Æskan

Volume

Æskan - 01.10.1981, Page 11

Æskan - 01.10.1981, Page 11
Hvers vegna ... hafa sumir ótrú á því að ganga undir stiga? Það liggur í augum uppi að það getur verið hættulegt að ganga undir stiga, sem reistur er upp við vegg, því ailtaf getur eitthvað dottið niður úr stiganum. En fyrr á tímum var önnur hætta þyngri á metunum. Stiginn, sem reistur er upp við vegg myndar þríhyrning (með gólfi og vegg) og þessi þríhyrningur var talinn tákna heilaga þrenningu, föður, son og heilagan anda. Að ryðjast inn í þessa helgi gat aðeins boðað illt eitt og því var farið að krækja fyrir stiga — og margir gera það enn þann dag í dag. Hún titraði öll og röddin kafnaði í hálfkæfðum ekka. Bekkjarsystrum hennar fannst þetta eins og ævintýri — og svo leið drjúgum á hinn leiðin- lega reikningstíma. ,,Þú hlýtur að geta skilið, að það fellur grunur á þig, ef þú neitar að láta skoða í töskuna þína. Allar hinar stúlkurnar hafa gert það af fúsum vilja, en þú ert sú eina, sem beitir mótþróa. Slepptu henni nú strax!“ Kennslukonan kippti því næst í töskuna, svo að Gulla varð að sleppa henni. En hún var svo náföl, að varla sást roði á vörunum. Það fyrsta, sem kennslukonan fann í töskunni, var Ijósrauður böggull með smurðu brauði — og utan á honum, undir gúmmíteygjunni, var fimm-- krónu-seðill, tvíbrotinn. ,,Jæja, hvað segirðu svo um þetta?" spurði kennslukonan og sýndi böggulinn. ,,Ég hef engu stolið,“ sagði Gulla snöktandi. ,,Þið haldið öll aö ég sé þjófur, af því að við erum fátæk — ég hef aldrei tekið neitt frá öðrum — ég á þessa peninga . ..“ ,,Nei,“ hrópaði Magga allt í einu. ,,Þetta er brauðið mitt. Ég gat ekki borðað það allt og henti afgangin- um.“ ,,Ég sá það,“ sagði Gulla og grúfði andlitið í höndum sér. ,,Og ég sá, að á brauðinu var svo gott álegg — og litli bróðir minn er veikur — og þess vegna tók ég það.“ Hún grúfði sig niður á borðið með höfuðið ofan á handleggjunum og grét hátt. Kennslukonan leit á hana með fyrirlitningu. En þegar hún ætlaði að rétta Jóhönnu seðilinn, þaut Gulla upp aftur. ,,Ég á þessa peninga," æpti hún. ,,Ég hef unnið fyrir þeim — ég fékk þá í morgun . . ." ,,Svo — hvernig þá?“ Það var auð- heyrt, að kennslukonan trúði ekki þessari skýringu. ,,Ég sæki brauð á morgnana fyrir gamla konu og ber út öskudallinn hennar. Hún var veik í margar vikur. Fyrir þetta fékk ég 5 krónur." ,,Ef þú getur komið með þetta skriflegt frá gömlu konunni, skulum við trúa þér,“ sagði kennslukonan. En Gulla stamaði: ,,Það get ég ekki, því að hún er farin út í sveit — hún ætlaði að fara klukk- an 10.“ Þessi skýring var svo ósennileg, að kennslukonan svaraði henni ekki. Jóhanna fékk seðilinn, og nú reyndu börnin að festa hugann við námið eftir þennan viðburðaríka atburð. Gulla grét allan tímann eins og hjarta hennar ætlaði að bresta. í kennsluhléinu talaði enginn við hana. Hún var sniðgengin. En hún varð vör við, að hin börnin voru að hvíslast á um hana. Jafnvel Ella, sem var besta vinkona hennar, var svo niðursokkin að tala við Grétu, að hún ávarpaði Gullu ekki með einu orði. Algjörlega ein og yfirgefin röltiGulla um leikvöllinn. Jóhanna var mjög gröm yfir þrjósku Gullu, og hún lét móðan mása, þegar hún kom heim. Þegar hún ætlaði að endurtaka í fjórða sinn, hvað kennslukonan hafði sagt, hvernig Gulla hefði litið út, og hvað hún hefði hugsað, greip móðir hennar fram í fyrir henni: ,,Æ, aumingja barnið!" ,,Nei, nú er ég hissa. Kennir þú í þrjósti um þjófa?" ,,Já, ég kenni í brjósti um hana. Hugsaðu þér, hvað þau hljóta að vera fátæk, fyrst hún tínir mat upp úr rusladallinum. Það er vandalaust fyrir þig, Jóhanna, að vera góð og heiðar- leg. Þig hefur aldrei vantað neitt. Ef þú hefðir verið í sporum Gullu litlu, getur vel verið, að þér hefði orðið á að taka peninga ófrjálsri hendi." En Jóhanna hafði enga meðaumk-

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.