Æskan

Volume

Æskan - 01.10.1981, Page 24

Æskan - 01.10.1981, Page 24
„Hverju hefir þú nú fundið upp á? Frú Mejer kom til mín og klagaði þig. Hún sagði, að þú hefðir barið Róbert son sinn til óbóta, hann væri allur blár og marinn eftir þig.“ Hjálmar stokkroðnaði. En það var ekki vegna þess, að hann kviði fyrir hegningunni. Hann óttaðist, að móðir sín vildi fá að vita, hvers vegna hann hefði barið Róbert. En það vildi hann ekki tala um, þá var betra að þola refsingu þegjandi. ,,Nú, komdu með það, drengur. Hvernig stóð á þessu?" „Við lentum í rifrildi út af dálitlu, og svo tók ég hann og hristi hann dug- lega.“ „Já, einmitt það. Maður skammast sín fyrir að eiga svona áflogasegg eins og þig fyrir son. Ég var búin að lofa því að fara með þér út að róa á sunnudaginn kemur. En nú verður ekkert úr því, skilurðu það.“ Hjálmar skildi. Hann langaði eigin- lega mest að fara aö skæla. Hann hafði hlakkað svo til að fá að koma út á sjóinn. En það var best að bíta á jaxlinn og bera harm sinn í hljóði. Hann hafði vissulega enga refsingu átt skilið í þetta sinn. Hann hafði ekki ráðist á Róbert af neinni áflogalöng- un. Nei, og aftur nei! Róbert átti sann- arlega fyrir því, að tekið væri í lurginn á honum. Hann hafði gert gys að móður Hjálmars í áheyrn félaganna. Hún var svo lotin og bogin í bakinu, og hann hafði hæðst að því. Sjáið þið, drengir, hvernig hún vaggar áfram. Svo hafði hann beygt sig í keng og reynt að herma eftir henni. En lengi fékk hann ekki næði til þess, því að þá réðist Hjálmar á hann með reiddum hnefum og hristi hann og barði. „Það er ekki nema rétt á hann,“ sagði þá Valgeir félagi Hjálmars og margir höfðu kinkað kolli þegjandi framan í Hjálmar, en sumir sögðu „alveg rétt“ íhálfum hljóðum. „Ef þú vogar þér að gera gys að mömmu minni aftur, þá skal ég berja þig til óbóta." Róbert var engin hetja. Hann flýtti sér heim til þess að sýna marblettina. En hann minntist ekki með einu orði á, hvers vegna Hjálmar hefði barið hann. Og Hjálmar var neyddur til að þegja líka. Hann var viss um, að það mundi særa móður hans svo djúpt, ef hún fengi að vita ástæðuna. Móðir Hjálmars hafði snemma orð- iö ekkja. Og ekkert átti hún til nema drenginn sinn. Þá hafði hún fengið vinnu við að staga fyrir verksmiðju eina þar í grenndinni. Dag eftir dag, viku eftir viku og ár eftir ár hafði hún gengið hálfbogin með byrði sína af fatnaði þeim, er hún hafði lokið við að staga, til verksmiðjunnar. Nú var hún orðin lúin og lotin í herðum af þessu sífellda striti. Og svo gerði þessi ungi sláni, sem aldrei hafði gert ærlegt handtak á ævi sinni, gys að henni fyrir það. „En fátt er svo með öllu illt, að ekki boði nokkuð gott." Augun á Hjálmari opnuðust, og hann skildi móður sína betur og veitti henni nákvæmari eft- irtekt eftir þetta. Hún hafði alltaf unnið verk sín, án þess að kvarta, og þess vegna hafði Hjálmar ekki hugsað út í, hve erfitt Þökk góði Guð — þú gætir mín alla tíma. Þökk fyrir það, að þú, ert hjá mér — ég er aldrei einn. Hjálpaðu mér, þegar ég er hræddur. AMEN. hún átti, og hve þreytuleg hún var orðin. Nú stalst hann til að horfa á hana, svo að hún vissi ekki. Og hann sá, að augu hennar voru stundum rauð og þrútin og hún var dauðþreytt. Að hann skyldi ekki hafa séð þetta fyrr! Hann varð að reyna að hjálpa móður sinni. Næsta morgun þegar móóir Hjálm- ars ætlaði að leggja af stað með fata- böggulinn, kom hann til hennar allt í einu. „Hvað er þetta, drengur? Hvers vegna ert þú kominn svona snemma á fætur? Þú hefur litið skakkt á klukk- una. Þér er alveg óhætt að leggja þig ÆSKAN hefur lifað til góðs. Hún hefur veitt mörgum gleði fyrr og síðar. 24

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.