Æskan - 01.11.1969, Síða 76
4. Hvaða undirbúningsmenntun þarf
nemandi að hafa?
SVAR: Þeir, sem ætla sér að vera 4 ár
í skólanum og fá full réttindi, verða að hafa
miðskólapróf. Af hinum, sem f styttra námi
eru, er ekki krafizt neinnar sérstakrar und-
irbúningsmenntunar.
MatreiOslumaður s Matselja
J bréfi til þáttarins er spurt um nám í
matreiðslu. Þetta bréf, sem er frá
Siglufirði, er frá „einni, sem langar til að
verða kokkur.“ — Já, ekki er því að neita,
að oft eru þeir eða þær, sem við mat-
reiðslu fást, kallaðir kokkar, en ekki er það
nú sem bezt íslenzka, heldur mun þetta
orð vera sletta úr dönsku eða norsku. I
gamla daga var talað um eldamenn og
eldakonur eða eldabuskur, en í nútfðar-
mála eru þau kölluð matreiðslumenn og
matsveinar, matreiðslukonur og matseljur.
Starf matreiðslumanns er í því fólgið að
búa til ætan mat og þá helzt sem beztan
og lystugastan. Hann þarf að vera hraust-
ur til heilsu, hafa heilbrigð lungu og sterka
fætur, því að hann (eða hún) þarf of að
vinna langtímum saman standandi. Hann
þarf að hafa næman smekk, því að góður
matsveinn bragðar ætíð á þeim réttum,
sem hann býr til handa öðrum. Einnig þarf
hann að vera lyktnæmur og frekar smekk-
vís á liti og samsetningu þeirra. Oft er það
svo, að matsveinninn annast sjálfur kaup
á efninu í matinn og þarf hann því að
hafa staðgóða vöruþekkingu á öllu þvl, er
að matvælum lýtur. Ráðdeildarsamur og
reglumaður þarf hann helzt að vera, ef vel
á að fara úr hendi starf hans.
Nokkrar spurningar fylgja þessu bréfi og
skulum við nú leitast við að svara þeim:
1. Eru til matreiðsluskólar hér á landi
og þá hvar?
SVAR: Já, Matsveina- og veitingaþjóna-
skólinn og mun hann vera sá eini sinnar
tegundar hér á landi. Hann er til húsa í
Sjómannaskólanum í Reykjavík og skóla-
stjóri hans er Tryggvi Þorfinnsson. Síminn
þar er 19675.
2. Hve gamall þarf maður að vera til
þess að fá inngöngu?
SVAR: 16 ára.
. 3. Hve langan tíma tekur námið?
SVAR: 4 ár fyrir þá, sem vilja verða full-
numa matreiðslumenn. Vinna þarf hjá
meistara í faginu, en þrisvar sinnum á
þessum fjórum árum þarf nemandinn að
sækja námskeið I matsveinaskólanum og er
hvert námskeið 4 mánuðir. Hins vegar
þurfa sumir ekki svona langt nám, t. d.
stúlkur, sem ætla sér að starfa á veitinga-
húsum. Þær komast af með nokkru styttri
tíma, eða nokkurra mánaða námskeið. •—
Um allt þessu viðvíkjandi er bezt að fá
upplýsingar hjá skólastjóra.
568