Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1971, Blaðsíða 12

Æskan - 01.02.1971, Blaðsíða 12
Ahrif áfengis 10. Sigurður Gunnarsson Skapgerðar- breyting af völdum áfengis Margir hafa séð og flestir vita, að ölvaður maður hagar sér öðruvísi en þeg- ar hann er allsgáður. Útlit hans breytist mjög, hann verður lausmáll, segir margt, sem hann hefði annars ekki gert, og verð- ur oft tillitslaus og harðleikinn. Áfengið breytir skapgerð mannsins og framkomu á meðan áhrif þess vara. Ef einstaklingur neytir áfengis oft og um lengri tíma, getur það valdið varan- legum skaða. Þá getur skapgerðarbreyt- ingin orðið varanleg. Það birtist meðal annars í flótta frá veruleikanum, óáreiðan- leika, viljaleysi og sljóleika. Og oft gætir einnig tortryggni, afbrýðisemi, bráðlyndis og hrottaskapar. Ekki fer þannig fyrir nærri öllum, sem neyta áfengis. En það getur farið þannig og hefur gerzt með mjög marga. Það sýnir ótvírætt, að allir, sem neyta áfengis, tefla á tvær hættur. En sú mikla áhætta, sem menn baka sér með því, er í raun og sannleika alveg ástæðulaus, því að enginn hefur þörf fyrir að nota áfengi til drykkjar, — og það er öruggast að gera það ekki. ☆ Eins og þið, sem hafið lesið þessa tíu litlu þætti, hafið áreiðanlega veitt athygli, fjalla þeir fyrst og fremst um áhrif áfengis á einstaklinginn. Eftir er þá að minnast á hin miklu, tilfinnanlegu og skaðsam- legu áhrif, sem áfengið hefur í félagslegu tilliti og á þjóðfélagið í heild. Ef ritstjór- inn og þið lesendur óskið, verður rætt um þau áhrif siðar. Ég þakka ykkur fyrir samfylgdina og óska ykkur allrar blessunar. (Aðalheimild: Erling Sörli: Barnebladet MAGNE. Baldur Johnsen, læknir, hefur lesið alla þættina og veitt mér mikilvæga aðstoð.) S. G. ORRUSTAN ViB WATERLOO g. 18- i8ní 1815 var Napóleon keisari endanlega sigraður af sameinuðum enskum og prússneskum herjum í orrustu nálægt belgísku smáþorpi, Waterloo, sem er um 20 km ^ suður af Brussel. Það var þann 27. febrúar sama ár, sem Napóleon yfirgaf eyna Elbu, þar sem hann hafði dvalizt i útlegð. 1. marz steig hann á land í Suður-Frakklandi með 1000 manna ,,her“ og 4 failbyssur. Ferð hans norður allt Frakkland varð samfelld sigurför. Hvarvetna fögnuðu honum gamlir samherjar, reiðubúnir á ný til bardaga undir stjórn hans. Samtímis flýttu foringjar hinna stórveldanna í Evróþu, er setið höfðu á Vínarfund- inum, sér að brennimerkja Napóleon sem ,,óvin heimsfrjðarins". Samanlagt gátu stórveldin komið upp 700 þúsund manna her. Þessi fjöldi var þó nánast aðeins fræðilegur möguleiki. Á móti var herstyrkur Napóleons um 1. júni yfir 360.000 manna, en aðeins á pappírunum, í mesta lagi 200 þúsund voru nothæfir í raunverulegan bardaga. Trúr þeirri gömlu meginreglu sinni i herfræði, að „árás sé bezta vörnin“ kaus Napóleon að ganga á hólm við andstæðinginn utan við landamæri Frakklands. Hann valdi Belgíu sem orrustuvöll. Þar höfðu Englendingar undir stjórn hertogans af Wellington komið upp aðalstöðvum sinum, nánar tiltekið í Brussel. Prússar, undir stjórn engu minni stríðsmanns, Bluchers marskálks, höfðu aðalstöðvar í borginni Namur. Herlið Napóleons þrammaði nú norður á bóginn jafn óttalaust og framast er unnt að vera. Þegar orrustan mikla við Waterloo hófst, hafði franski herinn á að skipa 124.888 manns, þar af 89.415 fótgönguliðum, 23.595 manna riddaraliði og 11.578 manna stórskotaliði með samtals 344 fallbyssur. Wellington hafði á að skipa 93.7^17 manna herliði (69.829 fótgönguliðum, 11.879 riddurum, 9.406 stórskotaliðum og 196 fallbyssum) og Blúcher hafði 120.954 menn (99.715 — 11.798 — 9.360 og fallbyssur voru 312). 12
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.