Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1979, Blaðsíða 13

Æskan - 01.01.1979, Blaðsíða 13
Áöur en þeir slitu fundi fengu þeir sér að reykja. Þeir reyktu reyndar ekki sígarettur eins og venja er, heldur þurrkuð strá og njóla. Upphaflega höfðu þeir allir reykt, en einn dag kom Nonni iitli íbygginn á fund. — Pabbi se-egir að menn ge-eti fengið krabbamein af að reykja strá, stamaði hann. (fyrstu hafði enginn trúað honum, en þegar hann sagði að pabbi sinn væri for- maður krabbameinsfélagsins, þá fóru sumir að efast um hollustu stráreykinga. Kalli feiti byrjaði að reykja njóla, en Kobbi og Nonni litli hættu alveg að reykja. Kvöldið virtist aldrei ætla að líða. Sólin seig letilega niður í hafið og haustmyrkrið skall á. Fimm drengir sem hefðu átt að vera í fasta svefni skriðu út um herbergisglugga sína og önduðu að sér svölu næturloftinu. Klukkan var tvö eftir miðnætti, þegar þeir hittust við hraunjaðarinn. Þeir töluðu ósjálfrátt í hálfum hljóðum til að trufla ekki dauðaþögn næturinnar. — Haldiði að Ti-tittlinga-Stí-stína sé ekki örugglega sofnuð? stamaði Nonni litli. Hann hryllti ennþá svolítið við tilhugsunina um að lenda í klónum á kerlingunni. — Strákar! Við skulum læðast hérna yfir túnið og síð- an skríða seinasta spölinn, sagði Kalli án þess að hirða um seinustu athugasemd Nonna. Kofi Tittlinga-Stínu lá dálítið frá hraunjaðrinum. Strák- arnir fóru hljóölega yfir stórt tún þar til þeir stóðu hjá hænsnakofanum. Kobbi var sá eini sem var með hamar og hann byrjaði að rífa kofann sundur. Skyndilega heyrðist illilegt hvæs í ketti sem stökk til jarðar frá kofa Tittlinga-Stínu. Drengjunum dauðbrá og þeir stirðnuðu upp, þar til þeir sáu að þetta var aðeins stór, hvítur köttur sem var að gera þarfir sínar. Ein hlið kofans var alveg komin úr og lyktin frá hænsnaskítnum var að gera út af við.drengina. — Hvaða skítafýla er þetta? spurði Mummi. — Nú, þetta er skítafýla, fífliö þitt, svaraði Kalli snöggt og bætti við níðingslega: Og steinhaltu svo kjafti! Kobbi stóð í einhverju basli. — Þetta stendur allt fast, strákar. Hænsnaskíturinn límir þetta allt saman, sagði Kobbi vandræðalega. Hon- um hafði ekki tekist að ná einni einustu spýtu úr hinum hliðum kofans. Nú voru góð ráð dýr. Denni langi og Mummi sterki vildu spreyta sig á að rífa kofann. Þeir þjösnuðust eins og óðir menn með miklum hávaða og bægslagangi. Þeim tókst loks að vekja Tittlinga-Stínu með öllum gauraganginum. Hún kom hlaupandi út með hárið út í allar áttir, klædd í slitinn náttkjól og ægileg ásýndum. — Varið ykkur! öskraði Kalli. Þrír drengjanna flúðu í áttina að hrauninu eins og skrattinn væri á hælunum á Vífllsstaðavatn. þeim. Mummi og Denni voru alltof uppteknir við niður- rifsstarfsemi sína til að heyra viðvörunaróp Kalla. Kalli feiti, Nonni litli og Kobbi voru að springa af mæði þegar þeir lágu loks öruggir Maut í hrauninu. Þá upp- götvuðu þeir sér til skelfingar að Denna og Mumma vantaði. — Hva-að skyldi mamma þeirra se-segja ef Tittlinga- Stí-stína drepu-ur þá, stundi Nonni svartsýnn. — Hún gæti varla drepið þá, lagði Kobbi til málanna. Þá yrði hún sett í fangelsi. — Hvað eigum við að segja við pabba okkar og mömmu á morgun þegar þau frétta hvarf Denna og Mumma?spurði Kobbi alvarlegur. Þetta voru óþarfa áhyggjur, því rétt í þessu röltu Mummi og Denni niður túnið eins og ekkert hefði í skor- ist. Kobbi kom fyrstur auga á þá. — Strákar! Sjáið þið það sem ég sé? sagði hann glaður. — Þeir eru ennþá lifandi, sagði Nonni litli og létti mikið. — Djöfulsins aumingjar getið þið verið að hlaupa svona burt, sagði Denni langi gremjulega og bætti við til að stríða þeim: — Þið eruð eins og hræddar rollur. Vífilsstaðavatn séð frá Gunnhlldi. 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.