Æskan - 01.11.1969, Page 69
ÓÐMENN skipa Jóhann G. Jóhannsson, bassaleikari, Ólafur Garð- Á þessari mynd eru þau skötuhjúin Paul og Linda McCartney og
arsson, trommur og Finnur Stefánsson, gítar. með þeim á myndinni er dóttir þeirra Mary. Þessi mynd var sú
fyrsta sem tekin var af Mary litlu og tók Paul hana sjálfur.
Kallið mig ekki Geira í Tempó
Hver þekkir Þorgeir Ástvaldsson? Þeir
eru líklega fleiri, sem þekkja hann undir
nafninu Geiri í Tempó.
Þorgeir segir sjálfur: ,,Mér finnst leiðin-
legt, hvað Tempó-nafnið loðar alltaf við
mig.“ Þorgeir lagði mikla áherzlu á þetta,
er ég talaði við hann.
Eins og að ofan má sjá, þá snerust
viðræður okkar ekki alltaf um pop og gekk
það stundum svo langt, að við vorum komn-
ir út í málefni eins og stjórnmál — en nóg
um það.
SEMUR LÖG * Þorgeir er eins og allir
hinir strákarnir. Á sumrin stundar hann
verkamannavinnu, en á veturna er hann í
skóla.
Svo vilcli til nokkru siðar af
einskœrri tilviljun, að einn af
framámönnum plötufyrirtækis-
ins RCA rakst á eintak af plötu
]>cirra Zagers og Evans. I>að
var ekki að þvi að spyrja, þeir
skrifuðu undir samning, og frá
þeim degi var þeim borgið.
Nú eru þeir orðnir heims-
frægir og spila fyrir aðeins
meira en þegar þeir byrjuðu,
en það var á kínverskum veit-
ingastað, og fengu þcir að
borða fyrir ómakið. I>eim þótti
maturinn á þessum veitinga-
stað sérstaklega góður.
,,Ég er í Menntaskólanum ( Reykjavík, —
fer í fimmta bekk,“ sagði hann, er ég hafði
spurt hann, hvort hann væri f fjórða bekk.
Geiri spilar á píanó og harmoniku í frí-
stundum sínum, en efnahagur leyfir honum
ekki að eiga orgel og fylgidót þess.
Er ég spurði, hvort hann semdi lög,
sagði hann: ,,Já, — bara svona fyrir sjálf-
an mig.“
„Þú hefur ekki áhuga á að semja fyrir
aðra?"
,,Nei,“ sagði hann og brosti.
BLUES i HÓFI * Músik, sem hljómsveitir,
eins og Led Zeppelin og Blood, Sweat and
Tears spila, er uppáhalds-músík Þorgeirs.
„Blues-músík er góð í hófi,“ sagði hann
er ég spurði. ,,Ég vil hlusta á hana til til-
tilbreytingar frá annarri tónlist."
Trúbrot finnst honum bezta islenzka
hljómsveitin. Náttúra er skemmtileg og með
góða músík, Júdas stendur fyrir sínu.
„Ómar Ragnarsson erlíka mjög skemmti-
legur,“ bætti hann við.
ENGIN FJÖLBREYTNI * Um islenzkar plöt-
ur sagði hann: „Allt of mikið er gert af
því að gefa út plötur með vinsælum erlend-
um lögum, en íslenzkum textum."
Hann minntist einnig á, að upptöku-
tækni væri notuð allt of lítið, og yfirleitt
væru það sömu gömlu hljómsveitirnar, sem
ganga fyrir I plötuútgáfunni.
Sem sagt engin fjölbreytni.
TEMPÓ * Þorgeir segir, að Tempó hafi
spilað meira fyrir ánægjuna en nokkuð ann-
að. Ástæðan fyrir því, að þeir hættu, var,
að þeir töldu skólann mikilvægari en
hljómsveitina. Það hefur ekki verið auð-
velt fyrir þá að hætta. Fyrir dyrum stóð
bæði plötuupptaka og ferðalag til Svíþjóð-
ar. Þorgeir segist ekki vilja fara í hljóm-
sveit aftur. „Fyrirkomulagið er orðið svo
breytt og ég yrði þá að hætta i skóla."
561