Æskan - 01.01.1979, Page 41
I-----------------------------------------------------------
og losnað við Kai Shang og Momulla og nokkra fleiri, er
tækifæri gæfist?
Þess vegna beið Gústaf. Einhvern tíma gat það skeð, að
Momulla og Kai Shang færu á veiðar eða í rannsóknarferð
með þremur eða fjórum öðrum. Svíinn braut heilann um,
hvernig hann gæti narrað þá, sem hann vildi losna við, svo
langt frá skipinu, að ekki sæist til þess. í þessu augnamiði kom
hann hverri veiðiferðinni af stað á fætur annarri, en alltaf
virtist því hvíslað að Kai Shang, að gæta sín, svo hann veiddi
aldrei nema í félagi við Gústaf. Einhverju sinni gekk Kai
Shang á eintal við Momulla. Sagði hann þá hinum brúna
félaga sínum grun þann, er hann hafði á Svíanum. Momulla
vildi þegar hegna svikaranum grimmilega.
Kai Shang hafði raunar enga aðra ástæðu til þess að gruna
Gústaf, en sína eigin illmennsku; — hann vissi, að í Gústafs
sporum hefði hann reynt að fara þannig að. En hann þorði
ekki að láta Momulla drepa Svíann, sem var einn fær um að
stjórna skipinu. En þeim kom saman um, að ekki sakaði, þótt
þeir reyndu að hræða Gústaf til hlýðni við sig, og lagði
Momulla af stað í því augnamiði að leita bráðabirgðafor-
ingjans.
Þegar hann drap á það að leggja straks af stað, bar Gústaf
við fyrri viðbárum sínum, — að herskipið væri á sveimi í vegi
þeirra og myndi taka þá og varna þeim frekari ferða sem
frjálsum mönnum. Momulla hæddist að ótta félaga síns og
benti honum á, að enginn maður á nokkru herskipi vissi um
uppreist þeirra. Engin hætta væri því á, að grunur félli á þá!
„Ónei!“ sagði Gústaf; „Þarna skjátlast þér. Nú ertu hepp-
inn að hafa menntaðan mann eins og mig til þess að segja þér
til. Þú ert veslings svertingi, Momulla, og þekkir ekki loft-
skeyti.“
Momulla stökk á fætur og greip um hníf sinn. „Ég er
enginn svertingi," hrópaði hann. „Ég sagði þetta að gamni
mmu,'1 flýtti Svíinn sér að segja: „Við erum gamlir vinir,
Momulla; við skulum ekki rífast, að minnsta kosti ekki meðan
Kai Shang situr á svikráðum og ætlar að stela öllum perlun-
um frá okkur. Gæti hann fengið mann til þess að stjórna
skipinu, myndi hann jafnskjótt skilja okkur eftir. Héðan vill
hann bara komast vegna þess, að hann hefur einhver brögð í
huga til þess að losna við okkur.“
„En loftskeytin?“ spurði Momulla. „Hvernig snerta loft-
skeytin dvöl okkar hér?“
„Ó, já,“ sagði Gústaf og klóraði sér í höfðinu. Hann var að
hugsa um, hvort Momulla mundi vera svo einfaldur að trúa
þeirri erkilygi, sem hann ætlaði að hella yfir hann. „Ó, já? Þú
serð, að öll herskip hafa útbúnað, sem nefndur er loftskeyta-
taeki. Með þeim tala þau við önnur skip mörg hundruð mílur i
hurtu og hlusta á allt, sem sagt er á þessum skipum. Þegar nú
þið félagar voruð að ná Cowrie á vald ykkar, gerðuð þið
Getið þið hjálpað skjaldbökunni að rata rétta leið?
talsverðan hávaða og töluðuð hátt saman. Það er enginn vafi
á, að þetta herskip hlustaði á allt saman. Kannski þekkja þeir
ekki nafn skipsins, en þeir heyrðu svo mikið, að þeir vita, að
skipshöfn á einhverju skipi gerði uppreist og drap yfirmenn-
ina. Þú sérð því, að þeir munu bíða til þess að rannsaka
sérhvert skip, og mig grunar, að þeir séu ekki langt héðan.“
Þegar Svíinn þagnaði, reyndi hann að sýnast hinn rólegasti
til þess að vekja ekki grun þess, sem á hlustaði. Momulla sat
þegjandi um stund og horfði á Gústaf. Loksins stóð hann á
fætur.
„Þú ert ljóti lygarinn,“ sagði hann. „Ef þú kemur okkur
ekki af stað á morgun, muntu aldrei framar frá tækifæri til
þess að Ijúga, því ég heyrði tvo hásetana tala um sín á milli, að
þá sárlangaði til þess að reka hníf í þig, og þeir mundu gera
það, ef þú héldir þeim degi lengur í þessum hundsrassi.“
„Spurðu Kai Shang, hvort það séu ekki til loftskeyti,“
svaraði Gústaf. „Hann mun segja þér, að þau séu til, og að
skipin geti talast við yfir mörg hundruð mílna millibil. Og
segðu mönnunum, sem vilja mig feigan, að þeir muni aldrei
njóta síns hluta af sjóðnum, því ég sé eini maðurinn, sem geti
komið þeim héðan til mannabyggða.“
Momulla fór því til Kai Shangs og spurði hann, hvort til
væru tæki, sem skip gætu talast við með langar leiðir. Kai
Shang sagði þau til vera. Momulla var i vandræðum, en hann
vildi enn komast burtu af eynni og vildi heldur hætta á sjóinn
en dvelja lengur.
„Bara, að við hefðum einhvern annan til þess að stýra
skipinu!" kvartaði Kai Shang. Framh.
35