að bíða eptir kólerunni eða næmum sóttum til þess að geta orðið dálítið betur vakandi. Kunningi minn sagðist reyndar efast um að þeir rumskuðust við það, þeir vísu herrar, þeir myndu líklega álíta eptir sem áður, að sunnlensku rigningarn- ar væru einhlítar til að gera sumar- loptið lífvænlegt í bænum. Og það er víst mikið hæft í því að rigningunum á Reykjavík að þakka, að hún er ekki hið argasta pestarbæli á guðs grænni jörð. En sú heilbrigðisstjórn getur reynst nokkuð stopul, eins og reynd- in varð á í sumar, enda fannst mér, sem er óvanur slíku lopti, að það ætl- aði að líða yfir mig er ég gekk um sumar allra fjölförnustu götur bæjar- ins, t.d. Bankastræti og Austurstræti, svo var ódaunninn úr sorprennunum megn. Ég öfunda ekki þá, sem eiga að svelgja í sig þetta pestarlopt dag- inn út og daginn inn. Ég er að minnsta kosti viss um að ég héldi ekki lengi heilsu innan um annan eins óþverra. Og þess vegna stórfurðar mig á hvað þið Reykvík- ingar eruð þolinmóðir við bæjar- stjórn ykkar, að þið skulið ekki kúga hana til að ráða verulega bót á þessu bæjarhneyksli og bæjarvoða, því að ég skil ekki annað en að þér gætuð það, ef þér væruð samtaka. Ég skil ekki í því hvernig þið látið viðgang- ast að safngryfjur hálfopnar og alopnar, séu hafðar niður um allan bæ, þétt við húsin, svo að varla verð- ur þverfótað fyrir þeim, ekki síst niðri í kvosinni. Og þá er ekki heldur þrifnaðarauki að fjósunum ykkar, sem þér hafið á víð og dreif um allan bæinn. Þið ættuð að banna að hafa öll fjós og allar safngryfjur og forar- vilpur, að minnsta kosti við allar að- algötur bæjarins, helst aðhafa það allt saman einhversstaðar utan við bæinn. Fyrr en það er gert, komið þið aldrei neinu lagi á þrifnað í bæn- um, þangað til verður hann fyrir- mynd óþrifnaðar og óhollustu. Ykkur er bráðnaauðsynlegt að búa sem fyrst til nokkur neðanjarðarræsi í sjó út. Það ætti ekki að kosta offjár, að minnsta kosti í þeim hluta bæjarins, er næst sjónum liggur. Það hlýtur að vera einkennilegt fyrir útlendinga að sjá kúahjarðimar vera reknar um bæinn þvert og endi- langt, kvelds og morgna, enda hef ég ................. V................ ZáCZHeima er bezt 337

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.