Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1981, Síða 25

Æskan - 01.10.1981, Síða 25
IW1 Nýlega átti blaðið „Suðurland" á Selfossi viðtal við forseta ís- lands, frú Vigdísi Finnbogadóttur. í viðtalinu hafði hún þetta að segja við hina yngri kynslóð þessa lands: „Það er svo ótalmargt sem ég vildi geta sagt æskunni okkar og hún hlustaði á og gaumgæfði. Varðveitið landið, hafið þann metnað að ganga þannig um það að það sé alltaf fallegt, alltaf hreint. Gætið tungu okkar, ís- lenskunnar. Leitið hamingjunnar og verið eigin gæfu smiðir. Varið ykkur á því að ef þið gerið eitt- hvað sem brýtur í bága við lögin þá getur það eyðilagt allt ykkar líf. Hugsið áður en þið framkvæmið, — augnabliksframkvæmdir gætu verið glapræði. Reynið að hlakka til framtíðar- innar því þá eruð þið um leið farin að vernda hana.“ c r—, I VARÐVEITIÐ LANDIÐ I aftur, þú getur sofið einni stundu lengur." ,,Ég skal bera pokann fyrir þig til verksmiðjunnar,” sagði Hjálmar. Hann tók pokann um leið og féll endilangur á gólfið, og móðir og son- ur fóru bæði að hlæja. ,,Þetta er fallega hugsað af þér, Hjálmar minn," sagði nú móðirin. ,,En þú sérð það sjálfur, að enn ert þú ekki nógu sterkur til þess að bera þessa byrði." Síðan axlaði hún pokann og fór á stað. Og það var eins og hún væri ekki jafn þreytuleg og venjulega. Það hafði glatt hana svo innilega, að drengurinn sýndi þennan góða vilja. En Hjálmar var ekki ánægður. Hvernig átti hann að fara að því að hjálpa mömmu sinni? Hann gat hvorki þvegið eða gert við, ekki einu sinni borið þennan poka til verksmiðjunn- ar. Hann hafði hugsað svo mikið um þetta. Á hverjum morgni hafði hann ætlað sér að bera pokana fyrir mömmu sína, svo að hún gæti sofið og hvílt sig einni stundu lengur. Bíðum við. Nú datt honum ráð í hug. Valgeir félagi hans átti lítinn hand- vagn. Vafalaust mundi hann geta fengið hann lánaðan og svo keyrt fataböggulinn í honum á morgnana. Hann flýtti sér á fund vinar síns. ,,Það er velkomið," sagði Valgeir. ,,Þú mátt sækja vagninn í kvöld. Hann er léttur, og ég er viss um, að þetta gengur ágætlega." Hjálmar Ijómaói af ánægju. Nú mundi fyrirætlun hans heppnast. Móðir hans brosti, þegar hann kom með vagnkrílið um kvöldið. Hann lét vagninn inn í eldhúsið, til þess að vera viss um, að ekkert yrði að honum um nóttina. ,,Sjáðu mamma", sagði hann svo, ,,þegar þú ert búin í kvöld, þá læturðu pokann bara hér í vagninn, og svo fer ég með hann í fyrramálið til verk- smiðjunnar." Móðir hans játaði brosandi, og Hjálmar fór að sofa. Hann svaf óvenju vært þessa nótt, og þegar vekjara- klukkan hringdi næsta morgun, þaut hann upp úr rúminu og flýtti sér í fötin og fór svo strax fram í eldhúsið. En hvað átti nú þetta að þýða. Móóir hans var þá líka komin á fætur. Hún sá vonbrigöasvipinn á Hjálmari og flýtti sér að segja: ,,Ég mátti til aó fara með þér í fyrsta skipti, til þess að sýna þér, hvar þú átt að afhenda böggulinn. En næst getur þú farið einsamall." Síðan fór Hjálmar á hverjum morgni fyrir móður sína til verksmiójunnar. — Og vissulega léttir þetta undir með henni, því að leiðin er talsvert löng. Hjálmar er ánægður. Ó, já, mamma hans skal ekki þurfa að vinna svona mikið, þegar hann er orðinn stór, því lofar hann sjálfum sér á hverjum degi, og byggir loftkastala. Stundum segir hann mömmu sinni frá öllu, sem hann ætlar að gera í framtíðinni. Hann ætlar aö vera dug- legur og vinna sér mikið inn, svo að hann geti einhverntíma keypt sér lítið hús og ef til vill bíl, og þá ætlar hann að fara með móður sinni langar leiðir, til þess að þau geti séð sig um. Mamma hans hlustar á allt þetta brosandi, og segir bara. ,,Já, Hjálmar minn, ef guð lofar." En eitt er hún alveg sannfærð um. Hún veit, að drengurinn hennar mun gera allt, sem hann getur, til þess að lífið verði léttara og bjartara. Og þessi góði vilji gerir hana glaða og ham- ingjusama. Hún veit með sjálfri sér, að enda þótt hún eigi ef til vill ekki eftir að eiga góða daga og hæga, þá er það víst, að drengurinn hennar verður með tímanum nýtur og góður maður. ÆSKUNNI hefur tekist í senn að vera þroskandi, fræðandi og skemmtilegt blað. 25

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.