Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1981, Blaðsíða 11

Æskan - 01.01.1981, Blaðsíða 11
annað. Margir fullorðnir eru hins vegar feimnir og úrræða- lausir. Þeir sitja hver á móti öðrum í vagni eða lest án þess að hafa hugmynd um hvað þeir eiga að segja." ..Og svo fá þeir sér áfengi til að fríska sig upp," sagði Óli snöggt." ..Já, ég hef einmitt oft séð það í sjónvarþinu," sagði Anna. ..Já, þetta er alveg rétt hjá ykkur. En þannig ætti það alls ekki að vera," sagði amma reiðilega. ,,Þeir ættu heldur að hafa vit á Þvíað kenna fólki að tala saman." ..Þetta hlýtur að vera gabbi, — líklega um það bil viku gam- a|l.“ sagði Óli. ..En nvaö nann er fallegur," sagöi Anna. ,,Og hvaö nann lítur fyrir að vera prúður og góður." ..Já, hann hefur alltaf verið það. Og ég vona að það verði aldrei nein breyting á því." ..Hann er það oftast," sagði Óli, — ,,þó ekki þegar hann er að Þusa við mig um lexíurnar mínar. Þá er hann ekki neitt feiminn Þó að hann sé fullorðinn." Anna hélt áfram að fletta stóru myndabókinni. Hugsa sér að til skuli vera svona margir og ólíkir menn," sagði hán- ,,Allir gjörólíkir, — og allir giftast ólíkum persónum og eyöa ævinni á mismunandi hátt. Er það ekki furðulegt?" ..Jú víst er það, vina mín," sagði amma. ,,Og það eigum við aö muna þegar við tölum við aðra. Engir tveir eru eins. Og allir e|ga við sín vandamál að stríða. Og hver og einn hefur þann rétt aö vera dæmdur af sínum eigin athöfnum, — ef þið skiljið hvað ég á við." ÓH leit til Önnu — en Anna kinkaði kolli. ..Og jafnframt erum vió einnig á margan hátt lík," sagði hún. "^ið viljum eiga einhverja sem okkur þykir vænt um. Og við viljum að einhverjum þyki vænt um okkur." ..Og allir mundu áreiðanlega vilja eiga eins ömmu og við," sagði Oli. ,,Áttu annars nokkra saft eftir handa okkur núna?" Amma kinkaði kolli og klappaði á kinn Óla. Því næst gekk hún fram í eldhúsið. 8. kafli Októberkvöld ,,En hvað það er gott að við eigum þig, amma," sagði Óli og faðmaði hana að sér. ,,Hver hefði annars getað hugsað svona vel um okkur?" ,,0-o, þið hefðuð áreiðanlega getað fundið einhvern," sagði amma. ,,Engan sem jafnast á við þig," sagði Óli. ,,lnnan skamms kemur sá tími að enginn þarf að gæta ykk- ar," sagði amma. ,,Þið eruð bæði að verða svo stórog dugleg." ,,Raunar hefðir þú nú ekki heldur þurft að koma til okkar núna ef ekkert hefði komið fyrir," sagði Óli. ,,En Anna varð svo hrædd eftir það sem gerðist í hinum stigaganginum." ,,En við þurfum ekki að tala neitt meira um það núna," sagði Anna. ,,Ég skal segja þér þaö seinna, amma, þegar Anna er að lesa lexíurnar sínar," sagði Óli..En það var eiturlyfja-neytandi, amma." Það var óttasvipur á andliti Önnu og amma tók hana um stund í faðm sinn. ,,Svona, svona, vinan mín litla," sagði hún. ,,Þú ert líklega eins tilfinninganæm og hann afi þinn. ,,Já, því gæti ég best trúaó." ,,Hvað er eiturlyf?" spurði Óli. Þegar byrjað var að tala um eitthvað vildi hann alltaf fá nánari upplýsingar, fá að vita meira. ,,Ég veit raunar ekki mikið um það, börnin mín, því að þau þekktust ekki í mínu ungdæmi og þess vegna talaði enginn um þau. En ég sá nýlega í fréttablaði að notkun þessara eiturlyfja, — eða fíkniefna eins og flestir nefna þau, — er orðin mikið vandamál meðal ungs fólks víða á Norðurlöndum, einkum þó í ÆSKAN — Æskan vill vera sjálfri sér trú. Hafna áfengi og tóbaki 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.