Æskan

Årgang

Æskan - 01.10.1981, Side 17

Æskan - 01.10.1981, Side 17
ÆVINTÝRI RÓBÍNSONS KRÚSÓ ÆSKAN ber Ijós um landið, birtu hins fagra, sanna og góða. viö og sagði, að nú væri það eitt fyrir, að leggja fram lið sitt til að bjarga, ella kvaðst hann fleygja honum fyrir borð. Hann vissi ekki, að Róbínson var í raun réttri alls ekki svo huglaus, og að það, sem fékk honum svo mikils, var meðvitundin um synd sína og iðrunina, miklu fremur en sjálf hættan og umhugsunin um hana. En þessi hót- unarorð komu honum til sjálfs sín; hann flýtti sér að dælunni og stritaði þar svo ákaft, að hann varð allur í einu svitalöðri. Samstundis heyrðist ógurlegur hvellur. Það var neyðarskot, sem skipstjóri lét skjóta. Róbínson hélt, að skipið hefði brotnað í sundur og féll aftur íöngvit. Einn af skipverjum var þar nærstaddur og hugði hann vera dauðan, gekk að dælunni og sparn við honum til hliðar með fætinum. Að nokkrum tíma liðnum raknaði hann við úr öngvit- inu, en það var ekki til fagnaðar, því alltaf var vatnið að hækka undir þilfarinu. Skipstjórinn lét enn skjóta nokkur skot, og að lokum var sendur bátur til hjálpar frá einu af stærri skipunum. Skipverjar köstuðu út kaðli og náðu bátnum að borði og lá þó við sjálft að það tækist ekki; stukku þeir allir niður í bátinn, en ekki voru þeir samt enn úr öllum háska, og var þaö fyrst eftir fjarskalegan barn- ing, að þeir komust að landi við Wintertonesse. Þaðan sáu þeir skip sitt sökkva. Síðan fóru þeir fótgangandi þaðan til Yarmouth og var þar hjúkrað af mikilli mannást og gefnir ferðapeningar. Það var ekki fyrr en eftir nokkra daga, að Róbínson hitti freistarann, vin sinn, og var hann nú heldur daufur í bragði og ekki eins frakkur og áður. Svo bar til, að skip- stjórinn faðir hans, var viðstaddur, og nú varð hann þess fyrst áskynja, að þessi ferð Róbínsons hafði aóeins verið tilraun, og að nú væri honum full alvara að ráðast í lengri ferð. Skipstjórinn reyndi að telja hann af því, sagði hon- um, að fyrst hann hefði svo illa af stað farið, þá væri lítil 17

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.