Æskan - 01.11.1969, Side 59
fslenzka landsliðið i knattspyrnu leggur af stað til Noregs i júlí 1969.
nianni, sem ekki lék drengilega, var þeg-
ar í stað vísað af leikvclli, af sinum eig-
in félögum. Dómarar voru fyrst nefndir
i reglum frá 1880, og voru þeir þá l)rír,
einn á hvorum vallarlielmingi og einn
eins konar yfirdóinari. Hann var utan
vallarins og til hans gátu hinir dómararn-
ir áfrýjað,^ ef ágreiningur varð á milli
þeirra. Vald yfirdómarans smá jókst, og
árið 1890 var hann færður inn á völlinn
og honum fengið alræðisvald, en hinir
dómararnir voru liins vegar teknir út af
Vellinum og gerðir að aðstoðarmönnum
yfirdómarans fyrrverandi eða linuvörð-
um eins og nú er kallað.
Ef við sæjum knattspyrnukappleik, sem
leikinn væri samkvæmt þessum gömlu
reglum, mundi margt koma okkur ein-
kennilega fyrir sjónir. Innkast var tekið
með annarri hendinni, og köstuðu sumir
leikmenn allt að 70 metrum. Engin mið-
lína var á vellinum og ^kiptu liðin um
mark í livert skipti sem mark var skorað.
Engin þverslá var á markinu og net
þekktust ekki fyrr en 1891. Markteigur
var merktur með tveimur hálfhringum.
Um aldamótin var leikurinn þó- orðinn
nijög líkur því sem nú er, og seinasta
mikilsverða hreytingin á lögunum má
segja að hafi verið hreytingar á rang-
stöðureglunum 1925, ])egar ákveðið var,
að leikmaður þyrfti ekki að hafa nema tvo
andstæðinga á milli sin og marksins á
þvi augnahliki, cr knettinum væri leikið
i átt til hans af samlierja.
Með stofnun enska knattspyrnusam-
bandsins 1863 varð leikurinn að sannri
þjóðariþrótt Englendinga, og það sem
meira er um vert, þá tóku enskir kaup-
menn, sjómenn, stúdentar og nýlenduhú-
ar að ryðja honuin braut um heim allan.
Hófst þá keppni milli landa, og árið
1904 var alþjóða knattspyrnusamhandið
FIEA stofnað. Efndi FIFA til heimsmeist-
arakeppni i fyrsta sinn árið 1930, en áð-
ur höfðu sigurvegarar á Ólympíuleikum
talizt heimsmeistarar.
Um og eftir aldamótin 1900 voru Eng-
lendingar langbeztir í þessari ijirótt, en
Danir og Hollendingar tóku snemma að
reynast þeim erfiðir.
Framhald.
Þannig fór knattspyrnuleikur fram í fornöld.
551