Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1979, Qupperneq 45

Æskan - 01.01.1979, Qupperneq 45
,,Þú hefur perlur og demanta, elsk- an mín, hvers óskarðu þér þá frarnar?" kvað skáldið Heine hafa sagt fyrir 100 árum. Demantar hafa löngum verið sveipaðirtöfraljóma, og margar sagnir ganga af þeim. Ind- verskir demantar voru lengi heims- frægir og var barist um suma með peningum, brögðum og slægð. Demantinn Orloff Ijómaði fyrst lengi sem auga í indversku guðalíkneski. Franskur hermaður rændi honum, og síðar komst hann í eigu Katrínar Rússadrottningar. Hann vegur 200 karöt. Hinn nafnkunni Kohinoor vegur 109 karöt og er talinn ævaforn. Mun hann nú vera geymdur í Tower kastala í Lundúnum. Þessir dýrgripir eru Ijósir og tærir, en til eru líka frægir bláir, grænir og gulir demantar. En ef þú rækist á hrádemant, mundirðu sennilega fleygja honum í hugsunar- leysi, því að hann er gráhvítur og ósjálegur. Fegurðina öðlast hrá- demantar, eftir að þeir hafa verið slípaðir af mestu nákvæmni. Hrá- demant getur verið milljóna virði. Talið er, að um 5 tonn hrádemanta séu árlega grafin úr jörðu. Þeir eru aðallega slípaðir í Antwerpen og breytast við það í geislandi skraut- steina, sem geta skinið í öllum regn- bogans litum í sterku Ijósi og jafnvel lýst í myrkri á eftir. Þeir verða raf- magnaðir við núning. Demantar hafa hörkuna 10 og eru harðastir allra steina og þó úr hréinu kolefni. Tekist hefur að framleiða ör- smáa demanta. Hrádemantar finnast hér og hvar í árfarvegum, t. d. í Ind- landi, Afríku og Brasilíu, en í ársandinn hafa þeir borist úr djúpum ,,gígum“ frá fyrri jarðöldum, og er talið, að jarðeldar hafi breytt kolefni í demanta við geysilegan þrýsting í jörðu niðri. Auðugustu demanta- námur nútímans eru í Kimberley héraði í Suður-Afríku. Er vísinda- legum aðferðum og véltækni beitt við námugröftinn á vandlega afgirtu, vörðu svæði. Er talið, að 250 tonn af demanta-blámold ,,gíganna“ þurfi að hreinsa til að fá eitt eða fáein karöt sem hafði notað of nýjan við. dýrgripa. 1 karat er um 0,2 grömm. Hrádemantar eru notaðir, vegna hörkunnar, í glerskera, 'slípitæki og borvélar. Hinn mikli demantur Cullinan, 3,106 karöt, var klofinn í 9 stykki. Undirbúningur þess tók nærri 4 mánuði! De Beers félagið í Lundúnum drottnar mjög á demantasviðinu. Það heldur sýningarmarkað tvisvar á ári, þar sem aðeins útvaldir mæta og þurfa að sækja um aðgang með góðum fyrirvara. Hugsanlegur kaup- andi er lokaður inni hjá demantinum, sem hann rannsakar kannski tímunum saman til að sannfæra sig um verðgildið. Þýðingarlaust er talið að mæta með minna en 10—20 milljónir króna í vasanum! Frægur er líka demantamarkaðurinn í Ant- werpen. Grunur leikur á, að demantanámunum sé haldið leyndum til að takmarka framboðið. Frægð demanta er mikil. Við tölum um kórónudemanta, demantsbrúkaup o. s. frv. 160 km/t. Hámarksflughraði: 225 km/t. Flugdrægi: 900 km. Þjónustuflughæð: 3.300 m. Aðrar athugasemdir: Hvít og rauð. — Ég vona sannarlega, að glertryggingin yðar sé í lagi. 39

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.