Æskan - 01.10.1981, Side 20
\
vísvitandi hundsun þessa mælikvarða, svo og sífellt ný
og ný afbrigði „súperman" hugmyndarinnar í fjölmörg-
um vestrænum afþreyingarkvikmyndum, hefur alið af sér
„kenninguna," um að allt sé leyfilegt, og iðkun hennar!
Ég vil aðeins vitna til orða Jenkins Jones, ritstjóra
bandaríska dagblaðsins Tribune. Hann fordæmir harð-
lega ýmsa kvikmyndagerðarmenn, sem hann segir að
hafi uppskorið ríkulega uppskeru — flokka glæpalýðs,
sem vopnaður er hnífum og hjólhestakeðjum.
Sovéski kvikmyndaiðnaóurinn viðurkennir þó
spennumyndir með samsærum, eltingaleik og skothríö.
En framleiðendur slíkra mynda gleyma aldrei siðaboð-
skapnum, sem unglingar geta lært af þeim.
í spennumyndum á að vera sannmannleg hetja, ekki
morðingi, heldur maðurinn sem kemur honum á kné."
Þetta er e. t. v. einfaldasta formúla þessarar kvikmynda-
greinar, en Rolan Bikov, kunnur leikari og stjórnandi
sovéskra barnakvikmynda, setti hana fram. Þegar ung-
lingurinn horfir á spennumynd og langar til aö líkjast
persónum hennar á hann ekki aðeins aö setja sig í spor
hinnar heppnu hetju, sem alltaf fer með sigur af hólmi,
Úr brúðuleikhúsmynd.
Úr kvlkmyndlnni „Rauð segl“-
hann þarf fyrst og fremst að finna til þess, að hann er
mannleg vera með öllu sem því fylgir — finna til með-
aumkunar, ástúðar, svo og ábyrgðar gagnvart öllu því,
sem er að gerast umhverfis hann.
„ÉG VIRÐI ÞIG“
Spennukvikmyndir njóta með réttu vinsælda meðal
sovéskra unglinga ásamt ævintýramyndum. Hinar bestu
þeirra eru sýndar áratugum saman. T. d. átti ævintýra-
myndin „Að boði geddunnar," sem gerð er af Alexander
Rou, nýverið fjörutíu ára afmæli.
Kvikmynd Mark Donskojs, Bernska, sem byggð er á
samnefndri frásögn eftir Maxim Gorkí, hefur gengið álíka
lengi. í þessari mynd víkur skemmtunarþátturinn, sem er
ómissandi bæði í spennumyndum og ævintýramyndum,
til hliðar fyrir umbúðalausum veruleikanum og spenn-
andi brögð þoka fyrir skörpum sálfræóilegum skilgrein-
ingum á örlögum og persónu söguhetjunnar. Það er
forvitnilegt, að Bernska var ekki gerð fyrir börn. En þrátt
fyrir það gerðu hinir ungu áhorfendur hana að sinni
kvikmynd, eins og svo oft ber við í listasögunni: Þeim
fannst það skemmtilegt að sjá sannleikann birtast á hvíta
tjaldinu.
20