Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1981, Blaðsíða 6

Æskan - 01.10.1981, Blaðsíða 6
Ljóshærður drengur fríður sýnum kom inn í blaðaafgreiðsluna. „Vantar hér blaðadreng?" spurði hann. ,,Já, fremur tvo en einn," svaraði afgreiðslumaðurinn. Hann sat þar við stórt borð og var að afgreiða blöó. Og eftir að hafa athugaó svæðin, sem um var að ræða, var það ákveðið, aó drengurinn tók að sér annað þeirra. „Hvað heitirðu og hvað ertu gam- all?" spurði afgreióslumaðurinn. „Ég heiti Ari Helgason og er tíu ára." „Sími?" „Nei, við höfum engan síma." „Þá verð ég að treysta því, að þú mætir alltaf til að sækja blöðin." Þar með var þetta mál útkljáð og Ari litli hljóp heim léttur í spori. „Mamma, ég hef fengió vinnu," „Hvað ertu að segja, barn?" „Ég hef tekið að mér að bera út blöð." „Heldurðu að þú hafir tíma til þess frá skólanum?" „Já, ég legg bara svolítið meira að mér. Ég ætla að safna mér fyrir skíð- um. Allir strákar í mínum bekk eiga skíði." „Jæja, góði minn. Þá reynir þú það." Móðir hans var í eldhúsinu og var að taka til matinn. Hún var þreytuleg, miðaldra kona. Þau Ari og hún bjuggu hér ein í lítilli leiguíbúð. Hún hét Ragna og vann í verksmiðju síðari hluta dagsins. Svo leið fram á veturinn. Ari litli hafði lagt talsvert í sparisjóðsbókina sína og sá tími nálgaðist, að hann gæti keypt sér skíði. Þá var það einn dag, aó hann kom heim grátandi, rispaður í framan með rifin föt. Móðir hans tók hlýlega á móti honum, huggaði hann og lét plástur á skrámurnar. „Hvað hefur komið fyrir, góði minn? Hvers vegna kemur þú svona útleik- inn?“ „Hann Hjálmar í Koti réðist á mig, þegar ég var að enda við að bera út blöðin, kaffærði mig og hrakti. Hann er ári eldri en ég og miklu sterkari. Það var með honum annar strákur, sem hló stöðugt meðan hann píndi mig. Verst var að ég átti tvö blöð eftir og þeir feyktu þeim út í buskann. „Það er alltaf eitthvað til af illa inn- rættum götustrákum. Við verðum víst að taka þessu eins og hverju öðru mótlæti. En blöðin þurfa að komast til kaupendanna." „Ég ersvo hræddur um, að ég verði rekinn fyrst svona fór. „Nei, góði minn. Nú fer ég til af- greiðslumannsins og segi honum frá þessum óförum þínum. Ég er viss um að hann á önnur blöð handa þér." Svo fór hún til afgreiðslunnar og skýrði frá hvað fyrir hafði komið. Hún fékk þar blöðin og fór meó þau til kaupendanna. Hann þakkaði mömmu sinni innilega fyrir, þegar hún kom heim. Það fyrntist fljótt yfir þetta óhapp og skrámurnar greru. í janúar gat Ari keypt skíðin. Þá var mikill gleðidagur á heimilinu. Nú gat hann verið úti á skíðum með félögum sínum. Næstu daga var hann alltaf á skíð- um á kvöldin. Helgi vinur hans var oftast með honum. Auðvitað gekk þetta ekki vel fyrst. Hann fékk margar byltur, en eigi að síður þótti honum þetta skemmtilegur tími. Það var unun að renna sér í hvítri mjöllinni. Ánægjan yfir hreyfingunni læsti sig út í hverja taug. Og Ari tók miklum framförum við þessar æfing- ar. Svo kom páskaleyfið í skólanum. Helgi vildi fara upp í skíðaskála á mánudaginn í dymbilviku, en það gat Ari ekki vegna útburðar blaðanna. Hann þurfti að bera blöðin út fram á skírdag. Helgi reyndi að fá hann til aó losna við blöðin, en það sagðist hann ekki geta. Hann sagðist hvorki vilja bregðast afgreiðslumanninum eða kaupendum blaðsins. Helga þótti slæmt, að Ari gat ekki komið með honum. En við það sat. Fór Helgi svo upp í skíðaskálann til dvalar þar þessa daga og til skíðaiðk- ana. Ari sat heima og bar út blöðin. En oft varð honum litið upp í fjallið, þar sem hann vissi að jafnaldrar hans voru á skíðum. En hann huggaði sig við það, að útburður blaðanna hefði þó gefið honum tækifæri að eignast skíðin, og svo ætlaði hann að vera uppi í skíðaskála frá skírdegi til laugardags. Þá mundi verða gaman- En á páskunum ætlaði hann að vera heima hjá mömmu sinni, svo að hún yröi ekki ein heima á hátíðinni. Þa ætlaði hann með henni í kirkju. Og svo rann skírdagur upp. Hann flýtti sér að bera út blöðin þennan dag og hljóp á milli húsanna. Og það var glaður drengur, sem hljóp heim til mömmu sinnar þennan fagnaðardag- Eftir hádegið fór hann að búa sig 1 skíðaferðina og mamma hans gekk frá nesti handa honum. Og skömmu síðar stóð hann ferðbúinn með skíðin sín og bakpoka með nestinu. Hann kvaddi mömmu sína og fór fagnandi móti hinum hvítu fjöllum. Hann var i léttu skapi og fann, að nú var hann að njóta ávaxtanna af því að hafa lagt á sig aukavinnu og rækt hana vel. e. sig- 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.