Æskan - 01.04.1964, Qupperneq 14
ÆSKAN
Barnastúkan
S V A V A
J^arnastúkan SVAVA nr. 38, Rvík,
átti 65 ára afmaeli 4. desembei'
sl. og var þess minnzt á hátíðafundi,
sem haldinn var sunnudaginn 8. des.
Tóku þar ýmsir til máls og minntust
þessara tímamóta í sögu stúkunnar.
Stórgæzlumaður sat fund þennan,
flutti kveðjur og þakkir og færði stúk-
unni fagran Reglufána að gjöf.
Fyrsti gæzlumaður SVÖVU var Sig'
urður Júlíus Jóhannesson, þá lækna-
nemi, en núverandi gæzlumaður er
frú Lára Guðmundsdóttir, kennari-
Við flytjum stúkunni SVÖVU nr-
38 hjartanlegar hamingjuóskjr og
þakkir fyrir ágæt störf, í tilefni þess'
ara tímamóta, og birtum hér tvaer
myndir, sem teknar voru á afmæbS'
fundinum.
Núverandi embættismenn stúkunnar.
65
ARA
Félagar og gestir á afmælisfundinum.
Bátarnir lágu þarna alveg við sölutorgið og Árný lét
sér detta í hug, að svona væri hægt að hafa það á plan-
inu fyrir neðan hraðfrystihúsið í Hafnarfirði.
Öðrum megin á torginu voru þeir, sem seldu fisk.
Þarna var maður með gríðarstóra lúðu og hann skar
sneiðar eftir því hvað viðskiptavinunum hentaði. Annar
seldi þorsk og einhvern röndóttan fisk, sem Árný kunni
ekki að nefna. og svo voru margir, sem seldu krabba og
það voru nú meiri krabbarnir. Árnýju leizt ekki meira
en svo á, því krabbarnir skriðu, allir út á hlið, og þeir
voru ljótir og talsvert svakalegir fannst henni. Eftir að
hafa skoðað þessa hlið torgsins, fóru þau að athuga hvað
væri á boðstólum hinum megin. Fyrst varð fyrir þeim
kona, sem seldi túlípana og önnur blóm. Þar næst var
önnur, sem seldi heimatilbúnar brúður í þjóðbúningum.
Þessa konu leizt Árnýju bara vel á, enda reyndist hún
viðræðugóð og var án efa bezta manneskja. Eftir að hafa
talað við konuna og fræðzt um ýmislegt varðandi þjóð-
búninga, komu þau til eggjasala og þar næst til konu, sem
seldi kál. Þarna var mikið líf og fjör og kaupskapurinn
í fullum gangi, enda stendur markaðurinn ekki nema
fram yfir hádegi dag hvern. Sumir kauphéðnarnir höfön
sett upp stórar regnhlífar til þess að skýla sér fyrir regn-
inu, en Árnýju fannst ekki mikið til koma, enda var
hlýtt í veðri og líkur fyrir að stytti upp.
Þau gengu niður á „Bryggju", en svo nefnist strand'
gatan öðrum megin við Víkina, og þar er skrifstofa Flug'
félags fslands. Gylfi var önnum kafinn við afgreiðsl11
þegar þau komu, svo ekki var vert að tefja of lengi. Skrif'
stofan er vistleg og þar voru margar fallegar myndir fra
íslandi og myndir af flugvélum Flugfélagsins.
að fara og líta í búðarglugga og Árný sagðist þurfa a®
verzla heilmikið. Hún ætlaði að kaupa handa systkyn'
um sínum og hún ætlaði að kaupa handa mömmu °S
pabba og eitthvað fleira og svo auðvitað eitthvað handa
sjálfri sér til minningar um Bergen.
122
Framhald.