Æskan - 01.01.1979, Blaðsíða 23
83- ryrill í. Mvaífirdi
er þar fjöldi vatns- og leirhvera.
Brennisteinsnáma var þar um skeið,
og var talsverður útflutningur á
brennisteini þaðan.
Hvalfjörður er lengstur og mestur
fjörður á suðvestanverðu íslandi.
Fjörðurinn, sem er mjög djúpur,
þjónaði miklum tilgangi í seinni
heimsstyrjöldinni, er Bandamenn
komu þar upp mikilli flotabækistöð.
Hún var reyndar lögð niður að
heimsstyrjöldinni lokinni, en þar er nú
olíubirgðastöð á vegum NATO.
í Hvalfirði er einnig eina hval-
vinnslustöðin á landinu, og á sumrin
er þar oft mikill fjöldi ferðamanna að
fylgjast með hvalskurðinum.
sonar, sem reisti þar bú árið 874 og
skírði staðinn eftir reyk sem hann sá
stíga af jarðhitasvæðum.
Reykjavík voru veitt kaupstaðar-
réttindi árið 1786 og munu íbúarnir þá
hafa verið um 170 talsins. Aðallega
hefur Reykjavík vaxið á þessari öld,
einkum síðustu áratugína, og eru þar
nú um 85.000 íbúar.
REYKJAVÍK
er höfuöborg íslands. Atvinnuhættir
eru margháttaðir, iðnaður, sjávarút-
vegur, verslun, opinber þjónusta og
fleira. Þá er Reykjavík aðal sam-
göngumiðstöð landsins.
Reykjavík var bústaður fyrsta land-
námsmanns íslands, Ingólfs Arnar-
21