Æskan - 01.11.1969, Blaðsíða 71
Ljósm.: Ólafur Magnússon.
vélin upp í 3595 m hæð. Eftir þetta ár var flugvélin seld, þar eð
félagið gat ekki starfað áfram vegna fjárskorts. Flugvélin var
send héðan 15. sept. 1921 til Danmerkur.
AVRO 504 K: Hreyflar: Einn 110 ha. Le Rhone. Vænghaf: 10,97
m. Lengd: 8,48 m. Hæð: 3,20 m. Vængflötur: 31,12 mJ. Farþega-
fjöldi: 1. Áhöfn: 1. Tómaþyngd: 557 kg. Hámarksflugtaksþyngd:
724 kg. Farflughraði: 128 km/t. Hámarkshraði 153 km/t. Flugþol: 3
klst. Flughæð: 3.960 m. 1. flug: 1913. Aðrar athugasemdir: Á
stríðsárunum fyrri voru smíðaðar 8.340 flugvélar af gerðinni Avro
504, en sú síðasta var smíðuð 1931. Á stríðsárunum síðari voru
enn nokkrar í notkun (gríski flugherinn). Raðnúmer Islenzku flug-
vélarinnar var H 2545. Þessi flugvél olli banaslysi i Vatnsmýrinni
27. júní 1920, og hún var fyrsta flugvélin, sem nauðlenti á íslandi
(26. júlí 1920).
IRWIN METEORPLANE
Þessa flugvél keypti hingað Albert Jóhannesson, þá bifreiðar-
stjóri á Vífilsstöðum. Hann pantaði hana 18. júní 1929 og hún
var send frá San Francisco 2. april 1930 með gufuskipinu Peru
(eign Austur-Asíu-félagsins) til Kaupmannahafnar. Hingað kom hún
um 10. júní 1930.
Ljósm.: Jóhann Þorlákssson.
Hún var smiðuð 1928 hjá Irwin Aircraft Co., Irwin Field (nú
Sacramento Municipal), Sacramento, Kaliforníu.
Flugvélin var sett hér saman 12. og 13. júnl, og gerði það
Helgi S. Eyjólfsson, sem þá var nýkomin heim frá flugnámi I
Vesturheimi. 14. júnl reyndi Helgi að fljúga flugvélinni, en völl-
urinn (túnið við Vífilsstaði) reyndist ekki nógu langur og eitthvað
var að mótornum. Nokkru slðar flaug Sigurður Jónsson henni.
Albert Jóhannesson hugðist einnig fljúga, en lenti I mishæð og
flugvélin brotnaði eitthvað.
Um mitt ár 1931 keyptu Bergur G. Gíslason og Erling Smith
flugvélina og gerðu við hana. 20. febrúar 1932 hlekktist henni á I
Ljósm.: Erling Smith.
flugtaki vestur á Melum og skemmdist nokkuð. Þeir Bergur og
Erling gerðu aftur við hana. Helgi Eyjólfsson flaug henni af Mel-
unum til Vífilsstaða.
5. maí 1932 flaug Björn Eiríksson henni af túni nálægt Kleppi,
flaug yfir bæinn og lenti aftur á sama stað eftir 35 mínútna flug.
Annar flugmaður ætlaði einnig að fljúga þennan dag, en þá varð
það óhapp, að flugvélin missti hæð í beygju. Féll hún til jarðar
og brotnaði mikið. Þessi flugvél var til sýnis á flugvélasýningunni
! K.R.-húsinu 12,—16. júní 1932.
Þeir Erling og Bergur gerðu nú enn við og endursmíðuðu flug-
vélina. Henni var flogið upp úr Vatnsmýrinni, en lenti þá á hurðar-
umbúnaði á flugskýii Hollendinganna, og brotnaði flugvélin illa,
en flugmaðurinn slapp ómeiddur.
Eftir þetta seldu þeir Bergur og Erling Pétri (frá Vatnskoti)
Símonarsyni flugvélina í því ástandi, sem hún var. Pétur notaði
úr henni mótorinn í vélsleða, sem hann hafði smíðað, og lauk
þar með sögu ,,lrwinsins“ sem flugvélar.
IRWIN METEORPLANE Model F-A-l: Hreyflar: Einn 20 ha.
Irwin Meteormótor. Vænghaf; 6,05 m. Lengd: 4,20 m. Hæð:. 1,80
m (stél á lofti). Vængflötur: 10,0 m2. Áhöfn 1. Tómaþyngd: 109 kg.
Hámarksflugtaksþyngd: 204 kg. Arðfarmur: 20 kg. Farflughraði:
105 km/t. Flugdrægi: 400 km/t. Flughæð: 2400 m. 1. flug: 1916.
Aðrar athugasemdir: Alls voru fullsmíðaðar og samsettar um 180
Meteorplane-flugur, en auk þess voru mörg hundruð seldar í
fullsmíðuðum stykkjum.
JUNKERS F 13 - ísland-2
Þessi flugvél kom hingað með Goðafossi 16. júní 1930. Eigandi
hennar var Flugfélag íslands hf. Hún hlaut nafnið Veiðibjallan,
en á skrokknum bar hún einkennið ISLAND-2. Hún var smíðuð hjá
Junkers Flugzeugwerke AG í Dessau, Þýzkalandi.
Ljósm.: Björn Björnsson.
563