Æskan - 01.10.1981, Qupperneq 13
FÖNDURHORNIÐ
Stærðin er svo sem 24 x 8 x 2 cm. Stefnið á honum
er sagað út fyrst og síðan raufin fyrir skrúfuna
(G. F. D. E.). Línan frá F—D er sýnd á myndinni og
stendur sporjárn í henni. Ekki skulum við nota
það, heldur laufsögina, það er miklu iéttara. Tvær
gerðir af skrúfum eru sýndar þarna, önnur gerð úr
áli en sú ferkantaða úr tré. — Gott er — og raunar
nauðsynlegt — að setja stykki af blýi neðan í bát-
inn svo að hann verði stöðugri á vatninu. — Nú,
svo mætti líka setja smá siglutré á hann og
pappasegl til þess að létta undir með vélinni.
Kisurnar á stéttinni milduðust báð-
ar. Hann var nú fallegur, þótt hann
væri slæpingi!
„Kannski hann sé ekki eins stór
upp á sig og við héldum," hvíslaði
Mjallhvít.
,,Af hverju kemurðu ekki hingað
niður til okkar?" spurði Nótt.
,,Það er nú hægara sagt en gert,"
sagði Gulur. ,,Mín er gætt svo vel."
,,Vesalingur," sögðu kisurnar á
stéttinni. ,,Þú ert fangi."
,,Já, En þegar fjölskyldan fer í
sveitina fæ ég að vera úti."
„Hefurðu nokkurn tíma klifrað upp í
tré?"
,,Oftar en einu sinni. Há tré! Þegar
ég var í sveit seinast."
Kisurnar á stéttinni litu aðdáunar-
augum á Gul.
,,Þið hélduð víst, að ég væri til
einskis nýtur," sagði Gulur, ,,að ég
sæti á silkikoddanum allan daginn og
léti strjúka mér og þar fram eftir
götunum, en mig langar mest af öllu
til að vera frjáls og fara á veiðar úti í
skógi."
,,Úti í skógi? Við hvað áttu?"
„Þú spyr svona, af því að þú hefur
aldrei verið uppi í sveit. f skóginum er
fullt af trjám. Og ef ég kemst út ein-
hvern tíma ætla ég að strjúka langt út í
skóg. Þið vilduð kannski slást í för-
ina?"
En í þessum svifum kom frúin, sem
átti Gul, tók hann og fór með hann.
„Við höfum líklega verið órettlátar í
dómum okkar," sagði Nótt. „Þetta er
myndarlegasti köttur."
„Ó-já," sagði Mjallhvít „kannski, en
ekki stígur hann í vitið, að vilja strjúka,
eins og honum líður vel þarna. Svona
er það. Sumir geta aldrei verið
ánægðir."
Og svo lögðust þær út af á stéttinni
og létu sólina verma sig. Og nótt
dreymdi, að hún væri í veiðileiðangri
með Gul úti í skógi, en Mjallhvít, að
hún hefði fengið verustað hjá frúnni
uppi á loftinu og svæfi þar á silki-
kodda.
að kínverski múrinn á norður
og norðvesturlandamærum
hins eiginlega Kína, sam-
svarar vegalengdinni frá
París til Ankara?
Þessi múr, sem upphaflega
var gerður tll þess að verjast
árásum Mongólíubúa, en
hefur lengi ekki haft neina
hernaðarlega þýðingu, er
orðinn 2100 ára gamall, það
sem elst er af honum, en á
14.—17. öld var hann endur-
bættur mikið.
13