Æskan - 01.01.1979, Page 50
Svar til Pöllu, Vestmannaeyjum: Höfundur hinna frægu bóka
um Línu langsokk er sænska skáldkonan Astrid Lindgren. Hún
er nú orðin 70 ára gömul og hefur skrifað 21 bók, sem hafa
verið gefnar út í mörgum löndum og prentaðar í yfir 16 milljón-
um eintaka. Margar sögur hennar hafa verið kvikmyndaðar og
alls staðar hlotið mikið lof. Astrid Lindgren er mest lesni
barnabókahöfundur á Norðurlöndum undanfarin ár. Hún segir
svo frá: „Eiginlega hafði ég heitið því með sjáifri mér að skrifa
aldrei bækur. Ástæóan var sú, að í skólanum þótti ég skrifa svo
góða stíla, að skólasystur mínar kölluðu mig í gamni Selmu
Lagerlöf. Og ég gat staðið við þetta heit mitt í fjölda ára. Svo
gerðist það eitt sinn, að lítil dóttir mín varð veik og lá í rúminu
um tíma. í veikindum hennar sat ég þá oft við rúmið hennar og
sagði henni sögur, sem ég bjó til jafnóðum. Það var í rauninni
dóttir mín, sem hitti á að búa til þetta skrítna telpunafn, Lína
langsokkur, en mér fannst þetta mjög skemmtilegt nafn, og
sagan um hana þyrfti að lýsa óvanalegri stelpu. Það mun hafa
verið árið 1944 að ég lá sjálf í rúminu, vegna fótbrots, og þá
fyrst kom ég því í verk að skrifa þetta niður á blað. Fyrsta bókin
um Línu kom svo út árið 1945, og hún varð ekki sú síðasta."
LÍNA LANGSOKKUR
UNGTEMPLARAR
Svar til Stefáns í Reykjavík:
Vetrarstarf íslenskra ung-
templara er nú í fullum gangi.
í Reykjavík eru félögin þrjú,
Hrönn, Ungtemplarafélag
Einingarinnar og Trölli. Tvö
þau fyrrnefndu eru með starf-
semi sína í Veltusundi 1, þar
sem þau hafa útbúið góða
aðstöðu til ýmiss konar funda.
Trölli, sem ætlaður er ungl-
ingum 13—15 ára, starfar
sem fyrr í Bústöðum. Hrann-
arar eru með diskótek í
Templarahöllinni hvert laug-
ardagskvöld fyrir unglinga 16
ára og eldri og hefur verið
feyki mikil aðsókn að kvöldum
þessum nú í vetur.
í júlíbyrjun á sumri kom-
anda verður efnt til landsmóts
ungtemplara. Er stefnt að
fjölmennu móti og mun starf-
semi félaganna beinast að
undirbúningi fyrir landsmótið.
44