Æskan - 01.10.1981, Qupperneq 4
Byttótt heima hjá sér í Álfheimum.
— Já, Álfur minn, Kvíguhóll er bóndabær og þar á
Snúlla Snúss heima, hún er fallegasta læðan í sveitinni.
Snúlla og systir hennar, Simba Snúss, sem á heima á
Staðarstað, halda alltaf söngskemmtun á vorin og syngja
kattadúettinn. Snúlla Snúss lærði sönginn, þegar hún sá
tvær konur í Reykjavík syngja hann í sjónvarpinu. Þær
syngja alveg ofboðslega vel, sagði Hákon.
— Ooo, hvað ég hlakka til að heyra þær syngja, sagði
Byttótt.
— Og éégg líka, sagði Álfur.
Kettirnir höfðu ekki gengið lengi, þegar þeir rákust á
Ólajó.
— Sælinú, sagði Hákon. — Ert þú líka á leiðinni á
söngskemmtunina.
Ólijö sagöi svo vera og varð þeim samferða.
— Verða margir kettir á skemmtuninni? spurði Álfur.
— Jaa, það skulum við vona, ansaði Ólijó.
— Það kemur áreiðanlega fjöldi katta eins og í fyrra,
sagði Hákon. — Snúss systur eru toppnúmer og þeim
tókst líka svo vel upp síðast.
— Já, þær syngja ansi skemmtilega, sagði Ólijó og
kinkaöi kolli.
Skömmu seinna bættist nýr köttur í hópinn. Hann var
einnig á leið á skemmtunina. Kötturinn hét Stjáni, hann
var gulbröndóttur á bakinu, skottinu og yfir hálft höfuðið,
en hinn helmingur haussins var hvítur, bringan var líka
hvít og kviðurinn. Stjáni var tveggja ára fress, og var
hálfbróðir Ólajó og Hákon Húnvetningagreifi var pabbi
hans, þótt hann væri ekki pabbi Ólajó. Byttótt og Stjáni
voru hálfsystkin.
— Þú ert ofsapia, sagði Stjáni við Byttóttu, þegar
pabbi þeirra hafði kynnt þau.
Byttótt horfði stórum augum á Stjána.
— Þú ert líka ansi skemmtilegur á litinn og þværð þér
reglulega, sagði hún.
— Stjáni er ekkert annað en drullusokkur, sagði Há-
kon og það kom stríðnisglampi í augun á honum.
— Ég er nú samt ekki lagstur undir pilsufald stút-
ungskellingar, eins og þú pabbi, sagöi Stjáni.
— Þó ekki væri, fressköttur á albesta aldrinum, sagði
Hákon.
Kettirnir héldu áfram yfir mela og móa og mýrar.
Veðrið var alveg eins gott og nóttina áöur, eða ekki
betra. Köttunum miðaði vel áfram og áttu nú skammt eftir
ófarið aó Kvíguhól.
Söngskemmtun Snúss-systra átti að fara fram í
hrauni, hálfan kílómetra frá bænum — og rétt utan við
túngirðinguna. í miðri mosagróinni laut í hrauninu stóð
meðalstór steinn, flatur að ofan. Snúss-systur stóðu uppi
á þessum steini og buðu kettina velkomna. Þarna voru
mættir milli fimmtíu og sextíu kettir í flestum hugsanleg-
um litum — og þeir röðuðu sér íkringum steininn og biðu
eftirvæntingarfullir eftir því, aö Snúss-systur hæfu upp
raust sína. Byttótt þekkti aftur kettina, sem þau Álfur
höfðu hitt í útihúsunum — og stóri svarti kötturinn með
hvítu bringuna blikkaði Byttóttu. Nokkrir kettlingar voru í
hópnum, þeir sátu stilltir og prúðir hjá mömmum sínum,
nýþvegnir og glansandi.
Byttótt og Álfur hrukku í kút, þegar þau heyrðu
hundsgelt í fjarska, en urðu fljótt róleg, þegar þau sáu að
hundsgeltió hafði engin áhrif á hina kettina.
Nú stökk stóri svarti kötturinn með hvítu bringuna upp
á steininn til Snúss-systra. Hann leit í kringum sig á
áhorfendur.
— Gott kvöld kæru gestir, sagði hann hátt og snjallt.
— Nú syngja hinar frábæru Snúss-systur Kattadúett-
inn. Snúss-systur gerið þið svo vel.
Að þessu mæltu stökk kötturinn niður af steininum og
settist þar sem hann hafði setið áður, í fremstu röð, en
hinir kettirnir hrópuðu þrefalt húrra fyrir Snúss-systrum.
Algjör þögn ríkti á meðal kattanna, á meðan Snúss-
systur sungu Kattadúettinn af slíkri snilld, að Byttótt og
Álfur gleymdu alveg stund og stað.
Það brutust út mikil fagnaðarlæti, þegar Snúss-systur
höfðu lokið söngnum. En svo heimtuðu kettirnir meiri
söng, og Snúss-systur sungu Kattadúettinn öðru sinni.
— Meira, meira, aftur, aftur, kölluðu kettirnir, allirsem
einn, yfir sig hrifnir.
Snúss-systur sungu Kattadúettinn í þriðja sinn, en
að því loknu sleit stóri svarti kötturinn með hvítu bring-
una skemmtuninni og lét um leið í það skína, að ef til vill
héldu þær Snúss-systur aftur söngskemmtun um sum-
arið. Þær væru einmitt þessa dagana að æfa lag, sem
þær hefðu sjálfar samið. Kettirnir fögnuðu innilega — °9
þá var söngskemmtuninni lokiö.
Kettirnir röbbuðu saman góða stund þarna í hrauninu,
en fóru síðan að tínast í burtu.
Byttótt var svolítið skotin í stóra svarta kettinum með
hvítu bringuna, og virti hann oft fyrir sér, en hann gaf
henni ekki meiri gaum, eftir að hafa blikkað hana, og
Afgreiðsla ÆSKUNNAR er að Laugavegi 56, sími 17336.