Æskan - 01.01.1979, Qupperneq 46
Fallegasti drengurinn
21 ára.
Hinn ungi Svíi, Björn Andersen fékk
þaö orð á sig að vera heimsins fal-
legasti drengur, eftir að hann lék í
kvikmyndinni ,,Dauðinn í Feneyjum"
fyrir sex árum síðan. Síðan þá hefur
lítið sem ekkert heyrzt frá hinum fagra
sveini. Björn er nú orðinn 21 árs
gamall og nýjustu fregnir herma, að
hann hafi tekið að sér hlutverk í kvik-
mynd nú á dögunum. Kvikmynd sú
mun eiga að gerast í kringum 1950,
þar sem Björn leikur pilt, sem lifir í
dagdraumum.
Er Björn er spurður um álit sitt á
þeim orðróm sem gekk um fegurð
hans eftir að hann lék í sinni fyrstu
kvikmynd, aðeins 15 ára gamall,
hristir hann bara höfuðið og segir:
,,Þetta var allt of mikið fyrir strák á
mínum aldri — það eyðilagði æsku
mína“.
15 ára.
Þú getur búið
til skipslíkan
Ef þú hefur gaman af
skipum og ert svo heppinn að
eiga heima nálægt einhverri
höfn, getur þú gert líkön af
skipunum, sem þú sérð í
höfninni.
Líkönln eru búin til úr
pappakössum, pappírs-
ræmum, venjulegum pappír
og límpappír. Límpappírínn
getið þið keypt í rúlium í
næstu ritfangabúð, hann er
brúnn og límborinn á annarri
hliðinni.
Pappakassinn þarf að vera
aflangur og úr honum er
miðhluti skipsskrokksins
gerður.
Hinir hlutar skipsins eru
svo byggðir við hann.
Úr öðrum kassa eru
klipptar breiðar papparæmur
og úr þeim búinn til fram- og
afturstafn, með því að líma
þær fastar við hliðarnar (Sjá
mynd I). Yfirbygging og brú
er búin tii úr litlum öskjum.
Möstrin eru gerð með því
að rúlla saman pappírsörk,
svo úr hennl verði rör. Rörið
er límt saman með lím-
pappírnum og möstrunum
svo stungið niður í göt, sem
gerð eru á yfirbygginguna og
þilfarið.
Reykháfarnir eru úr karton
eða pappírsrörum.
Loks er pappír límdur jafnt
og fallega yfir allt skipið, svo
að öll samskeyti hverfi og
það verði sterkara.
Þegar límið er orðið vel
þurrt, er hægt að mála sklpið
með olíumálningu. Það
verður svo sterkt, að það
getur jafnvel þolað vatn, ef
málningin hefur lokað vel
öllum samskeytum. Margir
vilja þó heldur hafa þau ein-
göngu til skrauts.
Kaupandinn: Hvernig
datt yður í hug að senda
mér svona afleita hænu?
Kaupmaðurinn: Afleita
hænu? Ég veit ekki betur
en að hún hafi fengið 1.
verðlaun á alifuglasýning-
um 6 ár í röð.
— Dálítið beturtil hægri
— þakka þér fyrir — það
er einmitt þarna, sem mig
klæjar!
40